Páll Magnússon: „Leyfum lögreglunni að vinna sín störf í faglegum friði“

Páll Magn­ús­son gagn­rýnir Katrínu Jak­obs­dóttur fyrir að kalla eftir opinni og gagn­særri umræðu um við­búnað lög­reglu vegna hugs­an­legra hryðju­verka. Hann segir gagn­sæi gagn­ast engum betur en hugs­an­legum hryðju­verka­mönnum.

Páll Magnússon: „Leyfum lögreglunni að vinna sín störf í faglegum friði“
Gagnsæi gagn­ist hryðju­verka­mönnum Páll Magn­ús­son segir afstöðu Katrínar Jak­obs­dóttur í meira lagi sér­kenni­lega. Mynd: Pressphotos

Páll Magn­ús­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir afstöðu Katrínar Jak­obs­dóttur, for­manns Vinstri grænna, til við­bún­aðar lög­reglu vera „í meira lagi sér­kenni­lega“. „Hún hefur komið fram hjá fleirum úr VG, og reyndar Pírötum líka, og hlýtur eig­in­lega að vera ein­hvers­konar úr sér gengið og öfug­snúið afsprengi þeirrar hug­myndar komm­ún­ista og anar­kista á síð­ustu öld, að lög­reglan sé í eðli sínu óvinur almenn­ings. Hún sé tæki auð­valds­ins til að kúga alþýð­una. Þessi tíma­skökku sjón­ar­mið komu reyndar fram með sér­lega ógeð­felldum hætti hjá sumum for­ystu­mönnum Vinstri grænna í Bús­á­halda­bylt­ing­unni þegar lög­reglan freist­aði þess að tryggja vinnu­frið Alþingis til lýð­ræð­is­legra athafna,“ skrifar Páll á Facebook-síðu sína um málið.  

Mikið hefur verið rætt um ákvörðun rík­is­lög­reglu­stjóra um auk­inn við­búnað sér­sveit­ar­innar á stórum mann­fögn­uðum í sumar sem felur meðal ann­ars í sér að lög­reglu­menn beri sýni­leg vopn. Haraldur Johann­es­sen, rík­is­lög­reglu­stjóri, segir að ákvörð­unin hafi verið tekin í kjöl­far nýlegra hryðju­verka­árása í Lundúnum. 

Katrín sagði í við­tali við RÚV að hún vildi opna umræðu um hvernig hryðju­verkaógn væri skil­greind og hvaða við­bún­aðar almenn­ingur á Íslandi megi vænta af hálfu lög­reglu. Páll segir hins vegar að engum myndi gagn­ast það gagn­sæi betur en hugs­an­legum hryðju­verka­mönnum. „Leyfum lög­regl­unni að vinna sín störf í fag­legum friði fyrir afdönk­uðum sjón­ar­miðum af þessu tagi,“ skrifar Páll.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Vopnaburður lögreglu

Lögreglumenn vilja rafbyssur: „Viljum tryggja það að borgararnir séu öruggir“
InnlentVopnaburður lögreglu

Lög­reglu­menn vilja raf­byssur: „Viljum tryggja það að borg­ar­arnir séu öruggir“

Lög­reglu­menn á Íslandi hafa lýst yfir vilja til þess að emb­ættið fái raf­byssur til afnota. Útköllum þar sem skot­vopn koma við sögu hefur fjölgað nokkuð á síð­ustu miss­erum. Dóms­mála­ráð­herra ætlar að funda með lands­sam­bandi lög­reglu­manna þar sem málið verður tekið fyrir. RÚV greinir frá þessu í dag. Jón Gunn­ars­son sagði í morg­un­út­varpi Rásar 2 í morgun að þró­unin væri ógn­væn­leg...

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár