Kaupþingsmenn leystir úr haldi eftir lagabreytingar

Ólafur Ólafsson, Sigurður Ein­ars­son og Magnús Guð­munds­son losna af Kvía­bryggju í dag. Laga­breyt­ing að upp­lagi alls­herj­ar­nefndar Alþingis tryggði föng­unum aukið frelsi. Breyt­ingin var smíðuð utan um þessa fanga, segir þing­kona.

Kaupþingsmenn leystir úr haldi eftir lagabreytingar

Sigurður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi banka­stjóri í Lux­emburg, og Ólafur Ólafsson, aðal­eig­andi Samskips og einn stærsti hlut­hafi Kaup­þings, losna úr fang­els­inu á Kvía­bryggju í dag.

Þeir hafa afplánað um eitt ár af fjög­urra til fimm ára dómi vegna efna­hags­brota í aðdrag­anda hruns­ins.

Síðar í dag verða þeir færðir á áfanga­heim­ilið Vernd og njóta frelsis umfram það að þurfa að vera á áfanga­heim­il­inu á næt­urna. Eftir það fara þeir á raf­rænt eft­ir­lit.

Þetta varð mögu­legt eftir laga­breyt­ingu sem gekk í gegn í mars.

Lagabreyting veitir aukið frelsi

Titr­ingur er vegna máls­ins þar sem fang­arnir fá helm­ingi lengri tíma undir raf­rænu eft­ir­liti en áður var leyfi­legt, sam­kvæmt nýjum lögum um fulln­ustu refs­inga. Frum­varpið breytt­ist í með­ferð alls­herj­ar­nefndar, sem lagði til þá breyt­ingu að í stað þess að fangar fengju 2,5 dag í raf­rænu eft­ir­liti fyrir hvern dæmdan mánuð eru það nú fimm dagar. Þá geta þeir sem dæmdir eru í tólf mán­aða óskil­orð­bundið fang­elsi nú verið 60 daga undir raf­rænu eft­ir­liti, í stað 30 daga áður. Breyt­ing­arnar gera það að verkum að fangar fara nú fyrr en áður í raf­rænt eft­ir­lit og losna þar af leið­andi fyrr út úr fang­elsi. 

Alþingi sam­þykkti breyt­ing­una í síð­asta mán­uði. Breyt­ing­arnar voru sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar sam­þykktar í flýti og er Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, for­maður alls­herj­ar­nefndar og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sögð hafa barist fyrir að laga­breyt­ingin yrði sam­þykkt.

Ósáttir við kerfið
Ósáttir við kerfið Ólafur Ólafsson, Sigurður Ein­ars­son og Magnús Guð­munds­son komu í við­tal hjá Stöð 2 í jan­úar þar sem þeir sögðu stærstu mis­tök sín hafa verið að treysta á dóms­kerfið.

„Virtist vera smíðað utan um þá“

„Mér fannst þessi laga­breyt­ing ekki tíma­bær í ljósi stöð­unnar varð­andi þessa til­teknu fanga. Þetta virt­ist vera smíðað utan um þá. Ég er samt í sjálfu sér fylgj­andi því að við aukum notkun raf­ræns eft­ir­lits. En það þarf að taka þá umræðu og ákveða hvaða brot eiga að falla undir þetta. Ég er sam­mála fang­els­is­mála­stjóra sem lýsti and­stöðu sinni fyrir nefnd­inni,“ segir Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, nefnd­ar­maður í alls­herj­ar­nefnd og þing­maður VG, sem var and­víg þess­ari breyt­ingu.

Þess má geta að í lög­unum er einnig ákvæði um að kafl­inn um raf­rænt eft­ir­lit skuli end­ur­skoð­aður ekki seinna en 1. júní á þessu ári. Vekur furðu að við end­ur­skoðun heild­ar­laga, skuli vera ákvæði um að ákveð­inn hluti lag­anna verði end­ur­skoð­aður innan þriggja mán­aða. 

Kaupþingsmenn fyrir dómi
Kaup­þings­menn fyrir dómi Hreiðar Már Sig­urðs­son fékk þyngri dóm en Ólafur Ólafsson og losnar ekki strax frá Kvía­bryggju.

Stærstu mistökin að treysta á kerfið

Kaup­þings­menn­irnir þrír eru þeir sömu og hafa kvartað undan fang­els­is­mála­stjóra til Umboðs­manns Alþingis vegna ummæla hans við fjöl­miðla og vegna þess að kvik­mynda­gerð­ar­mað­ur­inn Michael Moore fékk aðgang að fang­els­inu á Kvía­bryggju.

Þeir Ólafur, Sigurður og Magnús komu fram í við­tali við Stöð 2 í jan­úar þar sem þeir lýstu óánægju sinni með dóms­kerfið.

„Menn gerðu þau stóru mis­tök, lög­menn og við, að við treystum á kerfið. Við treystum dóm­stólum og lögðum á það traust að Hæsti­réttur myndi alltaf dæma sam­kvæmt lögum. Þarna eru okkar mis­tök. Við áttum strax í upp­hafi að ganga út frá því að kerfið héldi ekki,“ sagði Ólafur í við­tal­inu.

Enn með mál í kerfinu 

Hæsti­réttur dæmdi Kaup­þings­menn­ina fjóra í febr­úar í fyrra fyrir alvar­leg efna­hags­brot í aðdrag­anda hruns­ins. Þeir hófu afplánun stuttu síðar. Sigurður fékk fjög­urra ára dóm. Magnús og Ólafur fengu fjög­urra og hálfs árs fang­elsi. Félagi þeirra, Heiðar Már, fékk fimm og hálfs árs fang­elsi og situr eftir á Kvía­bryggju við brott­hvarf félaga sinna í dag. 

Auk þess var Sigurður Ein­ars­son dæmdur í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur síð­asta sumar í „Stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál­inu“ til eins árs refsi­auka. Málinu var áfrýjað og er því ekki komin end­an­leg nið­ur­staða í lengd fang­els­is­vistar Sigurðar Ein­ars­sonar þótt hann sé nú laus af Kvía­bryggju.

Eigur þre­menn­ing­anna hafa þegar verið sóttar á Kvía­bryggju og er áætluð brott­för þeirra klukkan tvö í dag. Þeir eru vænt­an­legir á Vernd síðar í dag.

Önnur frétt: Fang­els­is­mála­stjóri hefur óskað skýr­inga vegna ísbílt­úrs tveggja Kaup­þings­manna frá fang­els­inu á Kvía­bryggju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fangelsismál

Ofbeldisfangar án betrunar: „Hérna eru menn með vandamál“
ÚttektFangelsismál

Ofbeld­is­fangar án betr­unar: „Hérna eru menn með vanda­mál“

„Er sál­fræð­ingur að vinna hér?“ spurði fangi á Litla-Hrauni þegar hann var inntur eftir því hvort og þá hvenær hann hefði fengið sál­fræði­við­tal. Einn sál­fræð­ingur sinnir 180 föngum sem afplána dóma á Íslandi og ekk­ert sér­hæft úrræði er fyrir fanga sem sitja inni fyrir lík­ams­árásir. Fang­arnir sögð­ust þó myndu þiggja slíka aðstoð ef hún væri mark­viss og í boði.
Barnaníðingur nýtur góðs af breytingu laga um rafrænt eftirlit
FréttirFangelsismál

Barn­a­níð­ingur nýtur góðs af breyt­ingu laga um raf­rænt eft­ir­lit

Í apríl síð­ast­liðnum var þeim Sigurði Ein­ars­syni, Magnúsi Guð­munds­syni og Ólafi Ólafs­syni sleppt út af Kvía­bryggju og á Vernd. Ástæða þess að þeir fengu frelsi fyrr en ella var laga­breyt­ing, sem þing­kona sagði sér­stak­lega smíðuð utan um þessa fanga. Einn af þeim sem nú njóta góðs af þess­ari laga­breyt­ingu er barn­a­níð­ing­ur­inn Sigurður Ingi Þórð­ar­son.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár