Hugsi yfir styrkjum Reykjavíkurborgar til Fjölskylduhjálpar: „Það þarf að stöðva svona dólga“

„Að fólk sem gefur sig út fyrir að þjón­usta fólk í neyð á vegum hjálp­ar­sam­taka leyfi sér slíka hat­urs­orð­ræðu hræðir mig,“ segir Magnús Már Guð­munds­son vara­borg­ar­full­trúi og full­trúi í mann­réttinda­ráði og vel­ferð­ar­ráði borg­ar­innar. Stundin fjall­aði um rasísk við­horf stjórn­ar­manna Fjöl­skyldu­hjálpar Íslands í gær, en sam­tökin eru styrkt árlega af Reykja­vík­ur­borg.

Hugsi yfir styrkjum Reykjavíkurborgar til Fjölskylduhjálpar: „Það þarf að stöðva svona dólga“

Magnús Már Guð­munds­son, vara­borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar og full­trúi í mann­réttinda­ráði og vel­ferð­ar­ráði Reykja­vík­ur­borgar, segir að þau rasísku við­horf stjórn­ar­manna Fjöl­skyldu­hjálpar Íslands sem Stundin fjall­aði um í gær séu óboð­leg fyrir sam­tök sem Reykja­vík­ur­borg styrkir. 

„Reykja­vík­ur­borg styrkir Fjöl­skyldu­hjálp Íslands um eina til tvær millj­ónir á ári. Ég get hins vegar ekki betur séð en að það þurfi að rýna vel í það ber­ist ný umsókn frá Fjöl­skyldu­hjálp­inni,“ segir Magnús í sam­tali við Stundina og vísar til þess að mann­rétt­inda­stefna Reykja­vík­ur­borgar skal höfð að leið­ar­ljósi við mat á umsóknum um styrki. „Þessi við­horf sem þarna birt­ast eru óboð­leg fyrir sam­tök sem borgin styrkir. Þær stöllur geta að minnsta kosti hrósað happi yfir því að ég sitji ekki í nefnd­inni sem mun fara yfir styrk­um­sókn­irnar.“

Stundin greindi frá því í gær að Anna Valdís Jóns­dóttir, stjórn­ar­maður í Fjöl­skyldu­hjálp Íslands hefði hringt inn á Útvarp Sögu til þess að dreifa róg­burði um skjól­stæð­inga hjálp­ar­sam­tak­anna. „Þetta hljóta að vera bara stríðs­glæpa­menn,“ sagði Anna Valdís Jóns­dóttir um útlend­inga sem þegið höfðu mat­ar­gjafir. Þá hafa bæði hún og Ásgerður Jóna Flosa­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Fjöl­skyldu­hjálpar, dreift áróðri gegn múslimum á sam­fé­lags­miðlum. Ásgerður Jóna hefur jafn­framt verið á fram­boðs­listum fyrir flokka sem sætt hafa gagn­rýni fyrir kyn­þátta­for­dóma.

„Það þarf að stöðva svona dólga“

Magnús Már vakti athygli á frétt Stund­ar­innar á Facebook-síðu sinni í gær og beindi sjónum að styrkjum Reykja­vík­ur­borgar til Fjöl­skyldu­hjálpar. „Það er ofboðs­lega sorg­legt að lesa um þessa afstöðu stjórn­ar­manna Fjöl­skyldu­hjálpar Íslands. Að fólk sem gefur sig út fyrir að þjón­usta fólk í neyð á vegum hjálp­ar­sam­taka leyfi sér slíka hat­urs­orð­ræðu hræðir mig,“ segir hann í sam­tali við Stundina. „Ekki bara út af þessu til­tekna máli, heldur einnig vegna þess hvernig það beinir sjónum að því hvernig ras­ismi er orð­inn hluti af raun­veru­leika okkar hér á landi. Ef við mót­mælum ekki harð­lega þegar við heyrum ummæli sem þessi þá erum við í þögn okkar að sam­þykkja þau – og greiða götu for­dóma og hat­urs til að festa sig í sessi. Það þarf að stöðva svona dólga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Sveitastjórnarmál

Sveitarstjórnarmenn og hættan á hagsmunaárekstrum í íslensku laxeldi
Úttekt

Sveit­ar­stjórn­ar­menn og hættan á hags­muna­á­rekstrum í íslensku lax­eldi

Fjögur dæmi eru um það að íslenskir sveit­ar­stjórn­ar­menn hafi verið starf­andi hjá lax­eld­is­fyr­ir­tækjum á Vest­fjörðum og Aust­ur­landi á sama tíma og þeir voru kjörnir full­trúar. Fjögur slík dæmi er hægt að finna frá síð­asta kjör­tíma­bili sveit­ar­stjórna en í dag er aðeins einn starfs­maður lax­eld­is­fyr­ir­tækis starf­andi í sveit­ar­stjórn. Þetta fólk segir að ekki sé rétt­læt­an­legt að skerða atvinnu­mögu­leika fólks í litlum bæjum þar sem ekki sé mikið um fjöl­breytta atvinnu.
Eyþór Arnalds í dulbúnu hverfisblaði Sjálfstæðismanna: „Ég myndi vilja snúa til baka og rýmka vegakerfið“
FréttirSveitastjórnarmál

Eyþór Arnalds í dul­búnu hverf­is­blaði Sjálf­stæð­is­manna: „Ég myndi vilja snúa til baka og rýmka vega­kerfið“

Oddviti Sjálf­stæð­is­flokks­ins vill „rýmka vega­kerfið“ á helstu umferð­ar­götum borg­ar­innar og draga úr þétt­ingu byggðar, þvert á stefnu flokks­ins í nýaf­stöðnum kosn­ingum. Þetta kemur fram í nýju hverf­is­blaði sem er rit­stýrt af félagi Sjálf­stæð­is­manna, en ekk­ert stendur um tengslin á vef­síðu þess.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár