Greining ógnarinnar og óttinn sem fylgir

Ólöf Nordal vill opna umræð­una um for­virkar rann­sókn­ar­heim­ildir. Umræðan hefur staðið yfir í ára­tug.

Greining ógnarinnar og óttinn sem fylgir
Löng bar­átta Haraldur Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóri hefur lengi talað fyrir því að lög­reglan fái for­virkar rann­sókn­ar­heim­ildir.

Grein­ing­ar­deild rík­is­lög­reglu­stjóra kallar eftir því í nýju „mati rík­is­lög­reglu­stjóra á hættu af hryðju­verkum og öðrum stór­felldum árásum“ að íslenska lög­reglan fái for­virkar rann­sókn­ar­heim­ildir. Með for­virkum rann­sóknar­heim­ildum gæti lög­reglan rann­sakað hugs­an­leg eða ætluð brot áður en þau eru framin, til dæmis með síma­hler­unum, án þess að til staðar væri rök­studdur grunur um refsi­verða hátt­semi. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem grein­ing­ar­deild rík­is­lög­reglu­stjóra leggur til að íslenska lög­reglan fái for­virkar rann­sókn­ar­heim­ildir. Raunar lagði deildin slíkt til í fyrsta hættu­mati sínu árið 2008 og hefur gert það árlega síðan þá. Hjá rík­is­lög­reglu­stjóra hafa menn nefnt ýmsar ólíkar ástæður fyrir nauð­syn þess að útvíkka rann­sókn­ar­heim­ildir sínar, þar á meðal skipu­lagða glæp­a­starf­semi og hryðju­verkaógn en einnig fjölgun hæl­is­leit­enda og ferða­lög Íslend­inga til fjar­lægra landa.

Íslenska leyniþónustan

Rekja má áhuga íslenskra lög­reglu­yf­ir­valda á for­virkum rann­sókn­ar­heim­ildum ára­tug aftur í tím­ann þegar Björn Bjarna­son, þáver­andi dóms- og kirkju­mála­ráð­herra, bauð sér­fræð­ingum Evr­ópu­sam­bands­ins í lög­reglu- og hryðju­verka­málum hingað til lands vorið 2006 í þeim til­gangi að vinna sér­staka mats­skýrslu um hryðju­verka­varnir á Íslandi. Á meðal til­lagna var að nýrri þjóðar­ör­ygg­is­deild, eins­konar leyni­þjón­ustu með 25 til 30 starfs­menn og for­virkar rann­sókn­ar­heim­ildir, yrði komið á kopp­inn.

Stuttu síðar var frum­varp dóms- og kirkju­mála­ráð­herra um grein­ing­ar­deild hjá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra sam­þykkt á alþingi. Tók hún til starfa í upp­hafi árs 2007 og hefur þann til­gang að rann­saka „land­ráð og brot gegn stjórn­skipan rík­is­ins og æðstu stjórn­völdum þess“ og leggja „mat á hættu á hryðju­verkum og skipu­lagðri glæp­a­starf­semi“. Deildin kemst nálægt því að vera þjóðar­ör­ygg­is­deild en ræður ekki yfir rann­sókn­ar­heim­ildum umfram almennu lög­regl­una og hefur frá upp­hafi lagt mikla áherslu á að fá for­virkar rann­sókn­ar­heim­ildir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár