Ritstjóri Séð og heyrt: „Það stendur ekki ‚satt er‘ heldur ‚sagt er‘“

Eiríkur Jónsson segir það út hött að orð blaðs­ins um Margréti Gísla­dóttur aðstoð­ar­konu Gunnars Braga bygg­ist á kven­hatri.

Ritstjóri Séð og heyrt: „Það stendur ekki ‚satt er‘ heldur ‚sagt er‘“

Eiríkur Jónsson rit­stjóri Séð og heyrt segir í sam­tali við Stundina að hluti þess sem skrifað var á vef tíma­rits­ins um Margréti Gísla­dóttur, fyrrum aðstoð­ar­konu Gunnars Braga, verði leið­rétt bæði í net­grein og í næsta tölu­blaði á áber­andi hátt.

Sú full­yrð­ing að hún hafi verið færð um ráðu­neyti að beiðni eig­in­konu Gunnars Braga verði þó ekki leið­rétt. „Ég var einmitt að fylgj­ast með þessu. Þarna hafa orðið mis­tök sem verða leið­rétt, og búið að leið­rétta að hluta. Þetta var Glaumbær en ekki Glæsibær, og Gunn­ar­son en ekki Guð­munds­son. Það er alveg rétt. Aðal­málið stendur svona,“ segir Eiríkur Jónsson.

Eðli dálksins

Máli sínu til stuðn­ings bendir hann á að þessi orð hafi fallið í dálknum „heyrt“. „Þetta er tekið upp úr blað­inu. Þetta er í dálk­inum „heyrt“ sem er eins og „sagt er“ og þetta er sagt. Það stendur ekki „satt er“ heldur „sagt er“. Það munur á „satt er“ og „sagt er“. Við getum ekki leið­rétt að sagt sé að svona sé. Það er bara eðli dálks­ins. Svona dálkar eru þekktir víða um heim og hafa verið frá örófi alda og munu alltaf vera,“ segir Eiríkur.

Hafnar kvenhatri

Hann hafnar því alfarið að ummælin bygg­ist á kven­hatri. „Það er bara út í hött. Það er ekk­ert kven­hatur hér. Ég veit ekki hvað er verið að tala um þegar talað er um kven­hatur. Þetta snýst ekk­ert um það og þú veist það líka. Það er ekk­ert kven­hatur á Séð og heyrt.  Séð og heyrt elskar konur,“ segir Eiríkur.

Margrét Gísladóttir
Margrét Gísla­dóttir Margrét var aðstoð­ar­maður Gunnars Braga Sveins­sonar utan­rík­is­ráð­herra í tæpt ár.

„Ef ég væri karlmaður væri öllum sama“

Í sam­tali við Stundina segir Margrét sögu­sagnir um meint sam­band við Gunnar Braga Sveins­son ein­fald­lega birt­ing­ar­mynd kven­hat­urs í sam­fé­lag­inu. „Þetta er vand­ræða­legt og ógeðs­lega kjána­legt. Það myndi eng­inn segja þessar sögur ef ég væri karl­maður. Ef ég væri karl­maður væri öllum sama. Þetta er ein birt­ing­ar­mynd þess,“ segir Margrét. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár