Vopnaðir lögreglumenn á Múlakaffi: Engar reglur um vopnaburð í matarhléi

Daglegur stjórn­andi sér­sveit­ar­innar segir aðstæður í dag aðrar en í fyrra þegar vopn­aður lög­reglu­maður keypti sér sam­loku á veit­inga­staðnum Lemon.

Vopnaðir lögreglumenn á Múlakaffi: Engar reglur um vopnaburð í matarhléi
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Pressphotos.biz

Guð­mundur Ómar Þrá­ins­son, dag­legur stjórn­andi sér­sveit­ar­innar, segir kvöld­verð vopn­aðra lög­reglu­manna á Múla­kaffi í gær­kvöldi ekki sam­bæri­legan því þegar vopn­aður lög­reglu­maður keypti sér sam­loku á veit­inga­hús­inu Lemon á síð­asta ári, en það atvik var athugað sér­stak­lega af emb­ætti Rík­is­lög­reglu­stjóra. „Aðstæður nú eru aðrar en þær voru í fyrra og ekki sam­bæri­legar,“sagði Guð­mundur Ómar þegar Stundin spurði hvernig brugð­ist yrði við vopna­burði lög­reglu­mann­anna á Múla­kaffi.

Tveir lög­reglu­menn, vopn­aðir skamm­byssum, voru meðal mat­ar­gesta á Múla­kaffi í gær­kvöldi. Gestum var mörgum brugðið við vopna­burð­inn og sagði Guð­mundur Sig­urðs­son, gestur á Múla­kaffi, að nær­vera vopn­uðu lög­reglu­mann­anna hefði verið óþægi­leg og víg­bún­aður ætti  ekki heima á veit­inga­húsum. Þetta kemur fram í færslu sem Guð­mundur birti á Facebook.

Stundin fjall­aði í fyrra um vopn­aðan lög­reglu­mann sem keypti sér sam­loku á veit­inga­staðnum Lemon á Lauga­vegi í lok mars í fyrra. „Í til­felli sem þessu á sér­sveita­mað­ur­inn að skilja vopnið eftir í bílnum. Hér var um að ræða vopn­aðan sér­sveit­ar­mann en eins og menn þekkja er sér­sveitin vopnuð dags dag­lega,“ sagði Guð­mundur Ómar, stjórn­andi sér­sveit­ar­innar, þegar Stundin leit­aði svara vegna atviks­ins á Lemon. Þá sagði hann engar fastar reglur í gildi um vopna­burð sér­sveit­ar­manna í mat­ar­tímum.

Þegar Stundin leit­aði svara hjá Guðmundi Ómari vegna atviks­ins á Múla­kaffi nú og spurði hvort settar hefðu verið reglur um vopna­burð sér­sveit­ar­manna í mat­ar­tímum vís­aði hann til vopna­reglna lög­reglu frá 5. febr­úar 2015 og benti sér­stak­lega á ákvæði 31. greinar um vopna­burð.

Í ákvæð­inu segir að við lög­reglu­að­gerðir skulu lög­reglu­menn, sem vopn­aðir eru skot­vopnum, alla jafna vera ein­kenn­is­klæddir og bera vopn sýni­leg utan­klæða, nema verk­efnið sé þess eðlis að annað sé nauð­syn­legt við úrlausn þess. Ákvæðið tekur hins vegar ekki til vopna­burðar í mat­ar­tímum – eins og Guð­mundur benti sjálfur á í sam­tali við Stundina fyrir ári síðan.

Mikil umræða varð eftir að sér­sveit­ar­menn Rík­is­lög­reglu­stjóra gengu um vopn­aðir skot­vopnum í miðbæ Reykja­víkur á meðan fjöl­skyldu­há­tíðin Color Run fór fram um síð­ustu helgi. Í sam­tali við Stundina fyrr í þess­ari viku sagði Haraldur Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóri auk­inn fjölda erlendra borg­ara á Íslandi og mann­skæðar árásir í Evrópu að und­an­förnu á meðal þess sem hafi kallað á auk­inn vopna­burð lög­reglu. Haraldur sagði enn fremur ljóst að sami við­bún­aður yrði fyrir hendi á hátíð­ar­höld­unum vegna 17. júní á morgun og eins á tón­list­ar­há­tíð­inni Secret Solstice sem fram fer um helg­ina. Þá sé til skoð­unar að sér­sveitin ann­ist eft­ir­lit á Þjóð­há­tíð í Vest­manna­eyjum um versl­un­ar­manna­helg­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lögregla og valdstjórn

Lögreglan segir að gildandi lög hafi heft rannsókn á meintum ISIS-liða
FréttirLögregla og valdstjórn

Lög­reglan segir að gild­andi lög hafi heft rann­sókn á meintum ISIS-liða

Þrír menn voru hand­teknir 12. jan­úar síð­ast­lið­inn í umfangs­mik­illi lög­reglu­að­gerð á Akureyri. Tveimur var sleppt en sá þriðji, sem var grun­aður um aðild að ISIS-hryðju­verka­sam­tök­unum, var sendur úr landi ásamt fjöl­skyldu sinni. Lögregla hefur lítið tjáð sig um málið vegna rann­sókn­ar­hags­muna. Í svörum lög­reglu við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar er þess þó getið að lög­regla hafi ekki verið heim­i­ilt að nota allar upp­lýs­ing­arnar sem var miðlað til hennar við rann­sókn máls­ins vegna gild­andi lagaum­hverfis.
Helmingur yfirstjórnenda lögreglunnar fékk stöðuna án auglýsingar
FréttirLögregla og valdstjórn

Helm­ingur yfir­stjórn­enda lög­regl­unnar fékk stöð­una án aug­lýs­ingar

Ítrekað er vik­ist undan meg­in­regl­unni um aug­lýs­inga­skyldu þegar ráðið er í yfir­manns­stöður hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. „Eins og þið þekkið eru breyt­ingar og aug­lýs­ingar á yfir­manna­stöðum sér­stak­lega vel til þess fallnar að stuðla að óró­leika hjá emb­ætt­inu,“ sagði lög­reglu­stjóri í bréfi til starfs­manna. GRECO hefur gagn­rýnt verk­lagið.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár