Ríkið fer á svig við lög með tímabundnum ráðningum

Ríkið ræður í tíma­bundnar stöður sem hefði átt að aug­lýsa. Vel­ferð­ar­ráð­herra kvart­aði undan póli­tískum ráðn­ingum fyrri rík­is­stjórnar en nú hefur ráðu­neyti hans flestar tíma­bundnar stöður. Lögmaður BHM segir ný lög koma í veg fyrir nýliðun hjá Stjórn­ar­ráð­inu.

Ríkið fer á svig við lög með  tímabundnum ráðningum

Erna Guð­munds­dóttir, lög­maður hjá Banda­lagi háskóla­manna, segir ríkið oft ráða tíma­bundið í nýjar stöður sem hefði átt að aug­lýsa. Þannig sé farið fram­hjá aug­lýs­inga­skyldu í opin­berar stöður. „Sá sem er tíma­bundið ráð­inn er svo kom­inn með ákveðið for­skot á aðra umsækj­endur þegar ákveðið er að aug­lýsa starfið,“ segir hún meðal ann­ars í sam­tali við Stundina. Að ráðn­ing­ar­tíma loknum séu stöð­urnar aug­lýstar til mála­mynda en í raun og veru séu þær ekki lausar. Umsækj­endum, sem oft leggja mikla vinnu í umsóknir sínar, sé þannig gerður grikkur með því að störfin séu aug­lýst. 
Athygli vakti þegar staða fram­kvæmda­stjóra nýrrar Stjórn­stöðvar ferða­mála var ekki aug­lýst þegar stjórn­stöðin var kynnt í októ­ber á síð­asta ári. Stundin fjall­aði ítar­lega um málið en í svari frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, sem sá um ráðn­ing­una, sagði að gerður hefði verið tíma­bund­inn sex mán­aða ráð­gjafa­samn­ingur við fram­kvæmda­stjór­ann á meðan verið væri að móta starf­sem­ina end­an­lega.

Vinnubrögð fyrir neðan allar hellur

Stundin sendi fyr­ir­spurn á öll ráðu­neyti og spurði hversu marga aðstoð­ar­menn ráð­herrar hefðu og hversu margir starfs­menn ráðu­neyt­is­ins væru ráðnir tíma­bundið. Þá var spurt hver verk­efni þeirra væru, hvort við­kom­andi starf hefði verið aug­lýst og hvenær ráðið hefði verið í 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár