Lífslíkurnar bættar með breyttu mataræði

Saga brjóstakrabba­meins í ætt Þórunnar Steins­dóttur ýtti henni út í að kynna sér ofan í kjöl­inn hvaða mat­ar­teg­undir geta hjálpað til við að draga úr líkum á að þróa það með sér. Með nýút­kominni bók hennar og Unnar Guðrúnar Páls­dóttur vilja þær kenna öðrum að lág­marka lík­urnar á því að verða alvar­lega veikir á lífs­leið­inni með bættu matar­æði.

Miðlar af reynslu sinni
Miðlar af reynslu sinni Þórunn er viss um að flestir vilji gera allt sem í þeirra valdi stendur til að lág­marka lík­urnar á að verða alvar­lega veikir á lífs­leið­inni. Bókinni er ætlað að vera tól til að auð­velda fólki þá vinnu. Mynd: Kristinn Magnússon

Tilurð bók­ar­innar Máttur mat­ar­ins má rekja aftur um nokkur ár, þegar Þórunn Steins­dóttir, annar höf­unda bók­ar­innar, og fjöl­skylda hennar bjuggu í Vancouver í Kanada. Þórunn hafði eign­ast sitt fyrsta barn nokkrum mán­uðum fyrr og hafði síðan hún varð ófrísk varið miklum tíma í að kynna sér hvernig hún gæti bætt lífslíkur sínar með breyttu matar­æði. Í Kanada hafði hún gott aðgengi að bókum og var í fæð­ing­ar­or­lofi, svo hún var í góðri aðstöðu til að sökkva sér ofan í þessi mál. Þegar hún var búin að kynna sér þau vel fann hún fróð­leiknum far­veg á bloggi sem hún kall­aði Mátt mat­ar­ins. Það náði fljótt miklum vin­sældum en þar deildi hún upp­skriftum og ýmsum fróð­leik sem hún hafði viðað að sér. Hún hlaut mikið hrós fyrir, enda voru margir áhuga­samir um þá hug­mynd að geta bætt lífslíkur sínar með bættu matar­æði, án þess að hafa endi­lega tíma eða áhuga til að viða að sér nauð­syn­legri þekk­ingu. „Þegar ég var komin aftur heim frá Kanada fann ég að haus­inn var kom­inn annað. Mig lang­aði samt ekki að loka blogg­inu en ákvað að pakka þessu saman í aðgengi­lega bók, þar sem flóknir lækn­is­fræði­legir hlutir væru útskýrðir á ein­faldan hátt. Ég hef lagt ofsa­lega mikla vinnu í að skilja þessa hluti sjálf og er með­vituð um að aðrir hafa ekki endi­lega tæki­færi til að kynna sér málin eins vel. Margt af þessu er ansi flókið og ég þurfti sjálf að hafa mikið fyrir því að skilja þetta. Ég hef trú á að fólk vilji gera allt sem í valdi þess stendur til að lág­marka lík­urnar á að það verði alvar­lega veikt á lífs­leið­inni. Bókinni er ætlað að vera tól til að auð­velda fólki þá vinnu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár