Óréttmætt að víkja Gunnari frá störfum vegna LÖKE-máls

Sér­skipuð nefnd telur að brotið hafi verið á lög­reglu­mann­inum

Óréttmætt að víkja Gunnari frá störfum vegna LÖKE-máls
Gunnar Scheving lög­reglu­maður

Stefán Eiríks­son fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu mátti ekki leysa Gunnar Scheving Thor­steins­son lög­reglu­þjón frá störfum vegna LÖKE-máls­ins. Þetta er álit nefndar sem skipuð er á grund­velli 27. gr. laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins og rann­sakar mál emb­ætt­is­manna sem vikið er frá störfum um stund­ar­sakir. Eftir því sem Stundin kemst næst er þetta í fyrsta sinn sem nefndin úrskurðar með þessum hætti um mál­efni lög­reglu­manns.

Stundin hefur álits­gerð­ina undir höndum. Þar kemur fram að sú hátt­semi sem Gunnar Scheving var grun­aður um hafi ekki verið full­nægj­andi grund­völlur fyrir frá­vikn­ingu. Kristín Bene­dikts­dóttir, for­maður nefnd­ar­innar, og Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir skrifa undir álitið, en einn nefnd­ar­maður, Helgi Valberg Jensson, var á önd­verðum meiði við þær og skil­aði sér­á­liti. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

LÖKE-málið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár