Panama-skjölin: „Þessi reynsla varð mér persónulega mjög erfið“

Eggert Claessen, fram­kvæmda­stjóri Frumtaks, átti fyr­ir­tæki í skatt­skjól­inu Tortólu sem fékk lán til fjár­fest­inga á árunum fyrir hrun. Hann segir að félagið hafi verið stofnað að und­ir­lagi Lands­bank­ans í Lúx­em­borg. Frumtak sér um rekstur tveggja fjár­fest­ing­ar­sjóða þar sem líf­eyr­is­sjóð­irnir eru stórir hlut­hafar.

Panama-skjölin: „Þessi reynsla varð mér persónulega mjög erfið“
Stýrir fjár­fest­ingum líf­eyr­is­sjóð­anna Eggert Claessen stýrir fjár­fest­ingum líf­eyr­is­sjóða í gegnum fyr­ir­tækið Frumtak og sést hér á mynd þegar nýr sjóður, Frumtak II, var kynntur í fyrra. Hann und­ir­strikar að hann hafi ekki stundað fjár­fest­ingar í gegnum Tortólu eftir að hann byrj­aði að stýra Frumtaki árið 2008.

Eggert Claessen, fram­kvæmda­stjóri fjár­fest­ing­ar­sjóðs­ins Frumtaks sem er að stóru leyti í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða, var eig­andi og stjórn­andi félaga í skatta­skjól­inu Tortólu á árunum fyrir hrunið og eftir það. Við­skipti Eggerts á Tortólu ná allt til árs­ins 2012 þegar eign­ar­halds­fé­lag í hans eigu, Vitta ehf., varð hlut­hafi í einu Tortóla­fé­lag­inu sem hann teng­ist. Félög sem Eggert átti eða stýrði fengu meðal ann­ars lán frá Lands­bank­anum í Lúx­em­borg til að fjár­festa í hluta­bréfum í Lands­banka Íslands og stunda ann­ars konar við­skipti. Félögin sem Eggert teng­ist á Tortólu eru meðal ann­ars félög sem heita Caldex Holdings Ltd., A24 International Ltd. og AE Partners Ltd. 

Þetta kemur fram í Panama-skjöl­unum svoköll­uðu, við­skipta­gögnum frá panamísku lög­manns­stof­unni Mossack Fonseca sem lekið var til þýska blaðs­ins Süddeutsche Zeitung og þaðan til blaða­manna­sam­tak­anna ICIJ. Stundin vinnur grein­ina í sam­starfi við fjöl­miðla­fyr­ir­tækið Reykja­vík Media ehf. en sá mið­ill fékk gögnin frá ICIJ og heldur utan um umfjöllun um þau á Íslandi. 

Með­fjár­festar Eggerts og sam­starfs­menn í umræddum Tortóla-fyr­ir­tækjum eru þeir Ágúst Guð­munds­son og Ágúst Björns­son. Eggert og Ágúst Guð­munds­son voru við­skipta­fé­lagar í upp­lýs­inga­tækni­iðn­að­inum á Íslandi í kringum síð­ustu alda­mót og áttu meðal ann­ars saman fyr­ir­tækið Tölvu­miðlun sem vann að gerð upp­lýs­inga­kerfa fyrir heil­brigð­is­stofn­anir. 

Þeir voru um tíma báðir pró­kúru­hafar Tortóla-félags­ins AE Partners Ltd. á árunum 2005 til 2007 sam­kvæmt Panama-skjöl­unum og svo átti hvor þeirra um sig sitt eigið Tortóla-félag. 

Umboð Eggerts
Umboð Eggerts Skjalið sýnir umboð Eggerts og eig­in­konu hans yfir Caldex á Tortólu.

„Þetta var ekki skattaundanskot“

Eggert segir að fyr­ir­tæki hans Caldex Holdings Ltd. hafi verið stofnað af Lands­bank­anum í Lúx­em­borg þegar hann gerði eigna­stýr­ing­ar­samn­ing við bank­ana. Í Panama-skjöl­unum er meðal ann­ars að finna upp­lýs­ingar um 20 millj­óna lán frá Lands­bank­anum í Lúx­em­borg til Caldex frá árinu 2004 til að kaupa hluta­bréf í bank­anum. Eggert seg­ist hafa gefið fyr­ir­mæli um að félagið yrði leyst upp í febr­úar árið 2008. Hann segir að eigna­stýr­ing Lands­bank­ans í Lúx­em­borg hafa haft umboð til að stunda fjár­fest­ingar fyrir hans hönd í gegnum Caldex. 

Hann segir að á þeim tíma sem félagið var stofnað fyrir hans hönd hafi stofnun slíkra félaga verið algeng í bönk­unum. „Þú verður að athuga að þetta er árið 2000. Þetta er svo gam­alt; þetta var bara stand­ard þjón­ustu­fram­boð á þessum tíma. Ég hef ekk­ert að fela í þessu máli. Þetta var ekki skattaund­an­skot og þetta var allt gefið upp á fram­tal­inu mínu.“

„Ég hef ekk­ert að fela í þessu máli.“

Eggert segir að stofn þeirra fjár­muna sem hann hafi verið með í eigna­stýr­ingu í Lúx­em­borg hafi verið sölu­hagn­aður af fyr­ir­tæki sem hann seldi um alda­mótin auk þess sem hann fékk lán frá bank­anum. „Þetta er ástæðan fyrir því að ég end­aði á að skulda þeim eitt­hvað. Í hrun­inu hreins­aði ég allt út og hef ekki keypt nein hluta­bréf síðan. Þessi reynsla varð mér per­sónu­lega mjög erfið. Ég hef ekki haft trú á þessum hluta mark­að­ar­ins eftir að þetta gerð­ist, eftir hrun.“

Sex lífeyrissjóðir eru stórir fjárfestar

Frumtak, fyr­ir­tækið sem Eggert stýrir, er fjár­fest­ing­ar­sjóður sem stofn­aður var rétt eftir hrunið árið 2008 og er stærsti hlut­hafi sjóðs­ins Nýsköp­un­ar­sjóður atvinnu­lífs­ins með 37 pró­senta hlut. Þar á eftir koma Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins, Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna og Gildi líf­eyr­is­sjóður með sam­tals tæp­lega 30 pró­senta eign­ar­hlut. Stóru við­skipta­bank­arnir þrír eru einnig í  hlut­hafa­hópnum auk Sam­ein­aða líf­eyr­is­sjóðs­ins, Stapa líf­eyr­is­sjóðs og Söfn­un­ar­sjóðs líf­eyr­is­rétt­inda. 

Frumtak II er svo annar fjár­fest­ing­ar­sjóður sem Eggert stýrir auk þess sem hann á sjálfur hlut í þeim sjóði í gegnum fjár­fest­ing­ar­fé­lag sem heitir Eniga ehf. Eign­ar­hald á þeim sjóði er nær alfarið í höndum líf­eyr­is­sjóð­anna. Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna og Gildi eru stærstu hlut­haf­arnir með tæp­lega 20 pró­senta hlut hver. Sá sjóður var stofn­aður í árs­byrjun í fyrra.

Frumtaks-sjóð­irnir hafa fjár­fest í fjöl­mörgum fyr­ir­tækjum á Íslandi á síð­ustu árum. Meðal ann­ars í Arctic Trucks, Meniga og Cintamani. 

Eggert und­ir­strikar að hann hafi verið hættur að nota félagið á Tortólu þegar hann varð fram­kvæmda­stjóri Frumtaks og að hann hafi verið í „góðri trú“ þegar hann stofn­aði það í gegnum Lands­bank­ann í Lúx­em­borg.

Gerði aldrei neitt segir Ágúst

Í sam­tali við Stundina segir Ágúst Guð­munds­son að þeir Eggert hafi stofnað AE Partners vegna fjár­fest­inga sem þeir hugð­ust fara í erlendis en að svo hafi ekk­ert orðið af þeim fjár­fest­ingum og að Ágúst Björns­son hafi tekið fyr­ir­tækið yfir. „AE Partners var félag sem var stofnað til að vera evr­ópskt dótt­ur­fé­lag banda­rísks félags sem heitir Alterna. Þetta átti að vera Alterna Europe. En það varð ekk­ert úr þessu. Við reyndum að fara af stað með þetta en þetta gekk ekki.“

Aðspurður um af hverju þeir hafi notað félag á Bresku Jóm­frú­areyjum undir þessa ætl­uðu starf­semi segir Ágúst að það hafi verið auð­veld lausn. „Þetta var erlend starf­semi og miklu auð­veld­ara að stofna banka­reikn­ing þarna en í Bret­landi. Það getur tekið tvo eða þrjá mán­uði. Þannig að þetta var bara ein­fald­ara.“ Eggert segir sömu sögu um þetta félag og Ágúst Guð­munds­son og segir hann að hann hafi meira að segja nán­ast verið búinn að gleyma til­vist þess.

Auk AE Partners þá var Ágúst Guð­munds­son pró­kúru­hafi félags­ins A24 International Ltd., ásamt eig­in­konu sinni, og segir hann að það hafi verið stofnað til að stunda fjár­fest­ingar. „Þetta var bara okkar félag,“ segir Ágúst en í Panam-skjöl­unum kemur fram að fyr­ir­tækið hafi meðal ann­ars greitt kredikorta­reikn­inga fyrir þau hjónin og er sér­stök stjórn­ar­sam­þykkt þar sem þessi heim­ild er veitt. „Þetta félag borg­aði meðal ann­ars ferða­kostnað,“ segir Ágúst um þetta atriði.

Í Panama-skjöl­unum er svo meðal ann­ars að finna lána­samn­ing á milli A24 International Ltd. og Lands­bank­ans í Lúx­em­borg upp á 120 millj­ónir króna. 

Varð hluthafi vegna skuldauppgjörs
Varð hlut­hafi vegna skulda­upp­gjörs Íslensk fyr­ir­tæki Eggerts varð hlut­hafi í Caldex á Tortólu vegna skulda­upp­gjörs við Lands­bank­ann í Lúx­em­borg árið 2012. Skjalið sýnir hvernig íslenska fyr­ir­tækið varð hlut­hafi í félag­inu.

Félag Eggerts varð hluthafi í Caldex

„Þetta er hluti af ennþá leið­in­legri þætti í þess­ari sögu,“ segir Eggert aðspurður um af hverju eign­ar­halds­fé­lag hans, Vitta ehf., hafi orðið hlut­hafi í Tortóla-félagi hans, Caldex, árið 2012. Hann segir að þetta hafi verið gert eftir hrun vegna þess að Lands­bank­inn í Lúx­em­borg hafi gert kröfu um að félagið sem átti eignir í bank­anum væri starf­andi og því hafi hann orðið að end­ur­vekja félagið til að geta náð eignum þess út úr búinu í Lúx­em­borg. Hann lét því Vittu ehf. vera hlut­hafa í Tortóla-félag­inu þar sem það félag hefur stundað við­skipti í gengum Lands­bank­ann í Lúx­em­borg - félagið á meðal ann­ars orlofs­hús á Spáni. „Fyrir mér þá var þetta ekki neinn rekstur,“ segir Eggert aðspurður um þennan þátt í starf­semi Caldex. 

Í kjöl­farið var félagið afskráð segir Eggert. 

 
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Hvernig peningaslóð stjórnenda Kaupþings og maka þeirra liggur til Tortólu
Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.
Sæmarksstjóri ákærður ásamt lögmanni fyrir stórfelld skattsvik og peningaþvætti
Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
Fengu fjölskyldumálverk í hendurnar eftir umfjöllun Stundarinnar
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár