Hildur Þórðardóttir: „Ég er nýja Ísland“

Þjóð­fræð­ing­ur­inn og rit­höf­und­ur­inn Hildur Þórð­ar­dóttir vakti strax athygli á sér í for­seta­fram­boð­inu eftir að van­trú á vís­indum og óhefð­bundnar hug­myndir hennar um heilun og lækn­is­fræði komu við kaunin á mörgum. Sýn hennar á þessi mál­efni eru þó skilj­an­leg ef skoðuð í sam­hengi við lit­ríkt lífs­hlaup hennar.

Hildur Þórðardóttir: „Ég er nýja Ísland“
Hildur Losnaði við feimn­ina við það að breyta um föð­ur­nafn. Mynd: Kristinn Magnússon

Í des­em­ber árið 1967 fædd­ist í Reykja­vík Hildur Bjarna­dóttir, boga­maður. „Pabbi minn er lista­maður. Alvörupabbi minn. Bjarni H. Þór­ar­ins­son heitir hann.“ Móðir hennar var ung þegar hún eign­að­ist hana og bjuggu þær mæðgur hjá ömmu og afa Hildar fyrstu árin. Eftir að móðir hennar kynnt­ist svo Þórði Jónssyni, fóst­ur­föður Hildar, flutti fjöl­skyldan í Laug­arás­inn, þar sem þau bjuggu svo þar til Hildur var átta ára. Þvínæst fluttu þau í Hafn­ar­fjörð, þar sem Hildur bjó næstu átta árin, þar til hún hóf nám í Versl­un­ar­skól­anum, en þá flutti fjöl­skyldan til Reykja­víkur. „Og þá skipti ég um eft­ir­nafn. Í stað­inn fyrir að vera Bjarna­dóttir varð ég Þórð­ar­dóttir. Aðal­á­stæðan fyrir mér var að á póst­kass­anum stóð alltaf Þórður Jónsson, Björg Hanssen, svo stóð alltaf Hildur Bjarna­dóttir og svo tvær Þórð­ar­dætur, systur mínar. Mér fannst ég alltaf stinga svo í stúf, það var svo greini­legt að ég var ekki hluti af þess­ari fjöl­skyldu. Þetta er örugg­lega eitt­hvað sem margir upp­lifa sem eru svona fóst­ur­börn. Ég vildi til­heyra fjöl­skyld­unni og þess vegna ákvað ég að breyta um eft­ir­nafn. Það var ástæðan fyrir því að ég gerði þetta.“

„Þetta er svona áhuga­mál hjá mér, ekk­ert sem ég lifi eftir.“

Við það að breyta um föð­ur­nafn vill Hildur meina að hún hafi einnig breytt um per­sónu­leika. Hún hafi fram að þessu verið feimin og til baka, „en ég ákvað að hætta að vera feimin, ákvað að tala við alla. Varð bara opin mann­eskja, ákvað að opna mig.“ Ein af hugs­an­legum ástæðum þess að per­sónu­leiki hennar breytt­ist telur Hildur að megi liggja í talna­speki. „Þegar ég var Hildur Bjarna­dóttir þá var ég 3, sem er bara lokuð týpa og inni í sér. En þegar ég skipti um föð­ur­nafn varð ég 1, sem er leið­toga­tala. Ég er líka með fæð­ing­ar­töl­una 1, þannig að ég er tvö­faldur ás.“ Hún segir talna­spek­ina þó ekki vera neinn mið­punkt í sinni til­veru. „Það er bara gaman að pæla í þessu, þetta er svona áhuga­mál hjá mér, ekk­ert sem ég lifi eftir.“

Hneigðist ung til ritlistar

Uppeldi sínu lýsir Hildur sem mjög öruggu. Fjöl­skyldan hafi til dæmis haft skemmti­lega hefð á laug­ar­dags­kvöldum, þegar hún bjó til heima­til­bú­inn sjeik og horfði saman á skemmti­þátt­inn Löður. „Við köll­uðum þetta sjeik með Löðri.“

Þrátt fyrir að hafa verið verð­launuð fyrir náms­ár­angur í barna­skóla seg­ist Hildur hafa verið komin með algjört ógeð á öllu námi eftir Versló. Hún fór sem skiptinemi til Maine í Banda­ríkj­unum, sem hún vill meina að hafi ruglað aðeins í sér. „Þannig að eftir stúd­ents­próf þá var ég bara að flakka um heim­inn og prófa hitt og þetta.“

Á flakki sínu próf­aði Hildur ýmis­legt, meðal ann­ars að vinna og búa í London, auk þess sem hún lærði tísku­mark­aðs­fræði í San Diego, Kali­forníu. Eitt af því sem blund­aði þó alltaf í henni var draum­ur­inn um að vera rit­höf­undur. Hildur hafði fiktað við skriftir frá því hún var barn, þegar hún skrif­aði meðal ann­ars sögur og ævin­týri, sem hafa varð­veist. Eftir að hafa farið á flakk um heim­inn og prófað eitt og annað kom hún svo aftur heim, 26 ára gömul, og ætl­aði að vera rit­höf­undur.

Það reynd­ist þó aðeins flókn­ari heimur að kom­ast inn í en hún gerði ráð fyrir. Hildur dó þó ekki ráða­laus, frekar en fyrri dag­inn, og gekk í leik­fé­lagið Hugleik, fyrst sem leik­ari en seinna fór hún að skifa verk sem voru sett upp. „Þetta var æðis­lega skemmti­legt. Ég fór einmitt í leik­fé­lagið af því ég vildi vera að skrifa og vissi að þau væru að setja upp leik­rit sem þau hefðu skrifað sjálf. Hug­leikur er frá­bær upp­eld­is­stöð fyrir leik­skáld, alveg ein­stakt tæki­færi fyrir fólk til þess að skrifa.“ Eitt af verk­unum hennar, bað­stofu­leik­ritið Undir Hamrinum, gekk svo vel að ákveðið var að fara með það á leik­list­ar­sýn­ingu í Eist­landi. Þar voru við­tök­urnar svo góðar að hópnum var boðið að sýna það á hátíðum í Mónakó og Rúss­landi.

Þjóðleg.
Þjóðleg. Hildur lærði tísku­mark­aðs­fræði í Kali­forníu.

Barn með geðröskun

En lífið var ekki ein­tómur dans á rósum eftir að Hildur kom heim. Hún gifti sig og eign­að­ist svo barn sem seinna kom í ljós að var með geð­rask­anir. „Það fór öll orkan í að sinna barn­inu. Þetta var rosa­legt. Þótt við værum tvö með aðeins eitt barn,  þá var annað okkar stans­laust með barnið og hitt var þá að vaska upp eða elda eða eitt­hvað. Hann þurfti stöðuga umönnun. Þetta var svaka­legt álag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2016

Saga af tveimur forsetum: Helgi fokking Björns. Og hnykkurinn
Karl Th. Birgisson
Skoðun

Karl Th. Birgisson

Saga af tveimur for­setum: Helgi fokk­ing Björns. Og hnykk­ur­inn

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur flutt um 35 ræður og erindi frá því hann varð for­seti. Hann hefur notað þau í að kveða niður þjóð­rembu og forð­að­ist meðal ann­ars upp­hafn­ingu þjóð­kirkj­unnar. Hann sker sig frá Ólafi Ragnari Gríms­syni, sem í kosn­inga­bar­áttu sinni 1996 hafði sem ein­kenn­islag „Sjá dagar koma“ eftir Davíð Stef­áns­son, þar sem alda­löngum þrautum Íslend­inga er lýst.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár