Össur bað innflytjendur um atkvæði – notaði ráðherranetfangið

Kvenna­blaðið birtir tölvu­póst sem Össur sendi inn­flytj­anda í próf­kjör­unum árið 2012 og und­ir­rit­aði sem utan­rík­is­ráð­herra Íslands. Sagður hafa beðið erlenda rík­is­borg­ara í erf­iðri stöðu um að kjósa sig.

Össur bað innflytjendur um atkvæði – notaði ráðherranetfangið

Össur Skarp­héð­ins­son nýtti sér tölvu­póst­fang utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins til smöl­unar í próf­kjöri Sam­fylk­ing­ar­innar árið 2012. Kvenna­blaðið hefur birt tölvu­póst sem Össur sendi ein­stak­lingi af erlendum upp­runa frá net­fangi sínu úr ráðu­neyt­inu. Þar óskar Össur eftir stuðn­ingi manns­ins í próf­kjöri og und­ir­ritar póst­inn sem utan­rík­is­ráð­herra Íslands. 

Að því er fram kemur í frétt Atla Þórs Fanndals blaða­manns á vef Kvenna­blaðs­ins eru dæmi um fleiri sam­bæri­leg bréf, meðal ann­ars póstur til hóps manna af afrískum upp­runa sem allir voru í flók­inni stöðu varð­andi leyfi til búsetu og atvinnu hér á landi. 

Stundin greindi frá því í gær­kvöldi að á annað hund­rað inn­flytj­enda hefði verið skráð á svo­kall­aðan stuðn­ings­manna­lista Sam­fylk­ing­ar­innar vegna próf­kjara flokks­ins í Reykja­vík sem nú standa yfir. Þetta er um fimmt­ungur þeirra sem skráðir eru á lista „skráðra stuðn­ings­manna“ flokks­ins, þeirra sem ekki eru félags­menn en vilja geta kosið í próf­kjörum. Um er að ræða fjölda fólks frá Austur-Evrópu, Afríku og Mið­aust­ur­löndum, þar á meðal fólk sem kom til Íslands sem hæl­is­leit­endur. 

Svanur Kristjánsson
Svanur Krist­jáns­son stjórn­mála­fræð­ingur

Eftir að frétt Stund­ar­innar birt­ist fór af stað fjörug umræða á sam­fé­lags­miðlum. Svanur Krist­jáns­son stjórn­mála­fræð­ingur sak­aði Össur um að hafa smalað nýbúum og flótta­fólki á stuðn­ings­manna­lista Sam­fylk­ing­ar­innar til að fá atkvæði þeirra í próf­kjöri. 

Helga Vala Helga­dóttir, lög­maður og fyrr­ver­andi for­maður Félags Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík, sagði í sam­tali við Stundina í morgun að þegar hún kom að próf­kjöri flokks­ins fyrir fjórum árum hafi hún orðið vitni að því þegar nokkur fjöldi erlendra borg­ara stað­festi við túlk að þeim hefði verið lof­aður rík­is­borg­ara­réttur gegn því að kjósa Össur Skarp­héð­ins­son í próf­kjöri Sam­fylk­ing­ar­innar. „Ég er ekki að segja að hann hafi lofað því per­sónu­lega, en það gerði það að minnsta kosti ein­hver sem vildi veg hans vel í því próf­kjöri,“ segir hún. Fleiri við­mæl­endur stað­festa þetta í sam­tölum við Stundina. 

Nú hefur Kvenna­blaðið birt tölvu­póst sem bendir til þess að málið sé mun alvar­legra en áður var talið. Tölvu­póst­inn má sjá hér að neðan: 

Í frétt Kvenna­blaðs­ins segir meðal ann­ars: 

Sam­fylk­ingin hefur um nokk­urt bil lagt áherslu á að ná til inn­flytj­enda, og fólks sem vill setj­ast hér að, í von um að virkja þátt­töku fólks. Saga próf­kjara Sam­fylk­ing­ar­innar vekja þó spurn­ingar um hvort hér sé um að ræða raun­veru­legan vilja til þátt­töku eða mis­notkun á aðstöðumun þing­manns, og árið 2012 ráð­herra, og svo ein­stak­linga með veika félags­lega- og laga­lega stöðu hér á landi.

Þá kemur eft­ir­far­andi fram:

Samkvæmt heim­ildum Kvenna­blaðs­ins var mönn­unum sem Össur sendi tölvu­póst úr póst­fangi ráðu­neyt­is­ins gefið lof­orð um aðstoð vegna aðstæðna sinna. Þá sést á póst­inum að Össur gefur þeim upp sím­ann sinn og segir þeim vel­komið að hringja í hann. Í bréf­inu má finna far­síma Össurar ásamt far­síma Hrafns Jök­uls­sonar. Þá skrifar Össur undir sem utan­rík­is­ráð­herra.

Flestir voru menn­irnir voru í við­kvæmri stöðu þegar sam­skiptin áttu sér stað og biðu úrlausna. Heim­ilda­maður Kvenna­blaðs­ins hefur stað­fest að sam­skipt­unum fylgdu vil­yrði um aðstoð vegna stöðu þeirra. Óánægja kom upp meðal mann­anna vegna máls­ins þegar aðili með tengsl inn í hóp­inn útskýrði fyrir mönn­unum að utan­rík­is­ráð­herra hefði ekki beint vald yfir því hverjir fá vernd hér á landi eða rík­is­borg­ara­rétt. Heim­ilda­maður Kvenna­blaðs­ins sem átti í sam­skiptum við menn­ina segir alveg ljóst að hér hafi aðstöðu­munur verið nýttur Össuri í hag. Kvenna­blaðið hefur undir höndum tölvu­póst­sam­skipti við þá menn fyrir hönd Össurar.

Stundin hefur gert árang­urs­lausar til­raunir til að ná tali af Össuri í dag, bæði í gsm-síma, með tölvu­pósti og á Facebook. Í frétt Vísis.is um málið kemur fram að hann vísi ásök­unum Helgu Völu á bug í Facebook-skila­boðum til blaða­manns. „Að sjálf­sögðu ekki. Ég hef engum manni lofað slíku, hvorki víetnömskum né öðrum, og minn­ist þess ekki að hafa talað við mann af víetnömskum upp­runa frá því 10 flótta­menn bjuggu á hæð­inni fyrir neðan mig á Holts­göt­unni,“ er haft eftir Össuri sem bendir á að sömu ásak­anir hafi komið upp fyrir fjórum árum. „Af hverju ætti að þurfa stjórn­mála­mann til að gera víetnama að rík­is­borg­ara? Hafi þeir dval­ar­leyfi hér á landi njóta þeir allra rétt­inda, og geta orðið rík­is­borg­arar einsog aðrir eftur til­tekna dvöl sk. ein­földum reglum.“

Ekki náð­ist í Oddnýju G. Harð­ar­dóttur, for­mann Sam­fylk­ing­ar­innar, við vinnslu frétt­ar­innar. 

Óskar Steinn Jónínu- og Ómarsson, rit­ari Sam­fylk­ing­ar­innar, birti hins vegar Facebook-færslu skömmu áður en Kvenna­blaðið og Stundin fjöll­uðu um málið. Þar skrifar hann:

„Í dag hafa komið fram ásak­anir um að inn­flytj­endum hafi verið lofað rík­is­borg­ara­rétti gegn því að kjósa til­tek­inn fram­bjóð­anda í próf­kjöri Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík fyrir Alþing­is­kosn­ing­arnar 2013. Eins og flestum öðrum er mér veru­lega brugðið vegna þess­ara ásak­ana. Að mis­nota fólk í við­kvæmri stöðu með þessum hætti er full­kom­lega sið­laust og það eru vinnu­brögð sem eiga ekki að líð­ast í neinum stjórn­mála­flokki. Því mun ég fara fram á það í stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar að þetta mál verði rann­sakað ofan í kjöl­inn og sann­leik­ur­inn í mál­inu dreg­inn upp á yfir­borðið. Séu ásak­an­irnar á rökum reistar verður að grípa til aðgerða til að svona lagað komi ekki fyrir aftur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár