Jón Gnarr: „Spennandi tilbreyting að borða kattamat“

Jón Gnarr lýsir því í ævi­sögu sinni þegar hann og kærasta hans borð­uðu ýmsar teg­undir af dýra­fóðri þegar manna­mat­inn þraut.

Jón Gnarr: „Spennandi tilbreyting að borða kattamat“
Dýra­fóðrið Jóin Gnarr hefur margt reynt á lífs­leið­inni. Hann borð­aði meðal ann­ars ýmsar teg­undir af hunda- og katta­mat. Mynd: Vera Pálsdóttir

„Og þegar allur manna­matur var búinn, snerum við okkur að hunda- og katta­matnum. Ég opn­aði nokkrar dósir og setti á pönnu. Með góðu kryddi varð þetta hinn ágæt­asti matur. Það var líka spenn­andi til­breyt­ing að borða katta­mat,” segir Jón Gnarr, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri, í ævi­sögu sinni, Útlag­anum, um það þegar hann og þáver­andi kærasta hans, sem hann kallar Kikku, um það þegar þau lifðu um tíma á hunda­mat og katta­mat. Þetta gerð­ist helst eftir hassneyslu sem Jón útskýrir í bók sinni að auki á svengd.

Bók Jóns ger­ist að mestu leyti á Núpi í Dýra­firði þar sem hann lýsir atvikum svo sem nauðgun og ein­elti. Í við­tali um bók­ina gaf hann til kynna að kenn­ari hefði mis­notað nem­anda.

Þegar þarna kom sögu bjó hann með kær­ustu sinni í Norð­ur­mýr­inni. Hann nefnir kærust­una Kikku, sem er dul­nefni. Hann hafði kynnst henni á Núpi og þau áttu í platónsku sam­bandi. Móðir kærust­unnar átti íbúð þar sem parið fékk að búa.  

„Hún var tón­list­ar­maður en rak líka litla heild­sölu sem flutti meðal ann­ars inn dýra­fóður,“ skrifar Jón Gnarr.

Hann lýsir því að þau hafi búið til hina ýmsu rétti úr dýra­fóðr­inu. Þetta spurð­ist út og gesta­gangur var nokkur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Núpur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár