Ráðuneyti loftslagsmála lagt niður í Bretlandi

Eitt fyrsta verk Theresu May sem for­sæt­is­ráð­herra var að færa öll verk­efni sem tengj­ast hnatt­rænni hlýnun og veð­ur­fars­breyt­ingum inn í nýtt ráðu­neyti við­skipta, orku og iðn­aðar. Nýr umhverf­is­mála­ráð­herra vill að kola­iðn­að­ur­inn stýri stefnu­mótun rík­is­stjórn­ar­innar.

Ráðuneyti loftslagsmála lagt niður í Bretlandi
Hnattræn hlýnun. Gangi spár vís­inda­manna eftir mun hnatt­ræn hlýnun brátt hafa gríð­ar­leg áhrif á flesta jarð­ar­búa.

Eitt fyrsta verk Theresu May í hlut­verki for­sæt­is­ráð­herra var að færa öll verk­efni sem tengj­ast hnatt­rænni hlýnun og breyt­ingu á veð­ur­fari inn í nýtt ráðu­neyti við­skipta, orku og iðn­aðar.

Ákvörð­unin hefur verið sögð „ein­fald­lega heimsku­leg,“ „valda gríð­ar­legum áhyggjum,“ og „hræði­leg“ af sér­fræð­ingum í grein­inni og stjórn­mála­mönnum.

Á mánu­dag­inn bentu ráð­gjafar rík­is­stjórn­ar­innar á að grípa þyrfti taf­ar­laust til aðgerða að und­ir­búa Bretland undir flóð, þurrka, hita­bylgjur og mat­ar­skort sem breyt­ingar á veð­ur­fari munu hafa í för með sér.

Umhverfismálaráðherra efast um loftslagsbreytingar

Frétt­irnar um þessar hróker­ingar birt­ust stuttu eftir að Theresa May skip­aði Andreu Leadsom orku­mála ráð­herra. Leadsom vakti tölu­verða athygli í Bret­landi í fyrra þegar hún efað­ist um til­vist lofts­lags­breyt­inga af manna völdum eftir að hún tók við emb­ætti umhverf­is­mála­ráð­herra.

(Þetta hring­laga graf sýnir glöggt hækkun á hita­stigi jarðar.)

Amber Rudd, sem í síð­ustu rík­is­stjórn hafði yfir­um­sjón með málum er snerta breyt­ingar á veð­ur­fari og orku­mál, til­kynnti í nóv­em­ber í fyrra að Bretland ætl­aði að hætta allri notkun kola fyrir lok árs 2025. Leadsom, sem nú hefur þessi mál á sinni könnu hefur beðið leið­toga innan kola­iðn­að­ar­ins að ákveða hvað það þýði að Bretland ætli að hætta notkun kola og stýra stefnu­mótun í mál­inu.

Ed Miliband, fyrrum leið­togi verka­manna­flokks­ins skrif­aði á twitter:
„Það að leggja niður DECC [Depart­ment of Energy and Climate Change - ráðu­neyti sem berst fyrir sjálf­bærni í orku­málum og gegn hnatt­rænni hlýnun] er ein­fald­lega heimsku­legt. Loftslag er ekki einu sinni hluti af hinum nýja titli ráðu­neyt­is­ins. Það skiptir máli því ráðu­neyti móta for­gangs­röðun, sem mótar útkomur.“

Ed Miliband.
Ed Miliband. For­mað­ur­inn fyrr­ver­andi var afger­andi í afstöðu sinni.

Talsmaður Greenpeace lýsir yfir áhyggjum

Greenpeace hefur einnig lýst áhyggjum af því að hin nýja rík­is­stjórn virð­ist ekki líta á lofts­lags­breyt­ingar sem raun­veru­lega ógn. John Sauven, tals­maður Greenpeace í Bret­landi, sagði að „það hvernig helstu ráðu­neyt­is­stjórar hinnar nýju rík­is­stjórnar hafa kosið í þessum málum, og tengsl þeirra við fólk sem dregur lofts­lags­breyt­ingar í efa valda mér miklum áhyggjum.“

„Við­skipta­lífið mun eiga sterkan full­trúa í hinu nýja ráðu­neyti.“

„Þau hafa sýnt skort á skiln­ing á því hvaða áhrif hnatt­ræna hlýnun mun hafa á Bretland og heim­inn allan. Ef við ætlum að halda áfram að gegna lyk­il­hlut­verki í bar­átt­unni fyrir umhverf­inu, þá þurfum við taf­ar­laust að fá stað­fest­ingu á því frá hinni nýju rík­is­stjórn að þeir sigrar sem unn­ist hafa í lofts­lags­málum, end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum, loft­mengun og verndun á dýra­lífi muni ekki verða í auka­hlut­verki í við­ræðum Bret­lands um útgöngu úr Evr­ópu­sam­band­inu.“

Alex Chisholm, ráð­herra hins nið­ur­lagða ráðu­neytis, skrif­aði starfs­fólki sínu bréf sem lak til fjöl­miðla. Stað­festi hann þar að öll mál ráðu­neyt­iss­ins yrðu nú í höndum hins nýja ráð­herra, Greg Clark. Tók hann sér­stak­lega fram að  „við­skipta­lífið mun eiga sterkan full­trúa í hinu nýja ráðu­neyti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Loftslagsbreytingar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár