Alda Hrönn stígur til hliðar vegna LÖKE-málsins: Sökuð um misbeitingu lögregluvalds

Aðal­lög­fræð­ingur lög­regl­unnar hefur stigið til hliðar vegna rann­sóknar setts hér­aðassak­sókn­ara.

Alda Hrönn stígur til hliðar vegna LÖKE-málsins: Sökuð um misbeitingu lögregluvalds

Alda Hrönn Jóhanns­dóttir, aðal­lög­fræð­ingur lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, hefur stigið til hliðar eftir að settur hér­aðs­sak­sókn­ari hóf rann­sókn á störfum hennar í LÖKE-mál­inu svo­nefnda. Henni er gefið að sök að hafa mis­beitt lög­reglu­valdi við rann­sókn máls­ins.

Lög­reglan greindi frá því í frétta­til­kynn­ingu í dag að starfs­maður hefði stigið til hliðar vegna rann­sóknar. Samkvæmt upp­lýs­ingum Stund­ar­innar er umræddur starfs­maður Alda Hrönn, aðal­lög­fræð­ingur emb­ætt­is­ins, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­lög­reglu­stjóri og nán­asta sam­starfs­kona Sigríðar Bjarkar Guð­jóns­dóttur lög­reglu­stjóra. 

Uppfært kl. 17:20:

Alda Hrönn hefur sent út eft­ir­far­andi frétta­til­kynn­ingu:

Ég vísa alfarið á bug þeim ásök­unum sem eru til­efni rann­sókn­ar­innar. Sú aðkoma sem ég hafði að umræddu máli féll undir starfs­skyldur mínar í mínu fyrra starfi. Rann­sóknir á ætl­uðum brotum lög­reglu­manna í starfi voru á þessum tíma, lögum sam­kvæmt, á for­ræði Rík­is­sak­sókn­ara og það var einnig í þessu máli. Embætti Rík­is­sak­sókn­ara óskaði eftir aðstoð emb­ættis Lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum við með­ferð máls­ins og það voru lög­reglu­menn þess emb­ættis sem önn­uð­ust rann­sókn­ina. Ég kom ein­göngu að umræddu máli sem lög­lærður full­trúi. Rannsókn máls­ins leiddi til þess að emb­ætti Rík­is­sak­sókn­ara höfð­aði saka­mál á hendur lög­reglu­mann­inum sem lauk með því að Hæsti­réttur Íslands sak­felldi hann fyrir brot í starfi.

Lög­bundin þagn­ar­skylda kemur í veg fyrir að ég geti tjáð mig frekar um efn­is­at­riði máls­ins. Ég get hins vegar upp­lýst að ég rækti starfs­skyldur mínar af fyllstu fag­mennsku og í sam­ræmi við með­ferð slíkra mála.

Ég hef skiln­ing á að fólk leiti réttar síns finn­ist því á sér brotið. Á hinn bóg­inn þykir mér hart að sæta rann­sókn fyrir það eitt að sinna starfi mínu í sam­ræmi við starfs­skyldur mínar.

Ég vona að rann­sókn þess­ari ljúki hið fyrsta og trúi stað­fast­lega að hún muni leiða hið sanna í ljós og hreinsa mig af öllum ásök­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lögregla og valdstjórn

FréttirLögregla og valdstjórn

Lög­reglan segir að gild­andi lög hafi heft rann­sókn á meintum ISIS-liða

Þrír menn voru hand­teknir 12. jan­úar síð­ast­lið­inn í umfangs­mik­illi lög­reglu­að­gerð á Akureyri. Tveimur var sleppt en sá þriðji, sem var grun­aður um aðild að ISIS-hryðju­verka­sam­tök­unum, var sendur úr landi ásamt fjöl­skyldu sinni. Lögregla hefur lítið tjáð sig um málið vegna rann­sókn­ar­hags­muna. Í svörum lög­reglu við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar er þess þó getið að lög­regla hafi ekki verið heim­i­ilt að nota allar upp­lýs­ing­arnar sem var miðlað til hennar við rann­sókn máls­ins vegna gild­andi lagaum­hverfis.
FréttirLögregla og valdstjórn

Helm­ingur yfir­stjórn­enda lög­regl­unnar fékk stöð­una án aug­lýs­ingar

Ítrekað er vik­ist undan meg­in­regl­unni um aug­lýs­inga­skyldu þegar ráðið er í yfir­manns­stöður hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. „Eins og þið þekkið eru breyt­ingar og aug­lýs­ingar á yfir­manna­stöðum sér­stak­lega vel til þess fallnar að stuðla að óró­leika hjá emb­ætt­inu,“ sagði lög­reglu­stjóri í bréfi til starfs­manna. GRECO hefur gagn­rýnt verk­lagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár