Illugi hafnar því að ganga erinda Orka Energy

Illugi Gunn­ars­son mennta­mála­ráð­herra seg­ist ekki þiggja laun frá orku­fé­lag­inu né starfa fyrir það lengur. Hann fór til Kína á dög­unum og með honum í för voru full­trúar félags­ins, en að sögn Illuga bar íslenska ríkið engan kostnað af því.

Illugi hafnar því að ganga erinda Orka Energy

Í gær­kvöld birt­ist frétt á Hring­braut þar sem greint var frá því að Illugi Gunn­ars­son hafi verið í vinnu­ferð til Kína á vegum Orka Energy. Í þeirri frétt var því haldið fram að Illugi væri í auka­starfi hjá orku­fyr­ir­tæk­inu. Í sam­tali við Stundina segir Illugi þessa frétt vera á mis­skiln­ingi byggð. Frétt Hring­brautar byggði á frétta­til­kynn­ingu frá mennta­mála­ráðu­neyt­inu þar sem sagt var frá vinnu­ferð Illuga til Kína, en í þeirri til­kynn­ingu kemur fram að með í för hafi verið aðilar frá Marel og Orku Energy.

„Athygli vekur að ekki voru með í för for­svars­menn fleiri íslenskra orku­fyr­ir­tækja. Það lítur óneit­an­lega heldur illa út að ráð­herra sem þiggur ráð­gjafa­laun hjá fyr­ir­tæki skuli nota stöðu sína sem ráð­herra til að setja upp opin­bera heim­sókn til stór­veld­is­ins Kína og bjóða með í ferð­ina því fyr­ir­tæki sem hann þiggur tekjur frá. Rík­is­sjóður kostar ferð ráð­herr­ans og fylgd­ar­fólks hans úr ráðu­neyt­inu og utan­rík­is­þjón­usta þjóð­ar­innar er notuð til að skipu­leggja heim­sókn­ina,“ segir í frétt Hring­brautar.

Gleymska að taka ekki út ráðgjafalaun

Illugi seg­ist hafi starfað hjá Orku Energy tíma­bundið meðan hann vék af þingi á árunum 2010 til 2012. Það hafi ein­fald­lega gleymst að breyta tengsla­skrán­ingu. „Það var gleymska að hafa ekki tekið þetta út. Vandinn er það sem menn skrá ekki, en ekki það sem þeir gleyma að afskrá,“ segir Illugi. Hann þiggi engin laun frá fyr­ir­tæk­inu í dag og hann hafi aðeins verið ráð­gjafi hjá þeim fyrir ríf­lega þremur árum.

Íslenska ríkið bar engan kostnað af fyrirtækjamönnum

Illugi ítrekar enn fremur að Íslenska ríkið hafi ekk­ert greitt fyrir aðil­anna frá Marel og Orku Energy sem hafi verið með í för til Kína. Hann segir að starfs­menn Orka Energy hafi verið staddir í Kína og því hafi íslenska ríkið engan kostnað greitt af fundi þeirra. „Þeir voru algjör­lega á eigin vegum. Íslenska ríkið bar engan kostnað af þessum mönnum,“ segir Illugi. Hann bætir við að allur ferða­kostn­aður við ferð Krist­ínar Ing­ólfs­dóttur, rektor Háskóla Íslands, Ara Kristins Jóns­sonar, rektor Háskól­ans í Reykja­vík  og Fríðu Björk Ingv­ars­dóttur, rektor Lista­há­skóla Íslands, hafi verið greiddur af við­kom­andi skólum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár