Ísland veitir litla ríkisaðstoð miðað við önnur Evrópuríki

Evr­ópu­ríki verja að með­al­tali helm­ingi hærra hlut­falli lands­fram­leiðslu til rík­is­að­stoðar en Ísland.

Ísland veitir litla ríkisaðstoð miðað við önnur Evrópuríki

Íslenska ríkið setur mun minna fjár­magn en önnur Evr­ópu­lönd að með­al­tali í rík­is­að­stoð. 

Aðeins 0,4 pró­sent lands­fram­leiðslu Íslands rennur til rík­is­að­stoðar, sam­kvæmt nýrri skýrslu Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA en sama hlut­fall er 2,2 pró­sent í Lett­landi, 1,23 pró­sent í Grikk­landi og 1,2 pró­sent í Þýska­landi. Meðaltal Evr­ópu­ríkja er 0,6 pró­sent lands­fram­leiðslu í rík­is­að­stoð.

Evr­ópu­lönd leggja að með­al­tali 0,37 pró­sent lands­fram­leiðslu í við­skipta­lega rík­is­að­stoð vegna umhverf­is­verndar og orku­sparn­aðar, en Ísland leggur ekk­ert fé í þann mála­flokk sam­kvæmt skil­grein­ingu skýrsl­unnar.

Rík­is­að­stoð Evr­ópu­ríkjaGrafið sýnir rík­is­að­stoð sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu.

Hins vegar leggur Ísland meira en með­al­evr­ópu­landið í rann­sóknir og þróun. Um 0,21 pró­sent af lands­fram­leiðslu Íslands rennur í rann­sóknir og þróun, en aðeins um 0,07 pró­sent að með­al­tali í Evr­ópu­ríkjum.

Í skýrsl­unni segir að útgjöld til rík­is­að­stoðar á Íslandi hafi auk­ist um 10,5% á árinu 2015. Helst fólst aukn­ingin í verk­efnum á sviði rann­sókna, þró­unar og nýsköp­unar, í gegnum Rann­sókn­ar­sjóð og Tækni­sjóð Rannís.

Eft­ir­lits­stofnun EFTA fram­fylgir reglum EES-samn­ings­ins um rík­is­að­stoð. Í skýrslu nefnd­ar­innar er tekið fram að hún sé almennt bönnuð.„Rík­is­að­stoð felst í opin­berum stuðn­ingi við við­skipta­starf­semi. Hún getur verið í formi fjár­styrkja, skattaí­viln­ana, hag­stæðra lána, ábyrgða eða fjár­fest­inga sem ekki eru á mark­aðs­kjörum. Jöfn sam­keppn­is­staða fyr­ir­tækja í Evrópu er eitt grund­vall­ar­at­riði EES-samn­ings­ins. Til að koma í veg fyrir að opin­berir fjár­munir séu not­aðir til að við­halda vernd­ar­stefnu er meg­in­reglan sú að rík­is­að­stoð er óheimil,“ segir í kynn­ingu á skýrsl­unni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár