Segir viðbrögð formanns Dómarafélagsins staðfesta gagnrýni sína

Áslaug Björg­vins­dóttir, fyrr­ver­andi hér­aðs­dómi, svarar gagn­rýni Skúla Magn­ús­sonar, for­manns Dóm­ara­fé­lags Íslands og segir að mál­flutn­ingur hans hljóti að „helg­ast af því að það gangi gegn per­sónu­legum hags­munum hans að taka afstöðu sem ekki hentar yfir­stjórn dóm­stól­anna“.

Segir viðbrögð formanns Dómarafélagsins staðfesta gagnrýni sína

Áslaug Björg­vins­dóttir, fyrr­ver­andi dóm­ari við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur, gerir athuga­semdir við ummæli sem höfð voru eftir Skúla Magn­ús­syni, for­manni Dóm­ara­fé­lags Íslands, á vef Stund­ar­innar í morgun. Í við­tal­inu bregst Skúli við gagn­rýni Áslaugar á máls­með­ferð­ina sem við­höfð var við rann­sókn Dóm­stóla­ráðs á starfs­háttum dóm­stjóra árið 2014, en Áslaug lítur á málið sem skóla­bók­ar­dæmi um brotala­mir í stjórn­sýslu og innra eft­ir­liti dóm­stóla­kerf­is­ins. 

Áslaug segir í tölvu­pósti til Stund­ar­innar að hún telji við­brögð Skúla fyr­ir­sjá­an­leg, enda hafi hún og for­maður dóm­ara­fé­lags­ins alltaf verið á önd­verðum meiði um alvar­leika umrædds máls. „Ég taldi það alvar­legt mál að dóm­stjór­inn í Reykja­vík færi fyrir dóm­stóla­ráð og krefð­ist við­ur­kenn­ingar á því að tveir hér­aðs­dóm­arar hefðu brotið gegn lögum með því að óhlýðn­ast fyr­ir­mælum hans,“ skrifar hún og bendir á þetta hafi dóm­stjór­inn, Ingi­mundur Ein­ars­son, gert í kjöl­far þess að sam­starfs­kona hennar, einnig dóm­ari við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur, sendi honum bréf þann 3. júní 2014 þar sem hún gagn­rýndi fram­göngu hans og fyr­ir­skip­anir í veik­indum eftir slys. 

Áslaug segir að dóm­stóla­lög geri ráð fyrir því að ágrein­ingur um inn­tak lög­bund­innar hlýðni­skyldu hér­aðs­dóm­ara og aga­vald dóm­stjóra heyri undir sér­staka nefnd um dóm­ara­störf en ekki dóm­stóla­ráð. „Ég taldi það alvar­legt að Dóm­stóla­ráð teldi sig hafa hæfi til að taka málið til með­ferðar og virða síðan að vettugi grund­vall­ar­reglur um hlut­lausa máls­með­ferð í stjórn­sýslu. Ég taldi það alvar­legt að með þessum hætti mætti vega að heið­ar­leika og trú­verð­ug­leika dóm­ara,“ skrifar hún. 

Ekki afskipti af málinu sjálfu

„Það er sér­kenni­legt að hvorki þá né nú sjái Skúli ástæðu til að verja rétt­ar­stöðu dóm­ara eins og dóm­ara­fé­lag­inu og stjórn þess ber að gera. Þegar ég áframsendi  stjórn dóm­ara­fé­lags­ins til­kynn­ingu dóm­stóla­ráðs til mín um að dóm­stóla­ráð hefði hafið rann­sókn á dóm­stjóra sendi Skúli mér og öðrum stjórn­ar­mönnum í dóm­ara­fé­lag­inu tölvu­póst þar sem hann vís­aði til þess að hann hefði sem for­maður dóm­ara­fé­lags­ins, skrifað bréf til Dóm­stóla­ráðs og farið fram á að heim­ildir dóm­stjóra til að kalla til trún­að­ar­lækni yrðu skýrðar. Hann myndi hins vegar ekki hafa afskipti af þessu máli, hvorki í eigin nafni né fyrir hönd dóm­ara­fé­lags­ins. Skúli sá hvorki þá né nú ástæðu til að gera athuga­semdir við þennan mála­til­búnað dóm­stjóra og Dóm­stóla­ráðs,“ segir Áslaug.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dómsmál

Ógnaði heimilisfólki með heimagerðu sverði
FréttirDómsmál

Ógnaði heim­il­is­fólki með heima­gerðu sverði

Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands dæmdi fyrir skömmu mann fyrir lík­ams­árás, hús­brot og akstur undir áhrifum áfengis. Í lýs­ingum vitna er sagt frá því að mað­ur­inn hafi kýlt heim­il­is­mann sem reyndi að koma í veg fyrir að mað­ur­inn kæmi inn um glugga á hús­inu. Þá er einnig sagt frá því að mað­ur­inn hafi á einum tíma­punkti dregið fram heima­gert sverð á sveiflað því í kringum sig fyrir utan húsið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár