Innanríkisráðuneytið svaraði ekki bréfum Ríkissaksóknara

Sig­ríð­ur J. Frið­jóns­dótt­ir rík­is­sak­sókn­ari seg­ir stjórn­völd, ráðu­neyti og ráð­herra hafa í gegn­um tíð­ina sýnt verk­efn­um ákæru­valds­ins lít­inn skiln­ing. Fjár­svelti stofn­un­ar­inn­ar ógn­ar réttarör­yggi borg­ar­anna.

Innanríkisráðuneytið svaraði ekki bréfum Ríkissaksóknara
Stjórnvöld sýni lítinn skilning Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari segir að hvorki hafi verið skilningur á mikilvægi né umfangi verkefna ákæruvaldsins. Mynd: Pressphotos

Innanríkisráðuneytið verður að styðja betur við starfsemi Ríkissaksóknara. Frá árinu 2008 hefur það til dæmis ekki óskað eftir fjárlagatillögum frá embættinu sem byggja á raunverulegri fjárþörf þess til að geta sinnt hlutverki sínu með fullnægjandi hætti. Þetta kemur fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar um Ríkissaksóknara. Þá segir að embætti Ríkissaksóknara hafi ítrekað vakið athygli ráðuneytisins á því að fjárhagsstaða þess kæmi í veg fyrir að það gæti afgreitt sakamál innan eðlilegs tíma og sinnt lögbundnu eftirlitshlutverki sínu nægilega vel. Oft hefur verið fátt um svör frá ráðuneytinu, eins og segir í skýrslunni. Sigríður J. Friðjónsdóttir, ríkissaksóknari, segir þá staðreynd að stjórnvöld, ráðuneyti og ráðherrar hafa í gegnum tíðina sýnt verkefnum ákæruvaldsins lítinn skilning standa upp úr í skýrslunni að sínu mati. „Þá á ég við að hvorki hefur verið skilningur á mikilvægi né umfangi verkefnanna,“ segir Sigríður í svari við fyrirspurn Stundarinnar. Þá segir hún að í skýrslunni sé lögð áhersla á sjálfstæði ríkissaksóknara og ákæruvaldsins. „En sjálfstæðið fer fyrir lítið ef embættinu er ekki gert kleift að sinna verkefnum sínum sökum fjárskorts.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mikilvægi hvíldar vill oft gleymast
6
Viðtal

Mik­il­vægi hvíld­ar vill oft gleym­ast

Hvíld er ekki lúx­us held­ur líf­fræði­leg nauð­syn, seg­ir Bene­dikt Jó­hanns­son, sér­fræð­ing­ur í klín­ískri sál­fræði. Svefn og hvíld séu ein af grunnstoð­um góðr­ar heilsu og að lík­ams­klukk­an kalli á hvíld yf­ir dag­inn. Rann­sókn­ir sýni að hvíld skerpi ein­beit­ingu, minni og starfs­þrek. Bene­dikt tel­ur að vafa­samt hafi ver­ið að af­leggja kaffi­tíma á vinnu­stöð­um, því starfs­fólk­ið þurfi eft­ir sem áð­ur að kúpla að­eins frá vinnu og end­ur­næra sig.

Mest lesið í mánuðinum

„Ég kom úr mjög nánu, fallegu og stóru samfélagi kynlífsverkafólks“
4
Viðtal

„Ég kom úr mjög nánu, fal­legu og stóru sam­fé­lagi kyn­lífs­verka­fólks“

Eft­ir út­skrift úr há­skóla sótti Logn um rúm­lega hundrað störf en ekk­ert kom út úr því. Hán átti góða vini í kyn­lífs­vinnu sem hún leit­aði til. Síð­ar stofn­aði hán Rauðu regn­hlíf­ar­ina, sam­tök kyn­lífs­verka­fólks á Ís­landi. „Sam­stað­an sem kann að eiga sér stað með­al kyn­lífs­verka­fólks er eitt það fal­leg­asta og dýr­mæt­asta sem ég hef upp­lif­að í mínu lífi.“

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár