Mannréttindafulltrúi Framsóknar æfur út í presta

„Fólk hrópar "mannúð" þegar kemur að umræðu um hæl­is­leit­endur og flótta­menn en í sömu svipan líta fram­hjá okkar minnsta bróður,“ skrifar Sveinn Hjörtur Guð­finns­son. Séra Skúli Sigurður Ólafsson segir kirkju­grið ekki bara snú­ast um utan­að­kom­andi fólk og fannst of mik­ill hávaði í Laug­ar­nes­kirkju.

Mannréttindafulltrúi Framsóknar æfur út í presta

Sveinn Hjörtur Guð­finns­son, aðal­maður Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina í mann­réttinda­ráði Reykja­vík­ur­borgar, hefur farið mik­inn á sam­fé­lags­miðlum und­an­farnar vikur vegna stuðn­ings Laug­ar­nes­kirkju við írösku hæl­is­leit­end­urna Ali Nasir og Majed sem vísað var úr landi í lok júní­mán­aðar. Deilir hann meðal ann­ars áróð­ur­steikn­ingu Morg­un­blaðs­ins gegn „ólög­legum inn­flytj­endum“ á Facebook og tekur undir þau skila­boð sem fel­ast í mynd­inni. „Fólk hrópar "mannúð" þegar kemur að umræðu um hæl­is­leit­endur og flótta­menn en í sömu svipan líta fram­hjá okkar minnsta bróður,“ skrifar Hjörtur og gagn­rýnir prest­ana Toshiki Toma og Kristínu Þórunni Tóm­as­dóttur harð­lega.  

Stundin hefur áður fjallað um harða gagn­rýni Brynjars Níels­sonar og Ásmundar Frið­riks­sonar, þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins, á fram­tak prest­anna. Þá hefur Helgi Magnús Gunn­ars­son, vara­rík­is­sak­sókn­ari, gagn­rýnt kirkj­una fyrir að „virða ekki“ lög­legar ákvarð­anir stjórn­valda og sagt raka­laust að ekki sé for­svar­an­legt að senda hæl­is­leit­endur til Íraks.

Á Trú.is hafa nokkrir prestar tjáð sig um málið, meðal ann­ars Agnes Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands, sem segir kirkj­una ekki geta annað en tekið afstöðu með fólki í neyð. „Þannig högum við okkur í sam­ræmi við kær­leiks­boð­skap krist­innar trúar,“ skrifar hún.

Séra Arna Ýrr Sig­urð­ar­dóttir tekur í sama streng. „Atburð­ur­inn í Laug­ar­nes­kirkju var van­máttug til­raun til að benda á ömur­lega fram­komu íslenskra stjórn­valda við hæl­is­leit­endur, til­raun til að verja vini sína fyrir armi lag­anna, sem var vissu­lega í laga­legum rétti, en, að því er við teljum mörg: í sið­ferði­legum órétti,“ skrifar hún. 

Of mikill hávaði

Séra Skúli Sigurður Ólafsson, prestur í Nes­kirkju og eig­in­maður lög­reglu­stjór­ans í Reykja­vík, er gagn­rýn­inn á fram­tak kirkj­unnar. 

„Hugsunin var sann­ar­lega kær­leiks­rík, að bjóða hröktum ein­stak­lingum skjól, sál­gæslu og fyr­ir­bæn en í fjöl­miðlum og á net­inu virt­ist aðgerðin hafa verið hávaða­söm og særði marga sem töldu sig eiga annað skilið af hálfu kirkj­unnar,“ skrifar hann og vísar þar lík­lega til lög­reglu­þjóna sem yfir­völd sendu inn í kirkj­una. „Kirkju­grið gera miklar kröfur til þeirra sem vilja njóta þess friðar. Þar þarf að gæta þess að rjúfa ekki griðin með fyr­ir­ferð og hávaða.“

Kirkjugrið ekki bara fyrir utanaðkomandi

Skúli er þeirrar skoð­unar að kirkju­grið snúi ekki bara að þeim sem leita skjóls í kirkju, heldur ekki síður um þá sem eru þegar inni í kirkju. „Áfram þarf að sinna þeim sem standa höllum fæti og mæta for­dómum. Um leið þurfum við að gæta þess að valda ekki skaða og hug­leiða að kirkju­grið snúa ekki ein­göngu að þeim sem standa utan kirkju­dyr­anna og leita inn­göngu. Þau eiga ekki síður við um okkur sem stöndum inni í hinu helga rými,“ skrifar hann. Eins og komið hefur fram í fjöl­miðlum höfðu hæl­is­leit­end­urnir Ali og Majed tekið kristna trú áður en þeim var boðið að bíða brott­vís­unar uppi við alt­ari Laug­ar­nes­kirkju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár