Frásögnum Gísla Freys og Sigríðar Bjarkar ber ekki saman

Enn óljóst hvenær gögnin voru send og hver átti frum­kvæði að sam­skipt­unum

Frásögnum Gísla Freys og Sigríðar Bjarkar ber ekki saman

Þrátt fyrir að Per­sónu­vernd hafi kveðið upp úrskurð í máli Sigríðar Bjarkar Guð­jóns­dóttur, lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, er enn margt á huldu um sam­skipti þeirra Gísla Freys Val­dórs­sonar, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­manns Hönnu Birnu, í nóv­em­ber árið 2013. 

Líkt og Kjarninn bendir á í dag er enn ekki hafið yfir allan vafa hvenær Sigríður Björk sendi Gísla Frey upp­lýs­ing­arnar um mál­efni Tony Omos og hvort þær upp­lýs­ingar hafi nýst aðstoð­ar­mann­inum til að koma höggi á hæl­is­leit­and­ann þegar skjali inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins var lekið. Þá sýna þau gögn sem Per­sónu­vernd fékk í hendur ekki með óyggj­andi hætti að Sigríður Björk hafi sent Gísla Frey grein­ar­gerð­ina um Tony Omos á vinnu­net­fang hans í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu. Stundin spurði Sigríði Björk á dög­unum hvort hún hefði sent Gísla ein­hverjar upp­lýs­ingar á Gmail-net­fang hans og svar­aði hún neit­andi. 

Rann­sókn­ar­gögn leka­máls­ins benda til þess að Sigríður Björk hafi sjálf átt frum­kvæði að sam­skipt­unum að morgni dags þann 20. nóv­em­ber þegar hún hringdi í Gísla úr leyni­núm­eri. Í til­kynn­ingu sem Sigríður sendi frá sér þann 18. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn sagð­ist hún hafa hringt í Gísla „til að svara skila­boðum.“ Gísli neit­aði þessu hins vegar í sam­tali við frétta­stofu RÚV sama dag, og sagð­ist ekki hafa skilið eftir nein skila­boð til lög­reglu­stjór­ans. 

Í sam­tali við frétta­stofu RÚV stuttu síðar sagði svo Sigríður að hún hefði hringt í Gísla vegna þess að hann hefði reynt að hringja í hana kvöldið áður: „Vegna þess að hann reyndi að hringja í mig kvöldið áður og ég svar­aði ekki.“ Í rann­sókn­ar­gögnum leka­máls­ins kemur ekki fram að Gísli hafi hringt úr sínum síma í Sigríði að kvöldi dags þann 19. nóv­em­ber.

Líkt og DV greindi frá á sínum tíma voru síma­gögn inn­an­rík­is­ráð­herra ekki skoðuð við rann­sókn leka­máls­ins. Í við­tal­inu við RÚV sagð­ist Sigríður Björk „ekki minn­ast þess“ að hafa talað við Hönnu Birnu í síma dag­inn sem gögn­unum var lekið né heldur dag­inn eftir. DV fékk svo svipað svar frá Þóreyju Vil­hjálms­dóttur, aðstoð­ar­konu Hönnu Birnu. „Ráðherra minn­ist þess ekki að hafa átt sím­tal við Sigríði Björk þennan dag,“ sagði Þórey aðspurð hvort mál­efni Tonys Omos og Evelyn Glory Joseph hefði borið á góma í sam­skiptum þeirra þann 19. nóv­em­ber árið 2013. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lekamálið

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár