Matreiðslunámskeiðið breytti lífinu

Auður Ögn Árna­dóttir stofn­aði mat­reiðslu­skóla eftir að hún rambaði óvart inn á nám­skeið í Bret­landi.

Matreiðslunámskeiðið breytti lífinu

Auður Ögn Atla­dóttir hefur alltaf haft ástríðu fyrir mat og mat­ar­gerð. Tíu ára gömul fékk hún Mat­reiðslu­bókin mín og Mikka í jóla­gjöf og þá varð ekki aftur snúið. Það var svo árið 2010 sem hún fór til Bath í Bret­landi á Jane Austen hátíð með les­hringnum sínum að hún datt óvart inn á mat­reiðslu­nám­skeið ólíkt því sem hún hafði áður kynnst. Skömmu fyrir brott­för pant­aði hún nokkrar mat­reiðslu­bækur af Amazon, eins og hún gerir stundum. Bækurnar komu nokkrum dögum fyrir brott­för.

„Þegar ég var að blaða hratt í gegnum þær, því ég var að fara og hafði ekki mik­inn tíma, dettur í fangið á mér póst­kort frá höf­undi einnar bók­ar­innar. Þessi maður skrif­aði að hann væri nýbú­inn að opna mat­reiðslu­skóla í Bath og bauð les­endur vel­komna þangað. Þetta var eins himna­send­ing fyrir mig. Ég vissi ekki að þetta væri til og ég var akkúrat á leið­inni þangað. Þannig að ég dreif mig á netið og skráði mig á nám­skeið. Svo þegar við komum út þá virð­ist ég hafa klúðrað málum allsvaka­lega með því að gefa upp leigu­bíl­stjór­anum upp heim­il­is­fangið á skól­anum en ekki íbúð­inni sem við vorum búin að leigja. Þetta var ægi­leg reki­stefna á meðan við vorum að finna út úr þessu en þá kom í ljós að mat­reiðslu­skól­inn var beint á móti íbúð­inni. Þannig að þegar ég fór út um morg­un­inn þá þurfti ég bara að taka fjögur skref til að kom­ast í skól­ann. Þetta átti greini­lega ekki að fara fram hjá mér.“

Hún vissi ekk­ert hvað hún var að fara út í en segir þetta hafa verið svo skemmti­lega upp­lifun að eftir þetta reyndi hún að fara á mat­reiðslu­nám­skeið í hvert sinn sem hún fór utan. Í brjósti hennar bærð­ist von um að ein­hver myndi koma á slíkum mat­reiðslu­skóla hér á landi, þar til hún gafst upp á bið­inni og ákvað að gera það sjálf, en fram að því hafði hún starfað sem inn­an­hús­stílisti. Úr varð Salt eld­hús þar sem boðið er upp á fjöl­breytt mat­reiðslu­nám­skeið. Til að sinna kennsl­unni fær hún sér­fræð­inga í hverju fagi fyrir sig. „Maðurinn sem kennir marokkóska mat­ar­gerð er upp­al­inn í Marakkó og þekkir mat­ar­gerð­ina þar út og inn.“ Sjálf kennir hún ekk­ert nema bakstur á frönskum mak­rónum sem er það sem hún lærði á fyrsta nám­skeið­inu sem hún fór á og sér­hæfði sig í. „Ég ákvað að setja eitt slíkt nám­skeið á dag­skrána og kanna hvort ein­hver hefði áhuga á því. Síðan hef ég kennt 76 slík nám­skeið.“

Það var því mikil gæfa að detta óvart niður á þetta mat­reiðslu­nám­skeið í Bret­landi árið 2010. „Það er nán­ast eins og ég hafi verið leidd áfram,“ segir Auður. 

Silungur sous vide

Sous vide eld­un­ar­að­ferðin hefur verið að ryðja sér til rúms á síð­ustu árum, en aðferðin er meira en 200 ára gömul og hefur lengi verið notuð á veit­inga­stöðum. Hún bygg­ist á því að pakka hrá­efnum í mat­ar­plast og hægelda við kjör­hita, þannig að mat­ur­unn verður lunga­mjúkur og safa­ríkur.

600 g sil­ungur

2 msk graf­lax­blanda, 2 hlutar sykur og 1 hluti fín sjáv­ar­salt

Dash af hvítum pipar

Mat­ar­plast

1. Kryddið sil­ung­inn með blönd­unni, söx­uðu dilli og hvítum pipar.

2. Pakkið fisk­inum inn þannig að umbúð­irnar haldi full­kom­lega. Eldið sous vide yfir vatns­baði í 20 mín­útur á 43°C. Ef þú átt ekki sous vide græjur getur þú bakað sil­ung­inn í ofni á sama hita þar til hita­mælir sýnir að fisk­ur­inn hefur náð 43°C að innan.

3. Takið pok­ann úr vatn­inu og kælið.

Eldið kart­öflur. Takið 3 sentí­metra hring­laga form og mótið kart­öfl­una í full­kom­inn hring á disknum. Setjið nokkrar rækjur þar ofan á. Það getur verið fal­legt að setja mat­skeið af sil­ungs­hrognum á diskinn, en það er val­kvætt. Skerið sil­ung­inn í bita og raðið á diskinn, bætið við ögn af birkireyktu salti og skreytið með stein­selju, hjól­krónu eða karsa.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár