Heldur að úrskurðarnefnd sé dómstig

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins til 13 ára, heldur að úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál fari með dóms­vald. Um sjálf­stæða stjórn­sýslu­nefnd er að ræða. Hún fer með hlut­verk sem ellegar væri falið ráð­herra á við­kom­andi mál­efna­sviði.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins til 13 ára og fyrr­ver­andi heil­brigð­is­ráð­herra, heldur að úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál fari með dóms­vald.

Þetta kom í ljós þegar rætt var um nefnd­ina og hið svo­kall­aða leyni­her­bergi á Alþingi í þætt­inum Þjóð­braut á Hring­braut í gær.

Guð­laugur og Svandís Svav­ars­dóttir, þing­floks­for­maður Vinstri grænna, voru gestir Sig­ur­jóns M. Egils­sonar í sjón­varps­sal. Sagði Guð­laugur að úrskurð­ar­nefndin hefði meinað þeim Vigdísi Hauks­dóttur að birta ákveðnar upp­lýs­ingar úr leyni­her­berg­inu er varði upp­gjör á þrota­búum föllnu bank­anna. 

Aðspurður hvers vegna umrædd gögn hefðu ekki verið gerð opin­ber sagði Guð­laugur: „Við erum að reyna að vinna í því, það snýr að því að við erum hér með úrskurð­ar­nefnd upp­lýs­inga­mála, sem er dóm­stig, sem hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að ákveð­inn þáttur þarna sé eitt­hvað sem megi ekki sýna.“

Hvorki Svandís né Sigurjón gerði athuga­semd við þá for­sendu Guðlaugs að um ein­hvers konar dóm­stig væri að ræða. 

SME: „Þetta eru upp­lýs­ingar sem þið teljið að verði að kom­ast til þjóð­ar­innar?“

GÞÞ: „Algjör­lega, ekki nokkur ein­asta spurn­ing.“

SS: „Og af hverju hefur það ekki verið gert?“

GÞÞ: „Maður er nú að reyna að gera það lög­lega sko, maður getur nátt­úr­lega farið þarna með mynda­vél­ina sína...“

SS: „En ég meina, eruð þið ekki með meiri­hluta í þing­inu?“

GÞÞ: „Jú, en við förum nú alla jafna ekki inn á verk­svið dóm­stóla en þetta er það sem við erum að skoða akkúrat núna.“

SS: „Dóm­stólar starfa á grund­velli laga“ 

GÞÞ: „Jú en þú ættir nú að þekkja það að þeir eru sjálf­stætt, það er þrí­skipt­ing hér og við getum ekki farið og breytt nið­ur­stöðu dóm­stóla, alla­vega þurfum við að skoða það vand­lega hvernig við gerum það.“

Í frétt Hring­brautar um málið segir orð­rétt: „Guð­laugur Þór minnti á sjálf­stæði dóm­stóla, en úrskurð­ar­nefnd upp­lýs­inga­laga hefur stöðu dóm­stóls.“ 

Hið rétta er að  úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál er sjálf­stæð og óháð stjórn­sýslu­nefnd sem starfar á grund­velli upp­lýs­inga­laga og er skipað til hliðar við hið almenna stjórn­kerfi ríkis og sveit­ar­fé­laga. Úrskurðir nefnd­ar­innar eru end­an­legir og verður ekki skotið annað innan stjórn­sýsl­unnar. Hins vegar er hægt að höfða mál til ógild­ingar á úrskurði úrskurð­ar­nefnd­ar­innar fyrir dóm­stólum.

Í árs­skýrslu umboðs­manns Alþingis fyrir árið 2014 er fjallað um úrskurð­ar­nefndir í stjórn­sýsl­unni. Fram kemur að þær gegni mik­il­vægu eft­ir­lits- og réttar­ör­ygg­is­hlut­verki við með­ferð kæru­mála og fari með hlut­verk sem væri almennt ann­ars falið ráð­herra á við­kom­andi mál­efna­sviði.  

Þannig er ljóst að bolla­leng­ingar um sjálf­stæði dóms­valds eiga ekki við í þessu sam­hengi. Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál heyrir undir fram­kvæmda­valdið en ekki dóms­valdið. Nefndin er ekki dóm­stig. Einungis tvö dóm­stig eru á Íslandi; hér­aðs­dómur og Hæsti­réttur. Þegar ný lög um dóm­stóla taka gildi mun þriðja stigið, milli­dóm­stig, bæt­ast við. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár