Fyrirtæki ríkasta Íslendingsins fær lóð í Vatnsmýrinni: „Við munum ekki tala um það í dag“

CCP neitar að gefa upp eign­ar­haldið á nýjum höf­uð­stöðvum sínum í Vatns­mýr­inni. Björgólfur Thor Björg­ólfs­son er stærsti hlut­hafi CCP. Háskóli Íslands afhendir lóð­ina til CCP: Fjórtán þús­und fer­metra fast­eign.

Fyrirtæki ríkasta Íslendingsins fær lóð í Vatnsmýrinni: „Við munum ekki tala um það í dag“
Stærsti eig­and­inn Björgólfur Thor Björg­ólfs­son er stærsti eig­andi CCP sem flytur höf­uð­stöðvar sínar á lóð háskól­ans í Vatns­mýr­inni.

„Núna að við erum að taka þetta skref með háskól­anum og það er það sem við erum að gera í dag,“ segir Hilmar Veigar Pét­urs­son, fram­kvæmda­stjóri tölvu­leika­fram­leið­and­ans CCP, sem neitar að gefa upp eign­ar­haldið á nýjum höf­uð­stöðvum CCP í Vatns­mýr­inni. 

Tilkynnt var um flutn­ing tölvu­leikja­fram­leið­and­ans í nýtt hús­næði við Sturlu­götu sem til stendur að reisa í dag. CCP fær lóð­ina undir húsið frá Vís­inda­görðum Háskóla Íslands en upp­haf­lega gaf Reykja­vík­ur­borg skól­anum lóð­ina á 50 ára afmæli háskól­ans árið 1961.

Þrá­spurður neitar Hilmar Veigar að gefa upp eign­ar­hald húss­ins. „Við munum ekki tala um það í dag.· Blaða­maður: „Af hverju ekki?“ HIlmar Veigar: „Af því að það er ekki tím­inn til þess núna því við erum að ein­beita okkur að þessu núna.“ Blaða­maður: „En liggur það fyrir hver mun eiga húsið?“ Hilmar Veigar: „Þú ert að þrá­spyrja mig um eitt­hvað sem ég er búinn að svara þér: Við munum ekki tala um það í dag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár