Morgunblaðinu frídreift með frétt af fylgistapi Guðna á forsíðu

Guðni Th. Jóhann­es­son tapar 12 pró­sentu­stigum í fylgi milli kann­ana Morg­un­blaðs­ins. Blaðinu er frídreift í annað skiptið á nokkrum dögum. Stjórn­ar­maður útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins er í kosn­ingateymi Davíðs Odds­sonar, for­seta­fram­bjóð­anda og rit­stjóra blaðs­ins.

Morgunblaðinu frídreift með frétt af fylgistapi Guðna á forsíðu
Guðni Th. Jóhann­es­son Hefur mælst með lang­mestan stuðn­ing allra for­seta­fram­bjóð­enda. Mynd: Pressphotos

Morg­un­blað­inu er dreift frítt inn á heim­ili lands­manna með for­síðu­frétt um fylgis­tap helsta and­stæð­ings rit­stjóra blaðs­ins. 

Þetta er í annað skiptið á fjórum dögum sem blað­inu er dreift frítt, en á þriðju­dag var blað­inu frídreift á heim­ili lands­manna með fréttum um gömul ummæli Guðna Th. Jóhann­es­sonar sagn­fræð­ings og nafn­lausan slúð­ur­dálk um ósann­indi hans og svo nafn­lausan leið­ara með harðri gagn­rýni á hann.

Morg­un­blaðið er áskrift­ar­blað, sem þýðir að les­endur greiða fyrir að fá blaðið sent heim. Þó kemur fyrir að blað­inu sé frídreift. Á þriðju­dag var blað­inu hins vegar dreift frítt með umfjöllun um gömul ummæli Guðna úr fyr­ir­lestri í Háskól­anum á Bifröst, þar sem hann not­aði orða­lagið „fávís lýð­ur­inn“ yfir sköpun goð­sagna um þorska­stríðið.

Guðni með 55% stuðning

Morgunblaðið í dag
Morg­un­blaðið í dag Blaðinu er dreift frítt á heim­ili lands­manna með for­síðu­frétt um fylgis­tap helsta and­stæð­ings rit­stjóra blaðs­ins.

„Guðni missir fylgi“ er fyr­ir­sögnin á for­síðu blaðs­ins í dag. Þar er fjallað um að sam­kvæmt könn­unum sem Félags­vís­inda­stofnun hefur unnið fyrir Morg­un­blaðið hefur Guðni misst 12 pró­sentu­stig í stuðn­ingi fyrir for­seta­kosn­ing­arnar 25. júní næst­kom­andi. Davíð Oddsson, rit­stjóri blaðs­ins, hefur hins vegar bætt við sig 2,3 pró­sentu­stigum frá síð­ustu könnun sem fram­kvæmd var 12. og 13. maí. Samkvæmt könn­un­inni nú er Guðni með 55% stuðn­ing, Davíð tæp­lega 20%, Andri Snær Magnason 12% og Halla Tóm­as­dótt­irt tæp 10%.

Stjórnarmaður útgáfufélagsins í kosningateymi

Frið­björn Orri Ket­ils­son, stjórn­ar­maður í Árvakri, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins, er í kosn­ingateymi Davíðs Odds­sonar, ásamt blaða­manni blaðs­ins. Frið­björn neit­aði að stað­festa aðkomu sína að kosn­inga­bar­átt­unni í sam­tali við Stundina í maí. „Ég tjái mig ekk­ert um það,“ sagði hann.

Davíð Oddsson var ráð­inn rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins af eig­enda­hóp blaðs­ins, sem er sam­settur af helstu útgerð­ar­mönnum Íslands, árið 2009 eftir að hafa verið sagt upp störfum sem for­maður banka­stjórnar Seðla­banka Íslands í kjöl­far banka­hruns­ins. Talið er að minnst þriðj­ungur áskrif­enda blaðs­ins hafi sagt upp áskrift í kjöl­farið. 

Davíð er í sum­ar­leyfi sem rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins á meðan hann freistar þess að verða kjör­inn for­seti Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2016

Saga af tveimur forsetum: Helgi fokking Björns. Og hnykkurinn
Karl Th. Birgisson
Skoðun

Karl Th. Birgisson

Saga af tveimur for­setum: Helgi fokk­ing Björns. Og hnykk­ur­inn

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur flutt um 35 ræður og erindi frá því hann varð for­seti. Hann hefur notað þau í að kveða niður þjóð­rembu og forð­að­ist meðal ann­ars upp­hafn­ingu þjóð­kirkj­unnar. Hann sker sig frá Ólafi Ragnari Gríms­syni, sem í kosn­inga­bar­áttu sinni 1996 hafði sem ein­kenn­islag „Sjá dagar koma“ eftir Davíð Stef­áns­son, þar sem alda­löngum þrautum Íslend­inga er lýst.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár