Beitti piparúða í unglingateiti en biður um traust til að bera skotvopn

Óskar Þór Guð­munds­son lög­reglu­maður biður almenn­ing um traust og segir umræð­una um vopna­burð lög­regl­unnar á villi­götum. Sjálfur tók hann þátt í lög­reglu­að­gerð í fyrra þar sem piparúða var beitt gegn ung­mennum sem neit­uðu að yfir­gefa sam­kvæmi.

Beitti piparúða í unglingateiti en biður um traust til að bera skotvopn
Lögregla að störfum Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Pressphotos

Pistill Óskars Þórs Guð­munds­sonar, lög­reglu­manns á Nes­kaups­stað, um vopna­burð lög­reglu hefur vakið athygli í dag. Hann biður almenn­ing um að sýna lög­regl­unni traust til að bera skot­vopn og segir umræð­una um auk­inn vopna­burð lög­regl­unnar á villi­götum. Óskar Þór tók sjálfur þátt í lög­reglu­að­gerð fyrir um ári síðan þar sem piparúða var meðal ann­ars beitt gegn ungu fólki á aldr­inum 17 til 18 ára. 

Þrjú ungmenni leituðu á sjúkrahús vegna lögreglu

RÚV greindi frá því í maí á síð­asta ári að mikil reiði væri á Nes­kaup­stað vegna harka­legrar lög­reglu­að­gerðar sem beind­ist gegn ungu fólki. Þrír hafi leitað á sjúkra­hús eftir aðgerð­irnar. Nokkur ung­menni höfðu tekið Blúskjall­ar­ann á Nes­kaup­stað á leigu undir gleð­skap fyrir og eftir árs­há­tíð­ar­ball Verk­mennta­skóla Aust­ur­lands. Eftir að ball­inu lauk fékk lög­reglan til­kynn­ingu um að ung­lingar sætu að drykkju í kjall­ar­anum. Í frétt RÚV er haft eftir Elís Ármanns­syni, nema í verk­mennta­skól­anum, að lög­reglan hafi vaðið inn í einka­sam­kvæmið og skipað öllum að fara út. Þeir sem væru orðnir 18 ára hafi mót­mælt og talið sig mega skemmta sér þar í friði enda sam­kvæmið frið­sam­legt. 

„Þá dregur lög­reglu­maður upp pipar­úð­ann og sprautar yfir fólk án þess að kalla mace.“

„Það er einn strákur sem er að segja við lög­reglu­mann að hann hafi sinn rétt til að vera þarna því hann væri orð­inn 18 ára. Lög­reglu­mað­ur­inn kemur og ýtir í hann og hann seg­ist ætla að kæra hann fyrir ofbeldi. Þá tekur hann hend­ina fyrir aftan bak og grýtir honum utan í vegg. Þar áður voru þeir búnir að kalla að ef við ætl­uðum ekki að fá sekt fyrir að hlýða ekki lög­reglu þá skyldum við drulla okkur út. Þegar hann grýtti honum utan í vegg­inn voru félagar hans ekki sáttir við það og fóru að mót­mæla þessu. Spurðu: „Hvað í fokk­anum ertu að gera?“ Þá dregur lög­reglu­maður upp pipar­úð­ann og sprautar yfir fólk án þess að kalla mace,“ sagði Elís meðal ann­ars. 

Á meðal þeirra sem hafi fengið piparúða í and­litið hafi verið 17 ára stúlka sem hafi ekki verið að gera neitt. Þrír leit­uðu á Fjórð­ungs­sjúkra­húsið í Nes­kaup­stað eftir að hafa fengið piparúða í augun.

Óskar Þór var einn þriggja lög­reglu­manna sem tóku þátt í aðgerð­inni. Hann sagði í sam­tali við RÚV að ung­lingar allt niður í 16 ára hafi reynst vera að drekka, eng­inn hafi við­ur­kennt að vera hús­ráð­andi og lög­regla hafi árang­urs­laust í 15 mín­útur reynt að rýma svæðið með góðu. Þá segir hann ung­menni á staðnum hafa gert aðsúg að lög­reglu þegar einn piltur hafi verið hand­tek­inn og að ekk­ert annað hafi verið í stöð­unni en að beita piparúða.

Segir ítrekað vegið að starfsheiðri lögreglu

Óskar Þór hefur áður blandað sér í umræð­una um vopna­burð lög­reglu, en árið 2014 skrif­aði hann pistil um málið á Facebook, og fjallað var um á Vísi, þar sem hann biður fólk um að treysta sér – allar hans ákvarð­anir séu og verði alltaf teknar með hag­muni og vel­ferð ann­arra í húfi. 

Óskar Þór Guð­munds­son

Í pistli sem Óskar Þór birti á Facebook-síðu sinni í gær gagn­rýnir hann þá umræðu sem hefur orðið í sam­fé­lag­inu í kjöl­far ákvörð­unar rík­is­lög­reglu­stjóra að sér­sveita­menn beri vopn á fjöl­mennum manna­mótum í sumar. „Sumir hafa bein­línis sagt að lög­reglu­maður með skot­vopn sé stór­hættu­legur almennum borg­urum og tals­verðar líkur séu á því að menn bara missi stjórn á skapi sínu og skjóti almenna borg­ara í gríð og erg. Þessi komment eru afsprengi þess að við búum í opnu sam­fé­lagi þar sem allir hafa rétt á að tjá sig hversu mál­efna­leg sú tján­ing er og allir geta tjáð sig um mál­efni sem þeir hafa litla eða enga þekk­ingu á,“ skrifar Óskar Þór meðal ann­ars. Hann segir ekki fara mikið fyrir rök­ræðum í þessum hópi, aðeins upp­hróp­anir og skít­kast út í stétt lög­reglu­manna sem hefur það vanda­sama verk með höndum að gæta öryggis þessa sama fólks. 

„Ekki hefur lög­reglan á Íslandi for­virkar rann­sókn­ar­heim­ildir eins og lög­regla í öllum löndum í kringum okkur.“

„Kannanir sem hafa verið gerðar sýna að mjög mik­ill meiri­hluti þjóð­ar­innar stendur á bak við lög­regl­una og hefur skiln­ing á því að þessar aðgerðir eru nauð­syn­legar í þeirri við­leitni að tryggja öryggi borg­ar­anna og gera lög­regl­una betur í stakk búna til að bregð­ast við ef „skít­ur­inn fer í vift­una“. Ekki hefur lög­reglan á Íslandi for­virkar rann­sókn­ar­heim­ildir eins og lög­regla í öllum löndum í kringum okkur og því ólík­legra að það tak­ist að upp­lýsa og koma í veg fyrir ódæð­is­verk áður en þau verða framin,“ skrifar Óskar Þór enn­fremur og biður fólk um að vanda sig í þess­ari umræðu, því flestum lög­reglu­mönnum sárni þegar vegið sé ítrekað að starfs­heiðri þeirra og þeir úthróp­aðir sem ótýndir glæpa­menn.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Vopnaburður lögreglu

Lögreglumenn vilja rafbyssur: „Viljum tryggja það að borgararnir séu öruggir“
InnlentVopnaburður lögreglu

Lög­reglu­menn vilja raf­byssur: „Viljum tryggja það að borg­ar­arnir séu öruggir“

Lög­reglu­menn á Íslandi hafa lýst yfir vilja til þess að emb­ættið fái raf­byssur til afnota. Útköllum þar sem skot­vopn koma við sögu hefur fjölgað nokkuð á síð­ustu miss­erum. Dóms­mála­ráð­herra ætlar að funda með lands­sam­bandi lög­reglu­manna þar sem málið verður tekið fyrir. RÚV greinir frá þessu í dag. Jón Gunn­ars­son sagði í morg­un­út­varpi Rásar 2 í morgun að þró­unin væri ógn­væn­leg...

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár