Fékk heilablóðfall og kemst ekki í segulómun vegna verkfalls

Ólafur Árnason hefur þrisvar sinnum fengið heila­blóð­fall frá árinu 2007. Kemst ekki í rann­sóknir vegna verk­falls. Er með lifr­ar­bólgu C en getur ekki tekið gömlu lyfin vegna heila­blóð­fall­anna og fær ekki ný lyf vegna fjár­skorts.

Fékk heilablóðfall og kemst ekki í segulómun vegna verkfalls
Verkfall ógnar heilsu fólks Verkfall geisla­fræð­inga, líf­einda­fræð­inga, nátt­úru­fræð­inga og ljós­mæðra við Land­spít­ala Íslands hefur nú staðið yfir í rúma tvo mán­uði. Mynd: Kristinn Magnússon

Ólafur Árnason fékk sitt fyrsta heila­blóð­fall árið 2007. Síðan hefur hann fengið tvö önnur, það síð­asta fyrir rúmum tveimur mán­uðum síðan. Ekki er vitað hvað veldur þessum þrá­látu heila­blóð­föllum og kemst Ólafur ekki í fyr­ir­hug­aðar rann­sóknir vegna verk­falla á Land­spít­al­anum. Fyrir tæpum þrjá­tíu árum greind­ist Ólafur með lifr­ar­bólgu C en nýlega komst hann að því að lyfin sem hann hefur tekið við sjúk­dómnum eru hættu­leg þeim sem fengið hafa heila­blóð­fall. Ekki fæst fjár­magn fyrir nýjum lyfjum. „Ég bíð bara eftir að veikj­ast aftur, annað hvort fæ ég heila­blóð­fall eða veik­ist af lifr­ar­bólg­unni,“ segir Ólafur í sam­tali við Stundina. 

Kemst ekki í rannsóknir

Bíður eftir að veikjast aftur
Bíður eftir að veikj­ast aftur Ólafur Árnason fékk heila­blóð­fall fyrir tveimur mán­uðum en hefur ekki ennþá fengið seg­u­l­ómun á skað­anum vegna verk­falls. Hann hefur ekki heldur ráð á lyfj­unum sem hann þarf.

Verkfall geisla­fræð­inga, líf­einda­fræð­inga, nátt­úru­fræð­inga og ljós­mæðra við Land­spít­ala Íslands hefur nú staðið yfir í rúma tvo mán­uði. Ekki er enn farið að sjá til lands í kjara­deilu BHM og hjúkr­un­ar­fræð­inga við ríkið, en sem kunn­ugt er varð til að mynda ekk­ert af sátta­nefnd­inni sem boðuð var fyrir helgi. 

„Vegna verk­fall­anna er ég á biðlista eftir því að kom­ast í seg­u­l­ómun í heila, eftir heila­blóð­fallið sem ég fékk fyrr á árinu. Mér er sagt að hafa sam­band aftur eftir verk­fallið. Ég er líka á biðlista eftir því að kom­ast í rann­sóknir á því hvers vegna ég er alltaf að fá þessi heila­blóð­föll,“ segir Ólafur. Eftir síð­asta heila­blóð­fall tók við end­ur­hæf­ing­ar­með­ferð á dag­deild Grensás, en stuttu eftir að verk­föll hófust var Ólafur sendur heim. Hann er því í engri end­ur­hæf­ingu, fær engin lyf og í ofaná­lag hefur honum verið synjað um ferða­þjón­ustu fatl­aðra – þjón­ustu sem hann hefur notað í átta ár – og kemst því ekki ferða sinna. „Þetta er bara eins og að setja mig í fang­elsi,“ segir hann.

„Ég bíð bara eftir að veikj­ast aftur, annað hvort fæ ég heila­blóð­fall eða veik­ist af lifr­ar­bólg­unni.“

Nýju lyfin ekki afgreidd á Íslandi

Að sögn Ólafs er ekki vitað hvernig hann smit­að­ist af lifr­ar­bólgu C, en hann og þáver­andi kona hans greindust með sjúk­dóm­inn á sama tíma, upp úr 1990. Nýlega kom í ljós að ekki væri ráð­lagt fyrir hann að taka áfram gömlu lyfin við lifr­ar­bólg­unni vegna heila­blóð­fall­anna. Sýnt hefur að gömlu lyfin 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár