Mannekla og fjárskortur á geðsviði

Efla þarf heilsu­gæsl­una til muna, fjölga sál­fræð­ingum þar, bjóða upp á hug­ræna atferl­is­með­ferð í skóla­kerf­inu og almenna þjón­ustu í nær­­umhverf­inu. Þannig væri hægt að grípa fólk fyrr, létta á álag­inu á Land­spít­al­anum og sinna veikasta fólk­inu betur.

Mannekla og fjárskortur á geðsviði
Stöðugt álag Víðtækur vandi mætir þeim sem starfa á geðsviði Land­spít­al­ans, þar sem sjúk­lingar eru vistaðir í óásætt­an­legu hús­næði og mann­ekla er við­var­andi. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég myndi vilja sjá sam­fellda þjón­ustu­keðju,“ segir María Ein­is­dóttir, fram­kvæmda­stjóri geðsviðs Land­spít­al­ans. „Land­spít­al­inn er það sem kall­ast þriðju línu þjón­usta og á að sinna þyngsta, erf­ið­asta og veikasta hópnum og gera það vel. Til þess að það sé hægt þarf að efla heilsu­gæsl­una og önnur úrræði, ekki síður en geð­svið Land­spít­al­ans. Það þarf að stór­efla þjón­ustu við fólk í nærum­hverfi þess og fá meiri aðstoð inn á heim­ilin. 

Á Land­spít­al­anum er opin bráða­mót­taka þar sem fólk getur fengið við­tal strax á meðan það þarf að bíða eftir við­tali við lækni á heilsu­gæsl­unni. Fyrir vikið fáum við fólk til okkar sem þarf að láta end­ur­nýja lyf­seðla eða fá vott­orð. Við eigum ekki að sinna slíkum verk­efnum. Eins erum við að fá fólk til okkar sem er að koma vegna próf­kvíða. Það á að vera sjálf­sagt að fá þjón­ustu við slíkum vanda í nærum­hverfi fólks. Ég hefði viljað sjá sál­fræð­inga í skóla­kerf­inu og þó að ég fagni því mjög að heilsu­gæslan sé að ráða til sín sál­fræð­inga þá hefði ég viljað sjá þá mun hrað­ari þróun í þeim efnum. Nú sjáum við líka að aldr­aðir sækja mun meira í sál­fræði­þjón­ustu því með­vit­undin er að aukast og eng­inn á að bera harm sinn í hljóði. Þess vegna ætti að vera hægt að bjóða upp á hug­ræna atferl­is­með­ferð í heilsu­gæsl­unni. Reyndar finnst mér að það ætti líka að gera það í skóla­kerf­inu þannig að það sé hægt að hjálpa ung­mennum um leið og fyrstu ein­kennin koma. Af því að það er ýmis­legt búið að ganga á áður en fólk stígur þessi þungu skref að leita til okkar en lítil hjálp á leið­inni og jafn­vel allt komið í óefni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár