Sigmundur nýtur nú jafnlítils trausts og Jóhanna þegar verst var

Traust á for­sæt­is­ráð­herra hefur hrunið. 63 pró­sent lands­manna van­treysta honum, en 17 pró­sent treysta honum.

Sigmundur nýtur nú jafnlítils trausts og Jóhanna þegar verst var
Formenn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna Sig­mundur Davíð og Bjarni Bene­dikts­son leiða rík­is­stjórn­ina. Traust á þeim báðum hefur farið hratt minnk­andi. Mynd: AFP

Traust á Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni,  for­sæt­is­ráð­herra og for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur fallið mikið frá því hann tók við emb­ætti. Hann nýtur nú jafn­lít­ils trausts og for­veri hans í stóli for­sæt­is­ráð­herra, Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, þegar traust til hennar mæld­ist minnst árin 2012 til 2013. 

Samkvæmt nýrri skoð­ana­könnun MMR hafa 63 pró­sent lands­manna lítið traust á Sigmundi Davíð. Aðeins 17,5% bera frekar eða mjög mikið traust til hans. Í febr­úar 2013 sögð­ust 63 pró­sent lands­manna van­treysta Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, en 18 pró­sent treystu henni. Um það leyti, í mars 2013, lagði þáver­andi stjórn­ar­and­staða fram van­traust­s­til­lögu gegn sitj­andi rík­is­stjórn. Sig­mundur Davíð greiddi atkvæði með van­traust­s­til­lög­unni. 

Þetta er við­snún­ingur frá könnun sem gerð var skömmu eftir að rík­is­stjórn Sig­mundar tók við völdum.

Þegar sund­ur­lið­aðar nið­ur­stöður eru skoð­aðar kemur í ljós að 48 pró­sent svar­enda sögð­ust bera „mjög lítið traust“ til Sig­mundar Davíðs.

Traust til stjórnmálaleiðtoga
Traust til stjórn­mála­leið­toga Forseti Íslands og for­maður VG njóta sér­stöðu í trausti.

Minnkandi traust á Bjarna Benediktssyni

Skömmu eftir að Sig­mundur Davíð sett­ist í stól for­sæt­is­ráð­herra naut hann trausts tæp­lega 49 pró­senta svar­enda í könnun 1. júní 2013. Þá van­treystu aðeins 28 pró­sent for­sæt­is­ráð­herra.

Á þeim tíma naut Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, trausts 34 pró­senta lands­manna, en 43 prós­net van­treystu honum. 

Bjarni nýtur nú trausts 22,8 pró­sent lands­manna, en tæp 58 pró­sent bera lítið eða mjög lítið traust til hans.

Traust á Sigmundi Davíð hefur fallið meira en traust á Bjarna Bene­dikts­syni. Minnst mæld­ist traust til Bjarna í febr­úar 2013, en þá van­treystu 66 pró­sent lands­manna honum.

Könnun MMR var fram­kvæmd 30. mars til 8. apríl síð­ast­lið­inn. Spurt var: Hve mikið eða lítið traust berð þú til eft­ir­far­andi aðila. Svar­mögu­leikar voru mjög lítið traust, frekar lítið traust, hvorki mikið né lítið traust, frekar mikið traust, mjög mikið traust og veit ekki/vil ekki svara. Nið­ur­stöður sýna fjölda þeirra sem svör­uðu annað hvort mjög/frekar mikið eða lítið traust. Samtals tóku 96,8 pró­sent afstöðu til spurn­ing­ar­innar að hluta eða öllu leyti.

Árni Páll nýtur lítils trausts

Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, er sá stjórn­mála­maður í stjórn­ar­and­stöðu sem mælist með minnst traust meðal lands­manna. Færri treysta honum en Sigmundi Davíð, eða tæp 15 pró­sent lands­manna. Þó eru nokkuð færri sem van­treysta honum en Sigmundi. 54 pró­sent svar­enda í könn­un­inni sögð­ust bera frekar lítið eða mjög lítið traust til Árna Páls. 

Ólafur Ragnar Grímsson for­seti nýtur mests trausts, ásamt Katrínu Jak­obs­dóttur, for­manni Vinstri hreyf­ing­ar­innar - græns fram­boðs. 

Traust á stjórnmálaleiðtogum
Traust á stjórn­mála­leið­togum Með­fylgj­andi súl­rit sýnir hversu hátt hlut­fall svar­enda sagð­ist bera frekar eða mjög mikið traust til til­tek­inna stjórn­mála­leið­toga.

Vantraust
Van­traust Hér sjást þeir sem segj­ast bera frekar lítið eða mjög lítið traust til til­tek­inna stjórn­mála­leið­toga. Fæstir, 26%, van­treysta Katrínu Jak­obs­dóttur, en flestir, 63 pró­sent, van­treysta Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár