„Í mínum augum er pabbi minn ekki morðingi, hann er bara pabbi minn“

Börn fanga fá lít­inn stuðn­ing og eru jað­ar­sett. Rætt er við dætur og barns­mæður fanga í loka­verk­efni Guðrúnar Helgu Ástríð­ar­dóttur til BA-prófs í upp­eldis- og mennt­un­ar­fræðum.

„Í mínum augum er pabbi minn ekki morðingi, hann er bara pabbi minn“

Úrræðum fyrir börn fanga á Íslandi er ábóta­vant. Þau glíma við félags­leg og sál­ræn vanda­mál en fá hvorki mark­vissan stuðn­ing né aðstoð við að halda tengslum við for­eldri meðan á afplánun stendur. 

Þetta er nið­ur­staða loka­verk­efnis Guðrúnar Helgu Ástríð­ar­dóttur til BA-prófs í upp­eldis- og mennt­un­ar­fræði við Háskóla Íslands. Hún ræddi við aðstand­endur fanga, bæði dætur þeirra og barns­mæður, sem segj­ast mæta for­dómum og brenni­merk­ingu og upp­lifa skömm og van­líðan.

„Þó að ýmis lög og reglu­gerðir séu til um rétt­indi barna og for­eldra þeirra sem afplána dóma þarf að móta skýr­ari stefnu og laga hana að íslenskum veru­leika svo hægt sé að veita þessum hópi þann stuðn­ing og þau úrræði sem hann þarf á að halda,“ segir í nið­ur­stöðukafla rit­gerð­ar­innar. „Ég tel að brýnt sé að stað­setja hóp­inn sem aðstand­endur fanga til­heyra ein­hvers staðar innan kerf­is­ins svo hægt sé að veita honum meiri og betri aðstoð. Börn fanga eru í áhættu­hópi hvað það varðar að leið­ast sjálf út í afbrot og aðra óreglu og þess vegna er mik­il­vægt að þau fái þann stuðn­ing sem þau þurfa á að halda.“ 

Fram kemur að sam­kvæmt rann­sóknum sem gerðar hafa verið sé umræddur hópur í brott­falls­hættu í námi og að með fyr­ir­byggj­andi aðgerðum gætu fag­að­ilar innan skóla­kerf­is­ins, svo sem skóla­sál­fræð­ingar eða náms­ráð­gjafar stigið inn í ferlið og veitt stuðn­ing og aðstoð. „Mik­il­vægt er að fleiri og sýni­legri úrræði verði í boði fyrir þennan hóp í sam­fé­lag­inu og til þess þurfa ríkið og sveit­ar­fé­lög að finna ráð og lausnir og stað­setja hóp­inn jafn­framt betur innan kerf­is­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fangelsismál

Ofbeldisfangar án betrunar: „Hérna eru menn með vandamál“
ÚttektFangelsismál

Ofbeld­is­fangar án betr­unar: „Hérna eru menn með vanda­mál“

„Er sál­fræð­ingur að vinna hér?“ spurði fangi á Litla-Hrauni þegar hann var inntur eftir því hvort og þá hvenær hann hefði fengið sál­fræði­við­tal. Einn sál­fræð­ingur sinnir 180 föngum sem afplána dóma á Íslandi og ekk­ert sér­hæft úrræði er fyrir fanga sem sitja inni fyrir lík­ams­árásir. Fang­arnir sögð­ust þó myndu þiggja slíka aðstoð ef hún væri mark­viss og í boði.
Barnaníðingur nýtur góðs af breytingu laga um rafrænt eftirlit
FréttirFangelsismál

Barn­a­níð­ingur nýtur góðs af breyt­ingu laga um raf­rænt eft­ir­lit

Í apríl síð­ast­liðnum var þeim Sigurði Ein­ars­syni, Magnúsi Guð­munds­syni og Ólafi Ólafs­syni sleppt út af Kvía­bryggju og á Vernd. Ástæða þess að þeir fengu frelsi fyrr en ella var laga­breyt­ing, sem þing­kona sagði sér­stak­lega smíðuð utan um þessa fanga. Einn af þeim sem nú njóta góðs af þess­ari laga­breyt­ingu er barn­a­níð­ing­ur­inn Sigurður Ingi Þórð­ar­son.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár