Forstjóri Haga: Forsætisráðherra sýnir mikið ímyndunarafl

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son sakar kaup­menn um frekju og segir þá vilja hækka álagn­ingu. Hann segir rík­is­styrki til land­bún­að­ar­fram­leiðslu og tolla á mat­væli snú­ast um að stuðla að lágu mat­væla­verði. Finnur Árnason, for­stjóri Haga, segir hins vegar að land­bún­að­ar­verndin leiði til umfram­kostn­aðar upp á 16 til 18 millj­arða fyrir neyt­endur.

Forstjóri Haga: Forsætisráðherra sýnir mikið ímyndunarafl
Finnur Árnason For­stjóri Haga, sem reka Bónus og Hagkaup, segir að álagn­ing á sölu mat­væla hafi minnkað hjá félag­inu. For­sæt­is­ráð­herra sakar kaup­menn um að ætlar sér að auka álagn­ingu. Mynd: Youtube

Finnur Árnason, for­stjóri Haga, er ósam­mála þeirri yfir­lýs­ingu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra í við­tali á Bylgj­unni í morgun að styrkir og tollar vegna land­bún­að­ar­fram­leiðslu á Íslandi snú­ist um að stuðla að lágu mat­væla­verði fyrir íslenska neyt­endur.

Sig­mundur áfelld­ist kaup­menn fyrir „frekju“ vegna þess að þeir vildu leggja niður eða lækka tolla á inn­flutt mat­væli, líkt og stendur til með fatnað og fleiri vörur. Hann segir Ísland vera „í með­al­tali Evr­ópu­sam­bands­ins í mat­væla­verði“. Tölur OECD frá 2012 sýna hins vegar að Ísland hafi verið 18 pró­sent yfir mat­væla­verði í Evr­ópu­sam­band­inu.

Segir neytendur borga 16 til 18 milljarða

„Það liggur fyrir því að það er mót­sögn í því sem hann segir. Annars vegar segir hann að mat­væla­verð sé lágt og hins vegar að versl­unin sé að leggja of mikið á. Neyt­endur eru að borga senni­lega 16 til 18 millj­arða fyrir óhag­kvæmt land­bún­að­ar­kerfi. Að kalla það frekju kaup­manna að fólk hafi skoðun á því er ein­földun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár