Í september árið 2004 varð nokkurt fjölmiðlafár í kringum skipan nýs dómara við Hæstarétt. Jón Steinar Gunnlaugsson, harðskeyttur lögmaður og umdeildur, var þá skipaður dómari þrátt fyrir að hæfisnefnd dómara við Hæstarétt hefði metið hann hvað lakastan kost umsækjenda. Jón Steinar var skipaður af sjálfstæðismanninum Geir H. Haarde, settum dómsmálaráðherra og þáverandi fjármálaráðherra. Jón Steinar var einn af bestu vinum Davíðs Oddssonar formanns Sjálfstæðisflokksins og var talinn njóta þeirra tengsla.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.















































Athugasemdir