Peking rafvæðir leigubílaflota borgarinnar

Loft­mengun í kín­verskum borgum er gríð­ar­legt vanda­mál sem kostar allt að 4.000 Kínverja lífið á hverjum degi. Yfirvöld í Peking stefna að því að raf­væða leigu­bíla borg­ar­innar í til­raun til þess að draga úr meng­un­inni.

Peking rafvæðir leigubílaflota borgarinnar
Hreiðrið Hér má sjá þjóð­ar­leik­vang­inn Hreiðrið í Peking. Vinstra megin án meng­unar í kringum Ólymp­íu­leik­ana, og hægra megin með loft­gæð­unum sem borg­ar­búar lifa við á hverjum degi.

Yfirvöld í Peking ætla sér að raf­væða allan leigu­bíla­flota borg­ar­innar í til­raun til þess að bæta loft­gæði, en mengun er gríð­ar­legt vanda­mál í kín­verskum borgum. Um 70 þús­und leigu­bílar eru í Peking, af þeim eru aðeins 3 þús­und sem ganga fyrir raf­magni. Samhliða því að raf­væða hina 67 þús­und leigu­bíl­ana hafa borg­ar­yf­ir­völd hvatt íbúa borg­ar­innar til þess að kaupa sér einnig raf­bíla.

Breyt­ingin mun þó taka nokkur ár. Hún hefst á því að allir nýir leigu­bílar sem koma á götur borg­ar­innar þurfa að ganga fyrir raf­magni. Það gæti þó þýtt að rúman ára­tug tæki að skipta gamla bíla­flot­anum út. Einnig mun átakið þýða auk­inn kostnað fyrir leigu­bíl­stjóra, en verð á nýjum raf­bílum í Kína er tvö­falt á við sam­bæri­legan bíl sem gengur fyrir jarð­efna­elds­neyti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Umferðarmenning

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár