Tugir milljóna í launagreiðslur vegna stjórnarsetu sveitarstjórnarmanna

Stjórn­ar­menn í stjórn Félags­bú­staða fengu 900 þús­und krónur í aft­ur­virka launa­hækkun. Borgar- og bæj­ar­full­trúar fá greiddar umtals­verðar upp­hæðir fyrir setu í stjórnum fyr­ir­tækja, ofan á laun sín.

Tugir milljóna í launagreiðslur vegna stjórnarsetu sveitarstjórnarmanna
Meiri­hluti borg­ar­stjórnar Á hverju ári þiggja borgar- og bæj­ar­full­trúar tugi millj­óna í greiðslur fyrir setu í stjórnum fyr­ir­tækja. Á borg­ar­stjórn­ar­fundi á þriðju­dag­inn deildi meiri­hlut­inn með sér emb­ættum sem hækka laun þeirra um millj­ónir ár hvert.

Borg­ar­full­trúar og sveit­ar­stjórn­ar­menn fá sér­stakar greiðslur, umfram föst laun sín, fyrir setu í stjórnum félaga á vegum hins opin­bera. Heild­ar­upp­hæðir þess­ara greiðslna hlaupa á tugum millj­óna króna. Stjórn­irnar funda mis­oft og eru full­trúar borgar og bæja mis­dug­legir við að sækja fund­ina. Lang­flestir sem eiga sæti í stjórn­unum eru full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins en þeir eru jafn­framt með lök­ustu mæt­ing­una á stjórn­ar­fundi.

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins, lagði til á fyrsta fundi borg­ar­stjórnar á þriðju­dag að banna stjórn­endum og kjörnum full­trúum borg­ar­innar að þiggja þóknun fyrir fund­ar­setu í stjórnum, ráðum og nefndum sem haldnir eru á vinnu­tíma.

„Fyrsta skrefið ætti að vera að banna þessu fólki að taka þókn­anir fyrir fundi sem það situr í vinnu­tíma sinnar aðal­vinnu og sem eru því aug­ljós­lega hluti af þeim starfs­skyldum sem það fær greitt fyrir af föstum launum,“ er haft eftir Sönnu í frétta­til­kynn­ingu frá Sós­í­alista­flokknum.

„Fyrsta skrefið ætti að vera að banna þessu fólki að taka þókn­anir fyrir fundi sem það situr í vinnu­tíma sinnar aðal­vinnu“

Daníel Örn Arn­ars­son, vara­borg­ar­full­trúi sós­í­alista og stjórn­ar­maður í stétt­ar­fé­lag­inu Eflingu, tekur í sama streng. „Konan sem skúrar skrif­stofu Dags B. Egg­erts­son er lík­lega með lág­marks­laun, 300 þús­und krónur á mán­uði,“ segir Daníel. „Dagur sjálfur tekur síðan 330 þús­und krónur í þóknun fyrir einn klukku­tíma á fundi hjá slökkvi­lið­inu. Borg­ar­full­trúar verða að stoppa þetta.“

Stundin tók saman greiðslur til borg­ar­full­trúa fyrir setu í stjórnum fyr­ir­tækja. Á borg­ar­stjórn­ar­fundi síð­ast­lið­inn þriðju­dag var end­ur­kjörið í flestar stjórnir sem full­trúar Reykja­vík­ur­borgar eiga sæti í.

Laun borgarfulltrúa hækkuðu um tíu prósent í fyrra

Í kjöl­far hins umdeilda úrskurðar kjara­ráðs á kjör­dag til Alþingis þann 29. októ­ber árið 2016 hafa laun kjör­inna full­trúa hjá sveit­ar­stjórnum hækkað gríð­ar­lega. Mörg sveit­ar­fé­lög höfðu það fyr­ir­komu­lag að laun kjör­inna full­trúa voru tengd þing­far­ar­kaupi og því var útlit fyrir að laun þeirra myndu hækka um 45 pró­sent, eins og laun þing­manna í kjöl­far úrskurðar kjara­ráðs.

Miklar deilur sköp­uð­ust meðal borg­ar­full­trúa hvernig leysa ætti málið og vildu sumir borg­ar­full­trúar hækka launin í sam­ræmi við úrskurð kjara­ráðs. Þann 4. apríl í fyrra sam­þykktu full­trúar Sam­fylk­ing­ar­innar, Bjartrar fram­tíðar, Vinstri grænna og Pírata í borg­ar­ráði Reykja­vík­ur­borgar að afnema þing­far­ar­kaupsteng­ing­una. Svein­björg Birna Svein­björns­dóttir, þáver­andi borg­ar­full­trúi Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina, greiddi atkvæði gegn til­lög­unni á meðan þáver­andi borg­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Guðfinna Jóhanna Guð­munds­dóttir, full­trúi Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina, sátu hjá.

Með afnámi þing­far­ar­kaupsteng­ing­ar­innar var ákveðið að tengja laun borg­ar­full­trú­anna við launa­vísi­tiölu. Þannig nam hækk­unin á launum borg­ar­full­trúa um tíu pró­sentum og hækk­uðu grunn­laun úr 593.720 krónum í 653.022 krónur en þau nema í dag um 700 þús­und krónum vegna hækk­unar launa­vísi­tölu.

Í grunn­launum fel­ast að fullu greiðslur fyrir setu í nefndum og ráðum borg­ar­innar, þar með talið for­mennsku í öðrum nefndum en fasta­nefndum. Þá er gert ráð fyrir því að borg­ar­full­trúi sitji í einni af aðal­fasta­nefndum borg­ar­innar. 

Fyrir for­mennsku í fasta­nefnd fá borg­ar­full­trúar greitt álag sem nemur 25 pró­sent af grunn­laun­unum, eða um 165 þús­und krónur. Fyrir for­mennsku í borg­ar­stjórn­ar­flokki fá borg­ar­full­trúar greitt sama álag og sama gegnir um þá sem sitja í þremur eða fleiri fasta­nefndum. Þá fær for­maður borg­ar­ráðs greitt 40 pró­senta álag af grunn­laun­unum.

Auk þess fá borg­ar­full­trúar greiddar rúmar 50 þús­und krónur í starfs­kostnað hvern mánuð. Sú upp­hæð er greidd vegna per­sónu­legra útgjalda vegna starfs­ins, til dæmis áskriftir dag­blaða, bóka- og tíma­rita­kaupa, ferðir innan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og veit­ingar. Þá leggur Reykja­vík­ur­borg hverjum borg­ar­full­trúa til far­síma og greiðir kostnað af notkun hans, eins og af netteng­ingu á heim­ilum borg­full­trúa. Borg­ar­full­trúum er jafn­framt úveguð skrif­stofa og almennur skrif­stofu­bún­aður, þar með talið far­tölva.

Þrátt fyrir að laun borg­ar­full­trúa séu rúm­lega tvö­falt hærri en lág­marks­laun, með ríku­legum álags­greiðslum, nema greiðslur til borg­ar­full­trúa vegna setu í stjórnum fyr­ir­tækja tug­millj­ónum króna á hverju ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Sveitastjórnarmál

Sveitarstjórnarmenn og hættan á hagsmunaárekstrum í íslensku laxeldi
Úttekt

Sveit­ar­stjórn­ar­menn og hættan á hags­muna­á­rekstrum í íslensku lax­eldi

Fjögur dæmi eru um það að íslenskir sveit­ar­stjórn­ar­menn hafi verið starf­andi hjá lax­eld­is­fyr­ir­tækjum á Vest­fjörðum og Aust­ur­landi á sama tíma og þeir voru kjörnir full­trúar. Fjögur slík dæmi er hægt að finna frá síð­asta kjör­tíma­bili sveit­ar­stjórna en í dag er aðeins einn starfs­maður lax­eld­is­fyr­ir­tækis starf­andi í sveit­ar­stjórn. Þetta fólk segir að ekki sé rétt­læt­an­legt að skerða atvinnu­mögu­leika fólks í litlum bæjum þar sem ekki sé mikið um fjöl­breytta atvinnu.
Eyþór Arnalds í dulbúnu hverfisblaði Sjálfstæðismanna: „Ég myndi vilja snúa til baka og rýmka vegakerfið“
FréttirSveitastjórnarmál

Eyþór Arnalds í dul­búnu hverf­is­blaði Sjálf­stæð­is­manna: „Ég myndi vilja snúa til baka og rýmka vega­kerfið“

Oddviti Sjálf­stæð­is­flokks­ins vill „rýmka vega­kerfið“ á helstu umferð­ar­götum borg­ar­innar og draga úr þétt­ingu byggðar, þvert á stefnu flokks­ins í nýaf­stöðnum kosn­ingum. Þetta kemur fram í nýju hverf­is­blaði sem er rit­stýrt af félagi Sjálf­stæð­is­manna, en ekk­ert stendur um tengslin á vef­síðu þess.
Vaðlaheiðargöng gera 25 milljóna króna samning við fyrirtæki forseta bæjarstjórnar Akureyrar
FréttirSveitastjórnarmál

Vaðla­heið­ar­göng gera 25 millj­óna króna samn­ing við fyr­ir­tæki for­seta bæj­ar­stjórnar Akur­eyrar

Tölvu­fyr­ir­tæki for­seta bæj­ar­stjórnar Akur­eyrar, Matth­í­asar Rögn­valds­sonar, var valið til að vinna að greiðslu­lausn fyrir Vaðla­heið­ar­göng. Akur­eyr­ar­bær er næst­stærsti hluhtafi fyr­ir­tæk­is­ins sem á göngin. Matthías segir aðkomu sína og Akur­eyr­ar­bæjar að samn­ingnum ekki hafa verið neina.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár