„Ekki réttur skilningur“ að foreldrar hafi fjárhagslega hagsmuni af því að börnum batni ekki

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra segir að ákveðnir þættir í barna­líf­eyr­is­kerf­inu geti skapað ranga hvata. Hins vegar sé það ekki réttur skiln­ingur hjá Morg­un­blað­inu að hann hafi sagt að for­eldr­ar hefðu fjár­hags­lega hags­muni af því að börn sem byggju hjá þeim næðu ekki bata.

„Ekki réttur skilningur“ að foreldrar hafi fjárhagslega hagsmuni af því að börnum batni ekki

Dæmi eru um að for­eldrar hafi fjár­hags­lega hags­muni af því að börn sem búa í heima­húsum nái ekki bata. Samkvæmt frétt Mbl.is kom þetta fram í máli Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, á hádeg­is­fundi hjá Samtökum eldri sjálf­stæð­is­manna í gær.

Í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar segir Bjarni hins vegar að þetta sé ekki réttur skiln­ingur á orðum sínum. Hann skrifar:

„Þetta er ekki réttur skiln­ingur. Í svari við fyr­ir­spurn kom staða öryrkja til tals og fjölgun þeirra umdan­farin ár. Ég benti á að sú gagn­rýni sem fram hefur komið á barna­líf­eyri (m.a. frá Pétri heitnum Blöndal) byggir á því að for­eldrar (ekki börn) sem fara af örorku tapa honum og njóta sem laun­þegar tölu­vert minni stuðn­ings sem for­eldrar. Þetta getur skapað ranga hvata. Um þetta hefur m.a. verið rætt í nefnd um end­ur­skoðun almanna­trygg­inga.“

Í frétt Mbl.is er haft eftir Bjarna að við­ur­kenna þurfi göt í bóta­kerf­inu, auk þess sem mik­il­vægt sé að ná sam­komu­lagi við Öryrkja­banda­lagið og aðra hags­muna­að­ila um að byggja á starfs­getu­mati en ekki lækn­is­fræði­legri ör­orku sem grund­velli ör­orku­bóta. „Nefndi ráð­herr­ann ein­stak­linga sem fest­ust í gras­reyk­ing­um og tölvu­leikj­um og svæfu fram á há­degi. Í sum­um til­fell­um hefðu for­eldr­ar fjár­hags­lega hags­muni af því að börn sem byggju hjá þeim næðu ekki bata. Göt væru í kerf­inu sem menn yrðu að viður­kenna að væru til staðar,“ segir í frétt­inni. Þá kemur fram að Bjarni hafi sagt að sí­fellt fleira fólk á vinnu­aldri bygg­ði fram­færslu sína á ör­orku en ef maður seg­ði að fjölg­un ör­yrkja sé vanda­mál væri maður sak­aður um að vera upp­full­ur af mann­vonsku.

Vel­ferð­ar­ráðu­neytið birti í vik­unni upp­lýs­ingar um þróun örorku hér­lendis. Þar kemur fram að á tíma­bil­inu nóv­em­ber 2005 til nóv­em­ber 2015 fjölg­aði öryrkjum um 29%. Var mest fjölgun á ald­urs­bil­inu 65-66 ára en öryrkjum á aldr­inum 40-49 ára fjölg­aði lítið sem ekk­ert. Í yngsta hópnum, 16-19 ára, varð mikil fækkun en í nóv­em­ber 2015 voru engu að síður 156 öryrkjar í þeim hópi. „Í því sam­bandi verður að hafa hlið­sjón af því að með laga­breyt­ingu sem tók gildi 1. jan­úar 2010 mið­ast lág­marks­aldur örorku­líf­eyr­is­þega við 18 ár en var 16 ár áður,“ segir í texta ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórnin

Kristján Þór og Þorsteinn Már „nánir  vinir“ í skilningi stjórnsýslulaga
FréttirRíkisstjórnin

Kristján Þór og Þor­steinn Már „nánir vinir“ í skiln­ingi stjórn­sýslu­laga

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hafa ekki viljað svara spurn­ingum um eðli vin­áttu sinnar. Samkvæmt hæf­is­reglum stjórn­sýslu­laga getur „náin vin­átta“ haft áhrif á hæfi ráð­herra og ann­arra opin­berra starfs­manna en í slíkri vin­áttu felst meðal ann­ars að menn umgang­ist í frí­tíma sínum.
Af hverju er spilling frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?
Úttekt

Af hverju er spill­ing frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?

Munur á umræðu og aðgerðum stjórn­valda gegn spill­ingu í Svíþjóð og á Íslandi er hróp­lega mik­ill. Ákæru­valdið í Svíþjóð hefur á síð­ustu tveimur árum hafið rann­sókn á tveimur ráð­herrum vegna spill­ingar. Þessar rann­sóknir byggj­ast samt á veik­ari for­sendum en mörg mál sem komið hafa upp um íslenska ráð­herra á liðnum árum. Þá eru óform­legar reglur um spill­ingu og þol­in­mæði almenn­ings gagn­vart spill­ingu allt ann­ars konar á Íslandi en í Svíþjóð.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár