Illugi fékk líka lán sem hann vill ekki tala um

Illugi Gunn­ars­son mennta­mála­ráð­herra fæst ekki til að svara spurn­ingum um tengsl sín og Orku Energy. Fjöl­mörgum spurn­ingum er ósvarað um hags­muna­tengsl hans og fyr­ir­tæk­is­ins.

Illugi fékk líka lán sem  hann vill ekki tala um
Laun, lán og sala á íbúð Illugi Gunn­ars­son fékk laun frá Orku Energy sem og lán auk þess sem hann seldi stjórn­ar­for­manni fyr­ir­tæk­is­ins íbúð sína. Hann hefur ekki svarað þrettán tölvu­póstum með spurn­ingum og ítrek­unum. Mynd: Pressphotos

Illugi Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og mennta­mála­ráð­herra, fékk einnig lán frá orku­fyr­ir­tæk­inu Orku Energy, sem hann vann hjá sem ráð­gjafi, árið 2011. Áður hefur komið fram að Illugi hafi unnið hjá fyr­ir­tæk­inu meðan hann var í leyfi frá þing­störfum vegna athug­unar á meintum brotum sem til skoð­unar voru í tengslum við Sjóð 9 hjá Glitni þar sem Illugi var stjórn­ar­maður. Illugi hefur ekki svarað spurn­ingum um hversu mikið hann fékk greitt í heild­ina frá Orku Energy fyrir þessi störf en heim­ildir Stund­ar­innar herma – til eru gögn í mál­inu um þessi við­skipti Illuga og orku­fyr­ir­tæk­is­ins – að greiðsl­urnar hafi numið um tíu millj­ónum króna. 

Þá hefur einnig komið fram að Illugi hafi selt stjórn­ar­for­manni Orku Energy, Hauki Harð­ar­syni, íbúð­ina sína á Rán­ar­götu vegna fjár­hags­erfið­leika sem hann lenti í fyrir og eftir efna­hags­hrunið á Íslandi. Stundin greindi meðal ann­ars frá því að fjár­nám hefði verið gert í íbúð Illuga síðla árs 2007 vegna sjö millj­óna króna kröfu frá Glitni. Auk þess var Illugi Gunn­ars­son við veiðar í Vatns­dalsá á Norð­ur­landi á sama tíma og  Haukur Harð­ar­son í fyrra­sumar en Illugi hefur ekki svarað spurn­ingum Stund­ar­innar um það mál.

Þrettán tölvupóstar en engin svör

Tengslin við Hauk
Tengslin við Hauk Haukur Harð­ar­son er stjórn­ar­for­maður Orku Energy og keypti hann íbúð Illuga af honum auk eign­ar­halds­fé­lags hans. Hann og Illugi voru við veiðar í Vatns­dalsá á sama tíma í fyrra sumar.

Stundin hefur gert árang­urs­lausar til­raunir í margar vikur til að fá Illuga til að svara spurn­ingum um við­skipti sín og Orku Energy. Alls hefur Stundin sent honum þrettán tölvu­pósta í gegnum aðstoð­ar­mann hans þar sem beðið er um svör við spurn­ingum um þessi við­skipti. Engin svör hafa hins vegar borist enn við þeim frek­ari spurn­ingum sem sendar hafa verið til Illuga. 

Illugi svar­aði spurn­ingum fjöl­miðla um Orku Energy-málið fyrst um sinn en hætti því svo. Stundin sendi eft­ir­far­andi orð til aðstoð­ar­manns hans, Sigríðar Hall­gríms­dóttur, í tölvu­pósti þann 25. apríl síð­ast­lið­inn: „Ég er 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Illugi Gunnarsson og Orka Energy

Fréttir

Sam­starfs­maður íslenska rík­is­ins not­aði þrjú félög í skatta­skjólum

Haukur Harð­ar­son, fjár­festir og stjórn­ar­for­maður Orku Energy, átti að minnsta kosti þrjú félög í skatta­skjólum sem hann not­aði í við­skiptum sínum fyrir og eftir hrun. Stýrir fyr­ir­tæki sem á í sam­starfi við íslenska ríkið í orku­málum í Kína og hefur Haukur nokkrum sinnum fundað með Ólafi Ragnari Gríms­syni, for­seta Íslands, vegna orku­mála. Einsdæmi er að einka­fyr­ir­tæki kom­ist í þá stöðu sem Orka Energy er í í Kína.
PistillIllugi Gunnarsson og Orka Energy

Ingi Freyr Vilhjálmsson

Tvö hlið­stæð spill­ing­ar­mál en bara ein athugun á mútu­broti

Mál utan­rík­is­ráð­herra Sví­þjóðar, Margot Wallström, og mál Illuga Gunn­ars­sonar eru hlið­stæð að ýmsu leyti. Bæði leigðu íbúðir af eink­að­ilum af óljósum ástæðum. Ákæru­valdið í Svíþjóð hefur brugð­ist við í til­felli Wallström en eng­inn eft­ir­lits­að­ili hefur skoðað mál Illuga svo vitað sé. Af hverju stafar þessi munur á milli land­anna?
PistillIllugi Gunnarsson og Orka Energy

Ingi Freyr Vilhjálmsson

Illugi gerir und­ir­menn sína sam­á­byrga

Illugi Gunn­ars­son mennta­mála­ráð­herra gerði und­ir­menn sína í mennta­mála­ráðu­neyt­inu sam­á­byrga við skipu­lagn­ingu á opin­berri heim­sókn til Kína þar sem Orka Energy var í við­skipta­sendi­nefnd hans. Starfs­menn ráðu­neyt­is­ins vissu ekki um við­skipti Illuga og stjórn­ar­for­manns Orku Energy. Einn af und­ir­mönnum Illuga í ráðu­neyti er Ásta Magn­ús­dóttir sem kom að skipu­lagn­ingu ferð­ar­innar til Kína en ómögu­legt hefur verið að ná í hana til að spyrja hana spurn­inga um ferð­ina.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár