Óvissa um brottvísun hælisleitenda til Ítalíu

„Mér finnst ómann­úð­legt að láta fólk bíða með þeim hætti sem gert er,“ segir Katrín Odds­dóttir hér­aðs­dóms­lög­maður. Ólöf Nordal inn­an­ríkis­ráð­herra hefur sagt að ekki sé öruggt að senda hælis­leit­endur til Ítalíu á grund­velli Dyfl­innar­reglu­gerð­ar­innar, en dóm­stólar og Útlend­inga­stofnun halda áfram að mæla fyrir um end­ur­send­ingar þangað.

Óvissa um brottvísun hælisleitenda til Ítalíu
Vill ekki end­ur­send­ingar Ólöf Nordal er ráð­herra hæl­is­leit­enda­mála. Hún telur ekki óhætt að senda fólk til Grikk­lands, Ítalíu og Ung­verja­lands.

Enn hefur engin stjórn­valds­á­kvörðun verið tekin um að hætta end­ur­send­ingum hæl­is­leit­enda til Ítalíu og Ung­verja­lands á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar. Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra lýsti því yfir úr ræðu­stól Alþingis þann 17. sept­em­ber síð­ast­lið­inn að ekki væri öruggt að senda hæl­is­leit­endur til Grikk­lands, Ítalíu og Ung­verja­lands. Hæl­is­leit­endur, sem áður máttu búast við því að verða senda til Ítalíu sam­kvæmt dómi, bíða enn í óvissu um hvað tekur við.

Árið 2010 ákvað dóms­mála- og mann­réttinda­ráð­herra að stöðva, með form­legum hætti, end­ur­send­ingar hæl­is­leit­enda til Grikk­lands á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar. Þrátt fyrir yfir­lýs­ingar Ólafar á Alþingi hefur engin sams konar ákvörðun verið tekin um þá hæl­is­leit­endur sem sótt hafa um hæli á Ítalíu og í Ung­verja­landi og eru á ábyrgð þeirra ríkja sam­kvæmt Dyfl­inn­ar­sam­komu­lag­inu. Þá hafa dóm­stólar og Útlend­inga­stofnun haldið áfram að úrskurða um end­ur­send­ingar til Ítalíu.

Vinnan „vel á veg komin“

Stundin sendi inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu fyr­ir­spurn þann 14. októ­ber og spurði hvort til stæði að hætta end­ur­send­ingum til Ítalíu og Ung­verja­lands og hvernig brugð­ist yrði við í málum þar sem úrskurðað hefur verið um slíkar 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár