Lögreglustjóri ósammála Persónuvernd um lögbrot

Stundin rýnir í úrskurð Per­sónu­verndar og yfir­lýs­ingu Sigríðar Bjarkar

Lögreglustjóri ósammála Persónuvernd um lögbrot

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, er ósam­mála þeirri nið­ur­stöðu Per­sónu­verndar að hún hafi gerst brot­leg við lög um per­sónu­vernd og með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga sem lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum. „Nei, ég tel ekki að ég hafi brotið lög,” er haft eftir Sigríði á vef RÚV. Þetta rök­styður hún ekki frekar þótt Per­sónu­vernd kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu í úrskurði sínum að verk­lag Sigríðar í leka­mál­inu hafi stang­ast á við 11. og 12. grein fyrr­nefndra laga. 

Per­sónu­vernd er sjálf­stæð stofnun sem ann­ast eft­ir­lit með fram­kvæmd laga um per­sónu­vernd og með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga og fer með úrskurð­ar­vald í ágrein­ings­málum er varða vinnslu, með­ferð og miðlun slíkra gagna. Um Per­sónu­vernd gildir, líkt og aðrar eft­ir­lits­stofn­anir hins opin­bera, að hún á vægi sitt að miklu leyti undir því að emb­ætt­is­menn taki mark á úrskurðum hennar.

Braut lög
Úrskurður Per­sónu­verndar sem Kjarninn birti á vef sínum í gær varðar ekki aðeins það emb­ætti sem Sigríður Björk var í for­svari fyrir á sínum tíma heldur einnig verk­lag hennar sjálfrar, það hvernig hún sem lög­reglu­stjóri miðl­aði upp­lýs­ingum. Per­sónu­vernd telur að með því að senda Gísla Frey Val­dórs­syni, þáver­andi aðstoð­ar­manni inn­an­rík­is­ráð­herra, skýrslu­drög um mál­efni Tony Omos, án þess að beita sér­stökum ráð­stöf­unum til að tryggja öryggi og án þess að skrá miðl­un­ina í mála­skrá, hafi Lög­reglan á Suð­ur­nesjum brotið 11. og 12. grein laga um per­sónu­vernd. Fram kemur að hún hafi ekki upp­fyllt þær kröfur sem gerðar eru í 1. og 2. mgr. 11. gr. og 1. mgr. 12. gr. og ekki fylgt nán­ari fyr­ir­mælum sem fram koma í 3. tölul. 7. gr. reglna nr. 299/2001. Var það á ábyrgð Sigríðar sem lög­reglu­stjóra að tryggja að lög­unum væri fylgt. Sjálf sendi hún Gísla umrætt skjal.

„Í fram­an­greindu felst meðal ann­ars að við send­ingu skýrslu­drag­anna og fram­burð­ar­skýrsl­unnar í tölvu­pósti varð að beita sér­stökum ráð­stöf­unum til að tryggja öryggi, s.s. dulkóðun eða læs­ingu með sterku lyk­il­orði. Fyrir liggur að hvorki var beitt slíkum ráð­stöf­unum við miðlun áður­nefndra skýrslu­draga frá Lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum til ann­ars af aðstoð­ar­mönnum inn­an­rík­is­ráð­herra hinn 19. nóv­em­ber 2013 né heldur við send­ingu Útlend­inga­stofn­unar á fyrr­greindri fram­burð­ar­skýrslu til ráðu­neyt­is­ins hinn 20. s.m,” segir í skýrsl­unni. 

(Vert er að taka fram að í til­vitn­un­inni í úrskurð Per­sónu­verndar hér að ofan er röng dag­setn­ing til­greind, því umræddum skýrslu­drögum var ekki miðlað til aðstoð­ar­manns­ins 19. nóv­em­ber heldur 20. nóv­em­ber. Svo virð­ist sem um klaufa­villu hjá Per­sónu­vernd sé að ræða, því ann­ars staðar í úrskurð­inum er dag­setn­ingin rétt).

Í nið­ur­stöðukafla er hnykkt á þessu og bætt við: „Fram­an­greindan skort á skrán­ingu hjá Lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum og inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu telur Per­sónu­vernd hafa farið í bága við 1. og 2. mgr. 11. gr. og 12. gr. laga nr. 77/2000.” Þetta er svo ítrekað í úrskurð­ar­orði Per­sónu­verndar. Víðast hvar í úrskurð­inum er vísað til Lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum en ekki aðeins lög­reglu­stjóra. Þetta skýrist lík­lega af því að um tvo tölvu­pósta er að ræða og aðeins annar þeirra var frá lög­reglu­stjór­anum sjálfum. 

Röng stað­hæf­ing
Í yfir­lýs­ingu sem Sigríður sendi frá sér í gær sagði hún: „Í nið­ur­stöðu Per­sónu­verndar kemur ekki fram að ég hafi gerst brot­leg við lög þegar ég varð við ósk aðstoð­ar­manns Inn­an­rík­is­ráð­herra um að senda honum skýrslu­drög um mál­efni hæl­is­leit­anda þann 20. nóv­em­ber 2013.” Stundin útskýrði í gær að þessi full­yrð­ing væri í besta falli vill­andi, en sam­kvæmt nið­ur­stöðu Per­sónu­verndar gerð­ist lög­reglu­stjór­inn vissu­lega brot­leg við lög þegar hún varð við ósk aðstoð­ar­manns­ins og sendi skýrslu­drögin án þess að upp­fylla skil­yrði 11. og 12. greinar laga um per­sónu­vernd. Því er vert að árétta að stað­hæf­ing Sigríðar er ekki aðeins vill­andi heldur bein­línis röng. 

Í sömu yfir­lýs­ingu full­yrðir lög­reglu­stjór­inn að Per­sónu­vernd hafi kom­ist að þeirri „nið­ur­stöðu að miðlun skýrslu­drag­anna hafi ekki stuðst við við­hlít­andi heim­ild þar sem hún var ekki á meðal gagna í því máli hæl­is­leit­and­ans sem til með­ferðar var í ráðu­neyt­inu. Það gat ég sem send­andi hvorki vitað né tryggt.” Samkvæmt þessu telur lög­reglu­stjór­inn það ekki hafa verið á sinni ábyrgð að meta hvort við­hlít­andi laga­heim­ild væru fyrir hendi áður en per­sónu­upp­lýs­ingar voru sendar frá lög­reglu­emb­ætt­inu. 

Þessi skoðun Sigríðar Bjarkar er einnig á skjön við nið­ur­stöðu Per­sónu­verndar. Bent er á það í úrskurð­inum að „sá sem ber ábyrgð á að vinnsla per­sónu­upp­lýs­inga sam­rým­ist lögum nr. 77/2000 er nefndur ábyrgð­ar­að­ili” og í þessu til­viki „telst Lög­reglan á Suð­ur­nesjum vera ábyrgð­ar­að­ili að þeirri vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga sem fólst í miðl­un­inni”. Af þessu má ljóst vera að lög­reglu­stjór­anum bar að vita og tryggja að per­sónu­vernd­ar­lögum væri fylgt og við­hlít­andi heim­ild væri fyrir hendi. 

Stundin bíður eftir við­tali við Sigríði Björk vegna úrskurðar Per­sónu­verndar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lekamálið

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár