Rússneskar herþotur minni Íslendinga á mikilvægi þjóðaröryggisstefnu og fullveldis

Lilja Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra benti á að rúss­neskar her­flug­vélar hefðu flogið undir íslenskri far­þega­þotu í vik­unni: „Nýsam­þykkt lög um þjóðar­ör­ygg­is­ráð og -stefnu eru ekki upp á punt, heldur snú­ast um raun­veru­leg mál sem varða full­veldi Íslands og öryggi almenn­ings.“

Rússneskar herþotur minni Íslendinga á mikilvægi þjóðaröryggisstefnu og fullveldis

Lilja D. Alfreðs­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra og þing­fram­bjóð­andi Fram­sókn­ar­flokks­ins, var frum­mæl­andi flokks­ins á eld­hús­dags­um­ræð­unum á Alþingi í kvöld. Hvorki Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður flokks­ins, né Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­sæt­is­ráð­herra, héldu ræðu.

Lilja vakti athygli á því í ræðu sinni að rúss­neskar her­flug­vélar hefðu flogið undir íslenskri far­þega­þotu á leið til Stokk­hólms í síð­ustu viku. Vélarnar hefðu ekki látið vita af sér og flogið án auð­kennis.

„Þótt ekki hafi verið um að ræða brot á alþjóða­lögum minna atvik af þessu tagi okkur á að þótt við búum á eyju er Ísland svo sann­ar­lega ekki eyland þegar kemur að örygg­is­málum,“ sagði Lilja og bætti við: „Atvik af þessu tagi stað­festa, að vera okkar í Atl­ants­hafs­banda­lag­inu með til­heyr­andi eft­ir­liti og vöktun er ekki aðeins skyn­sam­leg heldur nauð­syn­leg.“ Þá sagði hún að nýsam­þykkt lög um þjóðar­ör­ygg­is­ráð og þjóðar­ör­ygg­is­stefnu væru ekki upp á punt, heldur sner­ust um full­veldi Íslands og öryggi almenn­ings.

Í ræðu sinni nefndi Lilja að fyrir átta árum hefði „íslenska efna­hags­rútan“ keyrt út í skurð og setið þar föst í nokkur ár. „En við erum komin af stað á ný með sterkar hendur á stýri. Til að byrja með var leiðin hál og brekkan brött, en með mik­illi seiglu erum við komin á jafn­sléttu á ný og leiðin er greið,“ sagði hún og bætti við: „Hins vegar hefur aldrei verið mik­il­væg­ara en nú, að hafa augun á veg­inum og tryggja að við keyrum ekki of hratt. Því jafn­vel þótt veg­ur­inn hafi batnað eru beygj­urnar krappar, og augna­bliks kæru­leysi getur verið dýr­keypt. Þess vegna skiptir máli, að við stýrið sitji reynslu­mik­ill bíl­stjóri sem kunni að keyra við ólíkar aðstæður.“ Þá minnt­ist Lilja á deil­una um vöru­merkið Iceland og að þar ættu Íslend­ingar að standa á rétti sínum sem þjóð eins og í Icesave-mál­inu. Lagði Lilja áherslu á að þing­menn ynnu saman að stóru hags­muna­mál­unum. „Við verðum að ávinna okkur traust hvert ann­ars og takast á um stefnur og mál­efna­legar áherslur, en ekki um ein­stakar per­sónur,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár