Norskur bæjarstjóri stöðvaði slagsmál íslensks skipstjóra

Íslenskir skip­verjar lentu í áflogum við bar­þjón og hót­el­eig­anda í Gamvik í Norður-Noregi. Kapp­ræður leið­toga stjórn­mála­flokka hér­aðs­ins fóru fram á hót­el­inu á sama tíma og stöðv­uðu stjórn­mála­konur ber­serks­gang Íslend­ing­anna.

Norskur bæjarstjóri stöðvaði slagsmál íslensks skipstjóra
Bæj­ar­stjóri Gamvik Inga Manndal hringdi í lög­regl­una vegna sjó­mann­anna. Henni blöskrar hve lengi lög­reglan var á leið­inni.

„Þetta var mjög ógn­andi og óþægi­legt. Ég hélt að þeir myndu drepa þann sem vann þarna. Þeir duttu bak við bar­inn, þar sem gler brotn­aði og prent­ari var rif­inn niður. Algjört villta vestur.“ Svo lýsir odd­viti íhalds­flokks­ins Höjre í Gamvik í Noregi, Nina Eilert­sen, áflogum íslenskra sjó­manna við starfs­menn á hót­eli þar í bær. Samkvæmt frétt mið­ils­ins iFinn­mark réð­ust íslenskir sjó­menn á bar­þjón sem og eig­anda hót­els­ins Mehamn Arctic hot­ell síð­asta þriðju­dag um tíu­leytið.

Stundin hefur heim­ildir fyrir því að þarna sé um að ræða íslenskan skip­stjóra, ásamt öðrum áhafn­ar­með­limum, á smá­bát sem gerður er út í Norður-Noregi. Nokkur fjöldi íslenskra sjó­manna gerir út í Gamvik sem er nyrsta ver­stöð Noregs. „Norðmenn eru bara svo óvanir svona lögðu,“ segir einn þeirra sjó­manna sem gerir út í Gamvik sem Stundin ræddi við. Hann vildi gera lítið úr slags­málum sjó­mann­anna.  

„Ef þessar konur hefðu ekki skorist í leik­inn þá hefði getað farið mjög illa.“

Oddviti reyndi að stöðva slagsmálin

Svo vildi til að á sama tíma og íslensku sjó­menn­irnir gengu ber­serks­gang fóru fram kapp­ræður leið­toga stjórn­mála­flokka hér­aðs­ins á hót­el­inu. Þar á meðal voru odd­vitar helstu flokka, sem og bæj­ar­stjóri Gamvik, Inga Manndal. Sveita­stjórn­ar­kosn­ingar fara fram í dag í Noregi. Fyrr­nefnd Nina reyndi sjálf að stöðva slags­málin á meðan Inga bæj­ar­stjóri hringdi í neyð­ar­lín­una.

Í frétt iFinn­mark gagn­rýnir Inga sér­stak­lega við­brögð lög­reglu sem kom ekki fyrr en 40 mín­útum eftir að hringt var eftir aðstoð. Þá höfðu íslensku sjó­menn­irnir flúið af vett­vangi. „Ef þessar konur hefðu ekki skorist í leik­inn þá hefði getað farið mjög illa,“ segir Inga í sam­tali við iFinn­mark.

Kveikti í sígarettu innandyra

Eigandi Arctic Hotell, Oddvar Jensen, segir að fokið hafi í  Íslend­ing­ana þegar þeim var neitað um afgreiðslu. Að sögn Oddvars urðu sjó­menn­irnir sér úti um áfengi fyrir utan hót­elið. „Bar­þjón­inn bað þá um að fara en í stað þess kveikti einn þeirra sér í sígar­ettu. Þegar bar­þjón­inn brást við því þá var hann sleg­inn niður,“ segir Oddvar í sam­tali við iFinn­mark. Hann seg­ist aldrei hafa upp­lifað annað eins á þeim fimmtán árum sem hann hefur starfað við hót­el­rekstur.

Skjáskot af kappræðum
Skjáskot af kapp­ræðum Hér má sjá Ninu Eilert­sen stuttu áður en hún reyndi að stöðva árás sjó­mann­anna.
 

Baðst afsökunar

Í sam­tali við Stundina segir Nina Eilert­sen að sjó­menn­irnir hafi verið um fimm tals­ins. Nina segir að íslensku sjó­menn­irnir hafi ekki allir verið slags­mála­hundar og hafi einn þeirra reynt að stöðva áflogin ásamt norsku stjórn­mála­mönn­unum. „Ég tal­aði við einn þeirra áður en slags­málin hófust og var hann mjög jákvæður gagn­vart bænum. Hann sagð­ist hafa verið í bænum í um mánuð og hann tal­aði vel um hann. Hann reyndi að stöðva slags­málin,“ segir Nina.

Odd­vit­inn bætir við að einn skip­verj­inn hafi hringt í sig síð­ast­lið­inn föstu­dag og beðist afsök­unar á hegðun sinni. „Ég held að þegar þeir komu heim til sín og það rann af þeim ölæðið hafi þeim öllum liðið illa og skamm­ast sín. Ég var ánægð með að hann vildi biðj­ast afsök­unar. Vonandi ger­ist þetta ekki aftur,“ segir Nina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár