Skiptum lokið í þrotabúi fasteignafélags N1

20 millj­arða skuldir afskrif­aðar árið 2011.

Skiptum lokið í þrotabúi fasteignafélags N1

Skiptum í þrota­búi félags­ins Umtaks ehf. lauk þann 11. jan­úar síð­ast­lið­inn og fékkst ekk­ert upp í lýstar kröfur sem námu aðeins 71 þús­und krónum. Félagið var hluti af BNT-sam­stæð­unni og hélt utan um fast­eignir olíu­fé­lags­ins N1. Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra, var stjórn­ar­for­maður BNT og N1 þegar sam­stæðan lenti í fjár­hagskröggum í hrun­inu en Benedikt Jóhann­es­son, nýr fjár­mála­ráð­herra, tók sæti í stjórnum félag­anna eftir að Bjarni sagði af sér stjórn­ar­for­mennsku. Arion banki hefur verið eig­andi Umtaks und­an­farin ár en kröfu­hafar afskrif­uðu tæp­lega 20 millj­arða af skuldum félags­ins árið 2011. Nú heyrir Umtak sög­unni til, rétt eins og móð­ur­fé­lag N1, BNT hf, sem var úrskurðað gjald­þrota árið 2012 en 4,3 millj­arða skuldir þess voru afskrif­aðar. 

Að því er fram kemur í til­kynn­ingu í Lög­birt­inga­blað­inu hafði skiptum í búi Umtaks lokið á skipta­fundi þann 24. ágúst í fyrra. Hins vegar þurfti að taka skiptin upp á ný til að ráð­stafa rétt­indum sem í ljós komu eftir skipta­lok. „Engar eignir fund­ust í búinu og var skiptum í því lokið 11. jan­úar 2017 sam­kvæmt 155. gr. laga nr. 21/1991 án þess að greiðsla feng­ist upp í lýstar kröfur, auk áfall­inna vaxta og kostn­aðar eftir úrskurð­ar­dag gjald­þrota­skipta,“ segir í til­kynn­ing­unni. Fjár­hags­örð­ug­leika N1 hf og tengdra félaga má rekja til falls fjár­mála­kerf­is­ins og hruns íslensku krón­unnar. Eftir að skuldir félag­anna urðu óvið­ráð­an­legar var fjár­hagur þeirra end­ur­skipu­lagður og tóku lána­drottnar yfir rekstur N1 upp í skuldir Umtaks og BNT. Bæði félögin voru síðar úrskurðuð gjald­þrota.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár