Mál Jóns Gnarr komið á borð Barnaverndar

Ólafur Sig­urðs­son, fyrrum kenn­ari við hér­að­skól­ann að Núpi, hefur farið fram á að Barna­vernd­ar­stofa rann­saki form­lega ásak­anir Jóns Gnarr um kyn­ferð­is­brot ónafn­greinds kenn­ara við skól­ann. Jón segir að bókin sé skáldævi­saga og hann geti ekki svarað fyrir hvort ásak­anir um kyn­ferð­is­brot séu skáld­aðar.

Mál Jóns Gnarr komið á borð Barnaverndar

Ólafur Sig­urðs­son, fyrrum kenn­ari við hér­aðs­skól­ann að Núpi, hefur farið fram á að Barna­vernd­ar­stofa rann­saki form­lega ásak­anir Jóns Gnarr um kyn­ferð­is­brot ónafn­greinds kenn­ara við skól­ann. „Ég bað hann Braga [Guð­brands­son for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu] um að kanna þetta með til­vísun í orð Jóns Gnarr um kenn­ara­mis­notkun og Bragi ætlar að gera það,“ segir Ólafur í sam­tali við Stundina.

Lýsingar Jóns Gnarr, fyrrum borg­ar­stjóri og núver­andi fram­kvæmda­stjóri dag­skrársviðs 365, á meintri hópnauðgun og barn­a­níði eins kenn­ara hafa vakið mikla athygli. Í for­síðu­við­tali við Frétta­blaðið heldur Jón því fram að ein stúlka, „Lena“, hefði verið fórn­ar­lamb hópnauðg­unnar og einn nem­andi, „Sprelli“, hafi orðið fyrir mis­notkun kenn­ara.

Bragi Guð­brands­son segir í sam­tali við Stundina að hann hafi fengið málið inn á sitt borð en óvíst er hvort málið verið form­lega rann­sakað þar sem það væri hvort sem er fyrnt. Í sam­tali við Stundina segir Jón að bókin sé skáldævi­saga og hún verði að tala sínu máli. Hann seg­ist ekki geta svarað því hvort frá­sögn um mis­notkun sé skálduð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Núpur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár