Guðni gefur ungbörnum blóð

Sagn­fræð­ing­ur­inn Guðni Th. Jóhann­es­son, sem mun boða hvort hann bjóði sig fram til for­seta á fimmtu­dag­inn, hefur gefið blóð 46 sinnum. Blóðið er notað til bjargar ung­börnum.

Guðni gefur ungbörnum blóð

Sagn­fræð­ing­ur­inn Guðni Th. Jóhann­es­son, sem mun til­kynna um mögu­legt for­seta­fram­boð sitt á upp­stign­ing­ar­dag, gaf blóð í Blóð­bank­anum í dag.

Birt er mynd af blóð­gjöf­inni á Facebook. Þar kemur fram að Guðni er í sjald­gæfum blóð­flokki, sem er sá eini sem hægt er að gefa ung­börnum þegar þau þurfa á blóð­gjöf að halda.

Í færslu um blóð­gjöf­ina segir Jórunn Frí­manns­dóttir, deild­ar­stjóri Blóð­bank­ans. „Guðni er í þeim sjald­gæfa blóð­flokki AB mínus, en innan við hálft pró­sent lands­manna eru í þeim blóð­flokki. AB mínus blóð­vökvi er eini blóð­vök­vinn sem not­aður er í unga­börn og því þarf hann alltaf að vera til.“ 

Hefur gefið blóð 46 sinnum

Guðni Th.
Guðni Th. Hátt í sjö þús­und manns hefur líkað við Facebook-síðu um áskorun á Guðna Th. Jóhann­es­son um að bjóða sig fram til for­seta.

Samkvæmt frá­sögn Jórunnar hefur Guðni marg­sinnis gefið úr sér blóð.

„Guðni hefur komið reglu­lega í blóð­skilju­vél í Blóð­bank­anum síð­ustu 2 árin, en í heild­ina hefur hann gefið 46 sinnum. Nú er stóra spurn­ingin hvort for­seta­bíll­inn muni renna reglu­lega upp að dyrum Blóð­bank­ans næstu árin,“ skrifar Jórunn.

Guðni Th. hefur boðað til fundar í Salnum í Kópavogi næst­kom­andi fimmtu­dag, á upp­stign­ing­ar­dag. Hann kveðst vera kom­inn að nið­ur­stöðu um hvort hann muni bjóða sig fram til for­seta eða ekki.

Nýtur stuðnings Pírata

Samkvæmt skoð­ana­könnun Frjálsrar versl­unar, sem gerð var dag­ana 26. apríl til 1. maí, mælist Guðni með 39 pró­senta stuðn­ing, en sitj­andi for­seti, Ólafur Ragnar Grímsson 47,6 pró­sent. Andri Snær Magnason rit­höf­undur mælist með 13,4 pró­sent stuðn­ing.

Stuðn­ings­fólk rík­is­stjórn­ar­innar er lík­legra til að styðja Ólaf Ragnar en hina fram­bjóð­end­urna. 53 pró­sent stuðn­ings­manna Pírata styðja Guðna, en 72 pró­sent stuðn­ings­manna fram­sókn­ar­flokks styðja Ólaf Ragnar. 

Kosið verður laug­ar­dag­inn 25. júní.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2016

Saga af tveimur forsetum: Helgi fokking Björns. Og hnykkurinn
Karl Th. Birgisson
Skoðun

Karl Th. Birgisson

Saga af tveimur for­setum: Helgi fokk­ing Björns. Og hnykk­ur­inn

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur flutt um 35 ræður og erindi frá því hann varð for­seti. Hann hefur notað þau í að kveða niður þjóð­rembu og forð­að­ist meðal ann­ars upp­hafn­ingu þjóð­kirkj­unnar. Hann sker sig frá Ólafi Ragnari Gríms­syni, sem í kosn­inga­bar­áttu sinni 1996 hafði sem ein­kenn­islag „Sjá dagar koma“ eftir Davíð Stef­áns­son, þar sem alda­löngum þrautum Íslend­inga er lýst.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár