„Með löggugallann hérna aftur í skotti“

Lög­fræð­ingur, sem kærður hefur verið fyrir að bera fyrr­ver­andi lög­reglu­full­trúa úr fíkni­efna­deild röngum sökum, verður afleys­inga­maður hjá lög­regl­unni á Suð­ur­landi næstu vik­urnar. Hann sótti bún­ing­inn sinn á lög­reglu­stöð­ina á Hverf­is­götu í gær.

Lög­fræð­ing­ur­inn sem kærður hefur verið fyrir að bera lög­reglu­full­trúa úr fíkni­efna­deild og fyrr­ver­andi sam­starfs­mann sinn röngum sökum hefur verið ráð­inn sem afleys­inga­maður hjá lög­regl­unni á Suð­ur­landi. Hann sótti bún­ing­inn sinn á lög­reglu­stöð­ina á Hverf­is­götu í gær. 

„Já, það er alveg hár­rétt hjá þér. Ég er með löggugall­ann hérna aftur í skotti og sótti hann í dag. Ég er að fara að leysa af í mánuð í Vík í Mýrdal. End­ur­koma mín í lög­regl­una er nú ekki meiri en svo,“ sagði lög­fræð­ing­ur­inn þegar Stundin hafði sam­band við hann í gær. Maðurinn er fyrr­ver­andi starfs­maður fíkni­efna­deildar. Hann sótti um starf lög­reglu­full­trúa fyrir nokkrum mán­uðum en fékk ekki. 

RÚV greindi stutt­lega frá máli lög­fræð­ings­ins áðan en fjallað verður ítar­lega um mál­efni fíkni­efna­deildar í blaði Stund­ar­innar sem kemur út á fimmtu­dag­inn.

Fram kemur í styttri útgáfu af nið­ur­fell­ing­ar­bréfi hér­aðs­sak­sókn­ara í máli lög­reglu­full­trú­ans, sem hreins­aður hefur verið af ásök­unum um brot í starfi, að umræddur lög­fræð­ingur hafi haft sam­band við rík­is­sak­sókn­ara í fyrra og sagst vera umbjóð­andi aðila sem byggi yfir upp­lýs­ingum um „meint brot ákveð­ins/ákveð­inna lög­reglu­manna“ sem gegndu stöðum yfir­manna í ávana- og fíkni­efna­deild lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Fram kom að umbjóð­and­inn hefði áhuga á að deila upp­lýs­ing­unum ef hægt væri að gera ákveðna fyr­ir­vara vegna þess fram­burðar sem hann myndi gefa 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Valdatafl í lögreglunni

FréttirValdatafl í lögreglunni

Rann­sóknir fíkni­efna­mála í lama­sessi og mið­læga deildin sögð „gjör­sam­lega í molum“

Lítið er um frum­kvæð­is­rann­sóknir og lög­reglan ræður ekki lengur við umfangs­mikil fíkni­efna­mál. „Óstarf­hæft“ og „hand­ó­nýtt batt­erí“ eru dæmi um ein­kunnir sem lög­reglu­menn gefa vinnu­staðnum. Yfir­maður mið­lægu deild­ar­innar hættir og hverfur aftur til fyrri starfa hjá sér­sveit­inni.

21 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár