Embættismaður geymdi hundruð milljóna í Tortólafélagi

Hellen Magnea Gunn­ars­dóttir, skrif­stofu­stjóri í mennta­mála­ráðu­neyt­inu, kemur fyrir í Panama­skjöl­unum. „Umbjóð­andi minn eign­að­ist fjár­muni með fjár­fest­inga­fé­lagi sínu Teton á Íslandi. Fjár­mun­irnir eru í Tórtóla­fé­lag­inu,“ segir í tölvu­pósti úr gögnum lög­manns­stof­unnar Mossack Fonseca.

Embættismaður geymdi hundruð milljóna í Tortólafélagi

Hellen Magnea Gunn­ars­dóttir, skrif­stofu­stjóri í mennta­mála­ráðu­neyt­inu og emb­ætt­is­maður í stjórn­ar­ráð­inu til tæpra tveggja ára­tuga, hefur átt hlut í aflands­fé­lagi á Tortóla ásamt eig­in­manni sínum, Erni Karls­syni, um ára­bil. Félagið var stofnað árið 2001 og heitir Javelin Associates Holding Inc. 

Þetta kemur fram í gagna­grunni á vef Alþjóða­sam­taka rann­sókn­ar­blaða­manna sem byggir á Panama­skjöl­unum. Kastljós fjall­aði um málið í gær og greindi frá því að sam­kvæmt gögnum frá lög­manns­stof­unni Mossack Fonseca hefðu á þriðja hund­rað millj­óna króna verið fluttar frá Íslandi og inn í Tortóla­fé­lagið. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

Myndband10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár