Birgitta segir að Jón Gnarr eigi að leiðrétta ásakanir um hópnauðgun í bók sinni

Þing­maður Pírata segir að Jón Gnarr þurfi að leið­rétta ásökun um hópnauðgun. Jón seg­ist ekki geta svarað því hvort ásak­anir um hópnauðgun og barn­a­níð séu skáld­skapur.

Birgitta segir að Jón Gnarr eigi að leiðrétta ásakanir um hópnauðgun í bók sinni
Þing­maður Birgitta Jóns­dóttir var kærasta Jóns Gnarr um tíma.

Birgitta Jóns­dóttir, þing­maður Pírata og fyrr­ver­andi nem­andi í Hér­aðs­skól­anum að Núpi, segir Jón Gnarr, fyrrum borg­ar­stjóra, fara yfir ákveðna línu þegar hann vænir skóla­fé­laga sína um hópnauðgun sem hún segir að hafi ekki átt sér stað.

„Jón fer yfir ákveðna línu sem mér finnst að hann ætti að leið­rétta þar sem hann vænir skóla­fé­laga sína um hópnauðgun sem aldrei átti sér stað,“ skrifar Birgitta á Facebook og deilir hún gagn­rýni Stund­ar­innar á bók Jóns, Útlagann.

Birgitta var um tíma á umræddu tíma­bili, 1981 til 1983, kærasta Jóns. Nútíminn vakti fyrst athygli á ummælum Birgittu.

Í for­síðu­við­tali við Frétta­blaðið heldur Jón því fram að ein stúlka, „Lena“, hefði verið fórn­ar­lamb hópnauðg­unnar og einn nem­andi, „Sprelli“, hafi orðið fyrir mis­notkun kenn­ara. Lýsingar Jóns, sem er núver­andi fram­kvæmda­stjóri dag­skrársviðs 365, á meintri hópnauðgun og barn­a­níði eins kenn­ara hafa vakið mikla athygli. Kennarar á Núpi eru ósáttir við að  ónafn­greindur kenn­ari hafi verð sak­aður um kyn­ferð­is­lega mis­notkun í við­tal­inu við Jón.

Nemandi á Núpi
Nemandi á Núpi Jón Gnarr var á Núpi árin 1981-83 og lýsir kyn­ferð­is­legu ofbeldi og ein­elti í skól­anum. Hér er síða úr nem­enda­bók­inni um Jón.

Grandskoðuðu minningar

Birgitta er spurð í athuga­semd hvort það kunni að vera að Jón sé ein­ungis að lýsa sinni upp­lifun á skól­anum. „Nei, ekki í þessu til­felli. Ég var á Núpi á sama tíma og við hitt­umst tölu­vert mörg okkar sem vorum skóla­fé­lagar Jóns á þessum tíma nýverið og eng­inn, ekki nokkur maður kann­að­ist við það sem er meg­in­þráður bók­ar­innar. Þó fórum við öll í nákvæm­lega sama ferlið, merki­legt nokk, grand­skoð­uðum minn­ingar okkar til að kanna hvort að ein­hver fótur væri fyrir því að á Núpi hafi verið ein­tómir níð­ingar. Flest okkar fórum þarna sjálf­viljuð vegna þess að við heyrðum svo góðar sögur af staðnum frá vinum, ætt­ingjum eða úti í sam­fé­lag­inu,“ svarar Birgitta.

Getur ekki svarað um sannleiksgildi

Á dög­unum ræddi Stundin við Jón og spurði hann um hvort alvar­leg­ustu ásak­anir hans séu skáld­skapur. Hann sagð­ist ekki geta svarað því. „Ég er nátt­úr­lega bara rit­höf­undur og bókin er gefin út með þeim for­merkjum þannig að það þarf ekki stjörnu­vís­inda­mann til þess að meta það. Þannig að ég hef ekk­ert um það að segja, bókin verður að tala fyrir sig sjálf,“ sagði Jón.

Spurður um hvort alvar­leg­ustu ásak­an­irnar séu þá skáld­skapur svarar Jón: „Ég get ekki svarað fyrir það. Eins og ég segi ég hef engu við þetta að bæta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Núpur

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár