Forstjóri Mjólkursamsölunnar mótar landbúnaðarstefnu Sjálfstæðisflokksins

Í lands­fund­ar­á­lyktun atvinnu­vega­nefndar flokks­ins, þar sem Ari Edwald gegnir for­mennsku, er lögð áhersla á „eðli­lega“ sam­keppni og að land­bún­aður sé rek­inn á mark­aðs­for­sendum. Í síð­ustu viku var Mjólk­ur­sam­salan sektuð fyrir sam­keppn­is­brot og mis­notkun á mark­aðs­ráð­andi stöðu.

Ari Edwald, for­stjóri Mjólk­ur­sam­söl­unnar, er for­maður atvinnu­vega­nefndar Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þeirrar mál­efna­nefndar sem mótar stefnu flokks­ins í atvinnu-, auð­linda-, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­málum á lands­fundi. Sam­keppn­is­eft­ir­litið sektaði Mjólk­ur­sam­söl­una um 480 millj­ónir króna í síð­ustu viku vegna alvar­legra brota á sam­keppn­is­lögum og mis­notkun á mark­aðs­ráð­andi stöðu. Brotin voru framin áður en Ari tók við sem for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, en hann hefur tekið til varna fyrir fyr­ir­tækið í fjöl­miðlum og full­yrt að kostn­að­ur­inn af sekt­inni muni lenda á neyt­endum. 

 

„MS mis­not­aði mark­aðs­ráð­andi stöðu sína með því að selja keppi­nautum sínum grund­vall­ar­hrá­efni til fram­leiðslu á mjólk­ur­vörum á óeðli­lega háu verði á sama tíma og MS sjálft og tengdir aðilar fengu þetta hrá­efni á mun lægra verði, og að auki undir kostn­að­ar­verði. Var þetta til þess fallið að veita MS og tengdum aðilum veru­legt sam­keppn­is­for­skot gagn­vart keppi­nautum,“ segir í reifun á nið­ur­stöðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. „Með þessu móti var geta keppi­nauta til þess að keppa við MS og tengd félög skert með alvar­legum hætti, en það er til þess fallið að skaða á end­anum hags­muni neyt­enda og bænda. Þá liggur fyrir að MS veitti Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu rangar upp­lýs­ingar og lét undir höfuð leggj­ast að upp­lýsa eft­ir­litið um mik­il­væg gögn. Hefur það tafið úrlausn máls­ins og skaðað sam­keppni.“

Tollvernd MS uppreiknuð

Í ályktun atvinnu­vega­nefndar Sjálf­stæð­is­flokks­ins frá lands­fundi í októ­ber 2015, undir for­mennsku Ara, er lögð rík áhersla á heil­brigða og eðli­lega sam­keppni og sér­stak­lega tekið fram að land­bún­aður skuli rek­inn á mark­aðs­for­sendum. Þá hvatti atvinnu­vega­nefnd til þess að gerð búvöru­samn­inga yrði lokið sem fyrst til að eyða óvissu um starfs­skil­yrði land­bún­að­ar­ins. 

Nokkrum mán­uðum síðar, þann 19. febr­úar á þessu ári, voru umræddir búvöru­samn­ingar und­ir­rit­aðir í atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Búvörusamningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár