Níðingarnir á Núpi

Reynir Trausta­son skrifar bóka­dóm um Útlaga Jóns Gnarr. „Útlaginn er ágæt bók ef litið er fram­hjá því að mörkin á milli skáld­skapar og raun­veru­leika eru horfin.“

Níðingarnir á Núpi

Þrjár stjörnur
Útlaginn
Jón Gnarr
Útgef­andi: Mál og menn­ing
384 blað­síður

Útlaginn er þriðja bókin í sagna­flokki Jóns Gnarr um æsku og ung­lingsár. Fyrri bæk­urnar voru Indíán­inn og Sjó­ræn­ing­inn. Bókin er að mörgu leyti frá­bær en sum­part síðri. Helsti galli hennar er sá að mörkin á milli skáld­skapar, ímynd­unar og stað­reynda hverfa. Það ægir saman til­búnum per­sónum og fólki af holdi og blóði sem sumt þarf að sitja undir þungum ásök­unum. Sum nöfn eru raun­veru­leg en önnur skálduð. Þótt Útlaginn sé kynnt sem skáldævi­saga hefur í kynn­ingu á bók­inni verið byggt á því að lýst sé nöprum veru­leika. Les­and­inn á þess enga mögu­leika að átta sig á því hvað er satt og hvað skáldað. 

Nauðgarar á Núpi

Hér­aðs­skól­inn að Núpi í Dýra­firði er að mestu leyti sögu­sviðið. Í bók­inni eru lýs­ingar frá náms­árum Jóns á þessum ein­angr­uðu slóðum á Vest­fjörðum. Talsvert er um ein­elti sem Jón lýsir en sver að mestu af sér beina þátt­töku en er ævin­lega nálægur. Þá hæð­ist Jón að kenn­urum og segir þá alla vera rétt­inda­lausa. Allt er þetta þó fremur sak­leys­is­legt í sam­an­burði við þær ásak­anir sem settar eru fram í bók­inni um að hópur drengja hafi haft sam­farir við stúlku sem kölluð er Lena. Þetta hét í frá­sögn­inni að ríða henni til ham­ingju með afmælið. Í frá­sögn Frétta­blaðs­ins var atvik­inu lýst sem hópnauðgun og skáld­aða ævi­sagan notuð sem óyggj­andi heim­ild um þá villi­mennsku sem hefði við­gengst á Núpi. Eftir stendur að nokkrir skóla­bræður Jóns eru þá nauð­garar og Lena fórn­ar­lamb. En vand­inn er sá að 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár