Er Jón Gnarr að boða forsetaframboð?

Jón Gnarr ætlar að til­kynna hvort hann fari í fram­boð á morgun. Í dag skrifar hann stöðu­færslu sem sumir telja að sé for­spil að for­seta­fram­boði. „Kristin trú hefur verið mik­il­vægur hluti af þjóð­menn­ingu okkar,“ skrifar Jón. „Besta­staðir here we come“ segir sam­herji hans.

Er Jón Gnarr að boða forsetaframboð?

Jón Gnarr, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri og núver­andi fram­kvæmda­stjóri dag­skrársviðs 365, íhugar nú for­seta­fram­boð, þrátt fyrir að hafa áður gefið það frá sér.

Í dag skrifar hann stöðu­færslu á Facebook-síðu sína um kristni og gildi þjóð­ar­innar og virð­ast þeir sem skrifa athuga­semdir telja að um sé að ræða for­spil að for­seta­fram­boði. Í færsl­unni veltir Jón vöngum yfir gildum íslensku þjóð­ar­innar og sessi krist­innar trúar í þjóð­menn­ing­unni.

„Ég hef verið að hugsa mikið um gildi okkar sem þjóðar. Þó ég telji mig trú­lausan þá get ég ekki hafnað því að kristin trú hefur verið mik­il­vægur hluti af þjóð­menn­ingu okkar og sögu. Þjóð­fán­inn okkar er t.d. kross­tákn. Lyk­ill­inn að fram­tíð okkar felst í því að við náum sem best að sam­rýma ólík við­horf og lífs­skoð­anir, útrýma ágrein­ingi en vinna saman sem heild. Sagan kennir okkur að þannig hefur okkur yfir­leitt gengið best að ná árangri,“ skrifar Jón.

Gaukur Úlf­ars­son, leik­stjóri og náinn sam­starfs­maður Jóns í gegnum tíð­ina, skrifar athuga­semd og segir: „Besta­staðir here we come!“

Misvísandi skilaboð

Í við­tali við Kjarnann í fyrra­dag gaf Jón út yfir­lýs­ingu um að hann myndi til­kynna hvort hann færi í fram­boð á morgun, í ein­hverjum af miðlum fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins 365, þar sem hann starfar. „Ég ætla bara að liggja undir feldi þangað til," sagði Jón við Kjarnann.

Jón hefur gefið út ansi ólíkar yfir­lýs­ingar í gegnum tíð­ina um hvort hann ætli sér í fram­boð. Í mars í fyrra skrif­aði hann til að mynda pistil í Frétta­blaðið þar sagði hreint út að hann ætlað sér ekki í fram­boð. „En það er annað sem ég get ekki sætt mig við. Mér leið­ist til­ætl­un­ar­semi, frekja og dóna­skapur. Ég reyni að forð­ast fólk sem finnst það eðli­legur hluti af dag­legum sam­skiptum. Mér óar við þeirri til­hugsun að verða á þennan hátt hluti af þeim ömur­lega og hall­æris­lega kúltúr sem er íslensk stjórn­mála­menn­ing. Ég nenni ekki að standa aftur and­spænis freka kall­inum. Ég get bara ekki boðið sjálfum mér og kon­unni minni upp á þetta,“ skrif­aði Jón.

„Leiðinleg stemning í samfélaginu“

Þá sagði Jón í við­tali við Stundina í júlí að hann vildi ekki berj­ast við „ein­hver öfl í þjóð­fé­lag­inu“ og honum þætti „leið­in­leg stemn­ing“ í þjóð­fé­lag­inu: „Það er bara ekki það sem á fyrir mér að liggja að verða for­seti. Ég var bæði snort­inn og upp með mér yfir því að svona mörgum þætti það vænt um mig eða hefðu svo mikla trú á mér að þeir vildu sjá mig í for­seta­emb­ætt­inu. Ég hugs­aði líka að í því emb­ætti gæti ég gert mikið gagn; unnið að jafn­rétti, mann­rétt­indum og hjálpað til á ýmsan hátt. Það hefði hins vegar end­an­lega lokað fyrir mér öllum tæki­færum til að vera aðrar per­sónur. Ef maður er for­seti þá er maður ekk­ert annað, það er svo afger­andi hlut­verk. Mig langar að spreyta mig í öðru og halda áfram þessum per­sónu­leika­til­raunum sem ég hef verið að gera. Það er líka svo leið­in­leg stemn­ing í sam­fé­lag­inu og mig langar ekki að vera ein­hver sem er umtal­aður í þessum leið­indum. Ég fæ ekk­ert kikk út úr því, hef aldrei litið svo á að það væri mitt hlut­verk að takast á við ein­hver öfl í þjóð­fé­lag­inu og mér hraus dálítið hugur við því.“

„Ég væri alveg til í að vera for­seti.“

Rétt fyrir jól hafði tónn­inn breyst. Í þætt­inum Jólavöku á RÚV sagði hann að hann væri til­bú­inn að verða for­seti. „Ég væri alveg til í að vera for­seti. Ég veit bara ekki alveg hvort ég væri til í það á þessum tíma­punkti,“ sagði hann þá. Samkvæmt skoð­ana­könnun Vísis 4. jan­úar vilja níu pró­sent Jón Gnarr sem næsta for­seta Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2016

Saga af tveimur forsetum: Helgi fokking Björns. Og hnykkurinn
Karl Th. Birgisson
Skoðun

Karl Th. Birgisson

Saga af tveimur for­setum: Helgi fokk­ing Björns. Og hnykk­ur­inn

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur flutt um 35 ræður og erindi frá því hann varð for­seti. Hann hefur notað þau í að kveða niður þjóð­rembu og forð­að­ist meðal ann­ars upp­hafn­ingu þjóð­kirkj­unnar. Hann sker sig frá Ólafi Ragnari Gríms­syni, sem í kosn­inga­bar­áttu sinni 1996 hafði sem ein­kenn­islag „Sjá dagar koma“ eftir Davíð Stef­áns­son, þar sem alda­löngum þrautum Íslend­inga er lýst.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár