Segir Bjarna á móti kerfisbreytingum vegna sérhagsmuna útgerðarmanna: „Og þeir borga í kosningasjóðina“

Val­gerður Bjarna­dóttir gagn­rýndi stefnu stjórn­ar­flokk­anna í stjórn­ar­skrár- og auð­linda­málum harð­lega á Alþingi. „Hvaða kerf­is­breyt­ingum er hann á móti? Hann er á móti því að auð­lind­arentan hætti að renna í vasa útgerð­ar­manna,“ sagði hún.

Segir Bjarna á móti kerfisbreytingum vegna sérhagsmuna útgerðarmanna: „Og þeir borga í kosningasjóðina“

Val­gerður Bjarna­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar, fór hörðum orðum um stjórn­ar­flokk­ana og stefnu þeirra í stjórn­ar­skrár­mál­inu og auð­linda­málum í ræðu sem hún hélt undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í gær.

Beindi hún einkum spjótum sínum að Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og velti fyrir sér ummælum hans um að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ætli að beita sér gegn kerf­is­breyt­ingum og að ekki megi „umbylta“ stjórn­ar­skránni.

„Ég heyrði for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hæst­virtan fjár­mála­ráð­herra, Bjarna Bene­dikts­son, lýsa því í útvarp­inu í morgun að hann væri á móti því að umbylta stjórn­ar­skránni, eins og hann orð­aði það, þrátt fyrir að nokkuð meira en 60 pró­sent þeirra sem tóku afstöðu til spurn­ing­ar­innar um hvort þeir vildu að ný stjórn­ar­skrá yrði byggð á til­lögum stjórn­laga­ráðs­ins hafi svarað því ját­andi í októ­ber 2012,“ sagði Val­gerður.

„En honum kemur það ekk­ert við, hann lýsti því líka yfir fyrr í sumar að hann væri á móti kerf­is­breyt­ingum. Og hvaða kerf­is­breyt­ingum er hann á móti? Hann er á móti því að auð­lind­arentan hætti að renna í vasa útgerð­ar­manna. Hann er á móti því að auð­lind­arentan af raf­orkunni hætti að renni í vasa álfyr­ir­tækja, hann er á móti því að breyta land­bún­að­ar­kerf­inu sem gerir Mjólk­ur­sam­söl­unni kleift að svína á minni fram­leið­endum, kerfi sem gerir for­stjóra Mjólk­ur­sam­söl­unnar kleift að segja að neyt­endur eigi að borga sektir sem lagðar eru á fyr­ir­tækið.“ 

„Setja plástra á svöðusár“

Því næst lýsti hún kerf­inu eins og það horfir við henni: „Í heil­brigð­is­kerf­inu er það svo að alvar­legum veik­indum fylgja alvar­legar fjár­hags­á­hyggjur. Vegir grotna niður í sam­göngu­kerf­inu, kosn­inga­kerfið er þannig að þeir sem búa norðan Hval­fjarð­ar­ganga hafa meira en tvö­faldan atkvæð­is­rétt á við þá sem búa sunnan þeirra. Og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins seg­ist vera á móti kerf­is­breyt­ingum.“

Þá setti hún afstöð­una í sam­hengi við hags­muni útgerð­ar­manna: „Hann ver sér­hags­muni útgerð­ar­manna og þeir borga í kosn­inga­sjóð­ina, hann ver skattaí­viln­anir álfyr­ir­tækj­anna, kannski borga þau líka í kosn­inga­sjóð­ina, og ekki hef ég heyrt hann gagn­rýna Mjólk­ur­sam­söl­una sem ætlar að láta neyt­endur greiða sektir sem á fyr­ir­tækið eru lagðar — af því að hann er á móti kerf­is­breyt­ingum. Og nú kynnir rík­is­stjórnin til­lögur í hús­næð­is­málum. Til hvers er það? segir for­sæt­is­ráð­herr­ann. Jú, það er til að verja þjóð­ina fyrir verð­bólgu­skotum. Hvers vegna ein­beitir rík­is­stjórnin sér ekki að aðgerðum til að koma í veg fyrir verð­bólgu­skot? Það er vegna þess að rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir eru á móti kerf­is­breyt­ingum og setja plástra á svöðu­sár.“

Útgerðin lagðist gegn þjóðareignarákvæðinu

Eins og Stundin fjall­aði um síð­asta sumar hafa útgerð­ar­fyr­ir­tæki og hags­muna­sam­tök þeirra barist af mik­illi hörku gegn hug­myndum um að binda þjóð­ar­eign á auð­lindum í stjórn­ar­skrá. Í til­lögum stjórn­laga­ráðs, sem haldin var þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um þann 20. októ­ber 2012 eins og Val­gerður minn­ist á, var að finna rót­tækt ákvæði um þjóð­ar­eign auð­linda þar sem fram kom að ein­ungis mætti veita leyfi til afnota af auð­lindum gegn „fullu gjaldi“ og „til til­tek­ins hóf­legs tíma í senn“. Í umsögn um til­lög­urnar lagð­ist Lands­sam­band íslenskra útvegs­manna ein­dregið gegn þessu og sagði almennt „æski­legt að afnota­tími þeirra sem nýta auð­lindir sé sem lengstur eða ótíma­bund­inn“.

Núver­andi stjórn­ar­flokkar töfðu fram­gang stjórn­ar­skrár­máls­ins á síð­asta kjör­tíma­bili, gagn­rýndu ferlið harð­lega á nær öllum stigum þess og beittu mál­þófi. Val­gerður Bjarna­dóttir var hins vegar for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis á þessum tíma og einn ötul­asti hvata­maður stjórn­ar­skrár­breyt­inga á Alþingi.

Milljónastyrkir í aðdraganda kosninga

Pólitísk gagn­rýni á hug­myndir um þjóð­ar­eign auð­linda og útfærslu stjórn­ar­skrár­á­kvæðis þess efnis kom að miklu leyti frá full­trúum Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Á árunum 2008 til 2011 fengu sömu flokkar tíu sinnum meiri fjár­fram­lög frá fyr­ir­tækjum tengdum sjáv­ar­út­vegi en allir aðrir stjórn­mála­flokkar á Íslandi til sam­ans. Fyrir þing­kosn­ing­arnar 2013, í lok síð­asta kjör­tíma­bils, styrktu svo sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki flokk­ana tvo um 14,4 millj­ónir króna. Í próf­kjörum fyrir sömu kosn­ingar fengu fram­bjóð­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins sam­tals um 7 millj­ónir frá sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum. Eitt af fyrstu verkum nýrrar rík­is­stjórnar var breyt­ing og lækkun sér­staka veiði­gjalds­ins sem fyrri rík­is­stjórn hafði komið á.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, svar­aði fyrir styrk­ina í við­tali við frétta­stofu RÚV þann 10. mars í fyrra og sagði ekk­ert athuga­vert við að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fengi svo mikla styrki frá sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum. „Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er að berj­ast fyrir bættum hag lands­manna. Til þess að lands­menn njóti góðs af nýt­ingu sjáv­ar­út­vegsauð­lind­ar­innar þurfum við að hafa hér skyn­sam­legt fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfi,“ sagði hann meðal ann­ars. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórnin

Kristján Þór og Þorsteinn Már „nánir  vinir“ í skilningi stjórnsýslulaga
FréttirRíkisstjórnin

Kristján Þór og Þor­steinn Már „nánir vinir“ í skiln­ingi stjórn­sýslu­laga

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hafa ekki viljað svara spurn­ingum um eðli vin­áttu sinnar. Samkvæmt hæf­is­reglum stjórn­sýslu­laga getur „náin vin­átta“ haft áhrif á hæfi ráð­herra og ann­arra opin­berra starfs­manna en í slíkri vin­áttu felst meðal ann­ars að menn umgang­ist í frí­tíma sínum.
Af hverju er spilling frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?
Úttekt

Af hverju er spill­ing frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?

Munur á umræðu og aðgerðum stjórn­valda gegn spill­ingu í Svíþjóð og á Íslandi er hróp­lega mik­ill. Ákæru­valdið í Svíþjóð hefur á síð­ustu tveimur árum hafið rann­sókn á tveimur ráð­herrum vegna spill­ingar. Þessar rann­sóknir byggj­ast samt á veik­ari for­sendum en mörg mál sem komið hafa upp um íslenska ráð­herra á liðnum árum. Þá eru óform­legar reglur um spill­ingu og þol­in­mæði almenn­ings gagn­vart spill­ingu allt ann­ars konar á Íslandi en í Svíþjóð.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár